Vilja kínverska sendiherrann á teppið

Bertel Haarder, menningarmálaráðherra Danmerkur.
Bertel Haarder, menn­ing­ar­mála­ráð­herra Dan­merkur. Mynd: Chris Kleponis / EPA

Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn (DF) vill að Bertel Haarder menn­ing­ar­mála­ráð­herra Dan­merkur boði sendi­herra Kína í Kaup­mann­höfn á sinn fund vegna afskipta hans af komu kín­versks dans­flokks til Dan­merkur. Dans­flokk­ur­inn hélt tvær sýn­ingar fyrir fullu húsi í Árósum í apríl.

Kín­verski dans­flokk­ur­inn Shen Yun Per­form­ing Arts (SYPA) var stofn­aður árið 2006 í New York. Stofn­end­urnir tengd­ust Falun Gong hreyf­ing­unni, sem var bönnuð í Kína árið 1999 en Li Hongzhi stofn­andi Falun Gong flutti til New York 1998. Kenn­ingar Falun Gong eru runnar upp úr búdd­isma, taó­isma, siða­kenn­ingum Kon­fús­í­usar o.fl.

Í SYPA flokknum eru um það bil 200 dans­arar. Þriðj­ungur hóps­ins er eins­konar far­and­flokkur, ferð­ast víða um heim stóran hluta árs­ins og sýnir listir sínar. For­svars­menn SYPA hafa sagt að kín­versk stjórn­völd hafi, allt frá stofnun flokks­ins, reynt að koma í veg fyrir sýn­ingar hans. Fyrir nokkrum mán­uðum var fjórum sýn­ingum í Seoul í Suður-Kóreu skyndi­lega aflýst, án skýr­inga. Tals­maður SYPA seg­ist sann­færður um að Kín­verjar hafi beitt stjórn­völd í Suður-Kóreu þrýst­ingi.

Konunglega leikhúsið synjaði beiðni dansflokksins

SYPA flokk­ur­inn hefur á und­an­förnum árum margoft reynt að ná samn­ingum við Kon­ung­lega leik­húsið í Kaup­manna­höfn um leigu á Óperunni eða gamla aðal­svið­inu við Kóngsins Nýja-torg. Danskir umboðs­menn dans­flokks­ins telja sig vita að kín­verska sendi­ráðið hafi beitt sér og reynt að koma í veg fyrir sýn­ing­arnar. Marianne Jelved fyrr­ver­andi menn­ing­ar­mála­ráð­herra krafði á sínum tíma stjórn­endur Kon­ung­lega skýr­inga. Í svari leik­húss­ins kom fram að Kín­verjar hefðu ekki beitt hót­unum en hins vegar hefði full­trúum leik­húss­ins, sem sáu sýn­ingu SYPA í Berlín ekki þótt hún eiga erindi á svið Kon­ung­lega, hún væri ekki nægi­lega heil­steypt „af alt for svin­gende kva­litet.”

Sendiherrann skrifar bréf

Þegar kín­verska sendi­herr­anum í Kaup­manna­höfn barst til eyrna að SYPA flokk­ur­inn væri vænt­an­legur til Árósa skrif­aði hann stjórn­anda Tón­list­ar­húss­ins. Í bréf­inu sagði að Falun Gong berð­ist gegn sam­fé­lags­legum gildum og reyni, í þessu til­viki, að skaða sam­band Kína og Dan­merkur. „Þið eruð vin­sam­leg­ast beðin að segja sann­leik­ann, en ekki það sem ósatt er, og halda ykkur frá þessu svo­kall­aða Shen Yun, sem er á vegum Falun Gong, þannig að þið verðið ekki verk­færi í höndum þeirra”.

Þingmenn Danska þjóðarflokksins vilja sendiherrann á teppið

Tals­maður Danska Þjóð­ar­flokks­ins í menn­ing­ar­málum, Alex Arendt­sen sagði í blaða­við­tali að með skrifum sínum hefði kín­verski sendi­herr­ann farið „langt yfir strikið. Kín­verjar hafa rétt á að segja skoðun sína en að þeir reyni að segja stjórn­völdum fyrir verkum er ekki hægt að líða.” Þing­mað­ur­inn ætlar að fara fram á það við Bertel Haarder menn­ing­ar­mála­ráð­herra að hann kalli kín­verska sendi­herr­ann á sinn fund og geri honum grein fyrir að afskipta­semi af þessu tagi sé ekki umborin í Danmörku.

Húsfyllir í tvígang

Stjórn­endur Tón­list­ar­húss­ins í Árósum létu skrif sendi­herr­ans sem vind um eyru þjóta. Dans­flokk­ur­inn sýndi tvisvar á stóra sviði Tón­list­ar­húss­ins sem tekur um þrjú þús­und manns í sæti. Uppselt var á báðar sýn­ing­arnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár