Vilja kappakstur í Kaupmannahöfn árið 2020

Stjórn­völd í Danmörku og for­svars­menn Formúlu 1 hafa tekið vel í hug­myndir um að halda umferð í Formúlu 1 í Kaup­manna­höfn frá og með árinu 2020.

Félag­s­kapur áhrifa­manna í Danmörku er kom­inn með vil­yrði stjórn­valda og for­svars­manna Formúlu 1 um danskan Formúlu 1 kappakstur árið 2020. Borg­ar­yf­ir­völd í Kaup­manna­höfn hafa nú til athug­unar til­lögur um legu kappakst­urs­brautar í mið­borg Kaup­manna­hafnar.

Danska dag­blaðið Jyllands-Posten greindi fyrst frá því í sumar að dönsk stjórn­völd hefðu tekið hugs­an­legan kappakstur á danskri grund til fag­legrar skoð­unar. For­svars­menn verk­efn­is­ins eru Helge Sander, fyrr­ver­andi ráð­herra vís­inda, tækni og þró­unar í Danmörku, og Lars Seier Christensen, fyrrum eig­andi Saxo-bank­ans.

Kappakst­urs­tíma­ritið Autosport greindi svo frá því á dög­unum að áformin hefðu fallið vel að eyrum Formula One Mana­gement, fyr­ir­tæk­inu sem rekur og stýrir Formúlu 1 um allan heim. Um leið höfðu tveir stærstu múr­arnir verið felldir áður en hægt er að ræða um kappakst­ur­inn. Enn eru þó ljón í veg­inum.

Götukappakstur í Köben

Brautin sem lagt er til að lögð verði um mið­borg Kaup­manna­hafnar mun liggja um Krist­jáns­höfn, yfir Knipp­els­bro á Hall­ar­hólmann, yfir Langebro á Íslands­bryggju, eftir Amager Boulevard að Ama­ger­brogade og þaðan aftur í Krist­jáns­höfn.

Brautin var hönnuð af Þjóð­verj­anum Herman Tilke en sá hefur hannað margar af þeim kappakst­urs­brautum sem Formúla 1 keppir á í dag. Þeirra á meðal er brautin í mið­borg Baku í Azerbaídjan sem fyrst var keppt á sum­arið 2016. Tillögur Tilke þykja svipa nokkuð til braut­ar­innar í Azerbaídjan – brautin verður hröð, með hægum, þröngum beygjum og þar af leið­andi nokkur áskorun fyrir öku­menn – ef af áformunum verður.

Danski kappakst­ursöku­þór­inn Jan Magn­us­sen sem keppti í Formúlu 1 á árunum 1995 til 1998 fyrir McLaren- og Stewart-liðin, hefur verið þeim Sander og Christensen til ráð­gjafar í þessu verk­efni. Sonur Magnusen, Kevin Magnusen, hefur keppt í Formúlu 1 síðan árið 2014 og ekur nú fyrir hið banda­ríska HAAS-lið.

Hér að neðan er mynd­band frá hring Lewis Hamilton í tíma­tökum fyrir kappakst­ur­inn í Baku í sumar.

„Við höfum rætt þetta við einka­fjár­fest­ana um nokk­urt skeið og erum nú reiðu­búin að fjalla um þetta á opin­berum vett­vangi,“ er haft eftir Brian Mikk­el­sen, iðn­að­ar­ráð­herra Dan­merkur, í Autosport. „Þetta lítur allt út fyrir að vera mun rauveru­legra með tím­anum. Formúla 1 mundi verða góð aug­lýs­ing fyrir Kaup­manna­höfn.“

Framtíðarformúlan meira í borgum

Nýju eig­endur Formúlu 1, banda­ríska fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Liberty Media með Chase Carey og Ross Brawn fremsta í flokki, hafa sagst sjá Formúlu 1 keppa í mun meiri mæli í borgum en nú er gert.

Sex borg­ar­brautir eru nú á dag­skrá Formúlu 1, þeirra þekkt­ust er eflaust brautin í smá­rík­inu Mónakó við Mið­jarð­ar­hafið. Aðrar eru í Melbourne í Ástralíu, Sochi í Rúss­landi, Montréal í Kanada, Baku í Azerbaídjan og sú síð­asta í Singapúr. Á und­an­förnum árum hafa sprottið upp hug­myndir um brautir í London, New York, Bangkok, Cape Town, Los Angeles og víðar. Slík áform hafa eðli máls­ins sam­kvæmt kom­ist mis­langt.

Ástæða þess að stjórn­endur Formúlu 1 vilja keppa í borgum frekar en á sér­byggðum kappakst­urs­brautum er að lang mestu leyti við­skipta­legs eðlis. Með því að keppa í borgum er kappakst­ur­inn færður til áhorf­enda, miklu frekar en að áhorf­endur þurfi að ferð­ast lengri vega­lengdir til þess að kom­ast á kappakstur.

[adspot]

Kappakstri í borgum fylgir hins vegar gríð­ar­lega mikið rask á hinu dag­lega borg­ar­lífi almenn­ings, sem þurfa margir að ferð­ast öðru­vísi um borg­ina en venju­lega í hálfan mánuð á meðan götum er breytt í kappakst­urs­braut og aftur til baka. Það eru jafn­framt ekki allir aðdá­endur kappakst­urs­ins sem þurfa að umbera hávaða og læti og auk­inn straum ferða­manna í næsta nágrenni vegna kappakst­urs­ins.

Í Mónakó er kappakst­ur­inn löngu orð­inn að hefð. Kappakst­ur­inn þar hefur verið hald­inn nær óslitið síðan á þriðja ára­tug síð­ustu aldar. And­stæð­ingar kappakst­urs­ins eru þess vegna ýmist löngu fluttir á brott, látnir eða láta ekki sjá sig í borg­inni á meðan kappakst­ur­inn fer fram.

Umhverfisvernd helsta hindrunin

Í Kaup­manna­höfn hafa áform um kappaktur þegar fengið mót­byr frá dönskum umhverf­is­vernd­ar­sinnum. Á und­an­förnum árum hefur ný kappakst­urs­móta­röð, Formúla E, rutt sér til rúms. Þar er aðeins keppt á raf­knúnum kappakst­urs­bílum og öll mótin fara fram í borgum.

Sú móta­röð fellur mun betur að umhverf­is­sjón­ar­miðum enda er þró­unin í bíla­iðn­aði sífellt að fær­ast í átt að hag­kvæm­ari og umhverf­is­væn­ari orku­lausnum. Formúlu E-mótin hafa farið fram í Berlín, London, Mexík­ó­borg, París, Róm, New York, Hong Kong svo ein­hverjar borgir séu taldar til.

Jafnvel þó Formúla 1 hafi tekið stór skref í átt að umhverf­is­vænni kostum til að knýja vélar kappakst­urs­bíl­anna þá ganga þeir enn fyrir jarð­efna­elds­neyti. Ströng­ustu aðdá­endur Formúlu 1 telja meira að segja að of langt hafi verið gengið í þessum efnum á kostnað hávaða og dekkja­bruna­lyktar.

Vegna þessa, í takt við það hlut­verk sem Formúla E hefur eignað sér, hafa til­lögur um að snúa fram­þró­un­inni í Formúlu 1 við og knýja kappakst­urs­bíl­ana áfram með mun kraft­meiri og óskil­virk­ari hætti – það mun friða aðdá­endur sem vilja heyra ærandi véla­hljóð og finna lykt af gúmmí brenna.

Grand Prix-kappakstur á Norðurlöndum

Á Norð­ur­löndum er ekki eins mikil menn­ing fyrir mót­or­sporti og sunnar í Evrópu og á Bret­landi þar sem helstu og þekkt­ustu bif­véla­fram­leið­endur heims starfa. Það er ekki þar með sagt að Norð­ur­landa­búar hafi ekki tekið þátt.

Þeir feðgar Kevin og Jan Magnusen eru þeir öku­menn frá Danmörku sem náð hafa bestum árangri. Svíar hafa átt fleiri öku­menn og náð mun betri árangri. Markus Ericson er eini Svíinn sem keppir í dag. Annars var Ronnie Peterson sá sænski öku­þór sem náði bestum árangri. Hann lést í Formúlu 1-kappakstri árið 1978.

Finnar eru hins vegar ótví­rætt far­sælasta norð­ur­landa­þjóðin þegar kemur að Formúlu 1. Í dag keppa tveir Finnar í Formúlu 1, þeir Kimi Räikkönen og Valtteri Bottas. Räikkönen er einn þriggja finnskra heims­meist­ara í Formúlu 1. Hinir eru Keke Rosberg og Mika Häkkinen.

Svíþjóð er þó eina landið sem haldið hefur Formúlu 1-kappakstur sem talið hefur til stiga í heims­meist­ara­bar­áttu. Brautin í And­er­storp var áfanga­staður Formúlu 1 í sex skipti á átt­unda ára­tugnum. Svíar höfðu mik­inn áhuga á kappakstr­inum en þegar helstu kappakst­urs­hetur þeirra lét­ust árið 1978 (Peterson í kappakstri og Gunnar Nilson úr krabba­meini) fjar­aði áhug­inn út.

Formúlu 1-kappakstur hefur raunar líka verið hald­inn í Danmörku, á Roskilde Ring í Hró­arskeldu, árin 1961 og 1962. Mótin voru þó ekki talin til stiga í heims­meist­ara­keppn­inni og þess vegna voru þau ekki eig­in­leg Formúlu 1-mót.

Þurfa að tryggja fjármagn

Það kostar mik­inn pen­ing að halda Formúlu 1-kappakstur í nútím­anum, ekki síst í borgum þar sem engin kappakst­urs­braut er til­búin. Helge Sander, einn for­svars­manna kappakst­urs­á­for­manna í Kaup­manna­höfn, segir næstu mán­uði fara í að tryggja fjár­magn fyrir móts­hald­inu.

„Við þurfum að skil­greina fjár­hags­á­ætl­an­irnar okkar svo við getum tryggt það fjár­magn sem þarf til þess að halda Formúlu 1-kappakstur. Við munum vinna árs­vinnu á næstu sex mán­uðum þar sem margt þarf að ganga upp, sér­stak­lega eftir að þessi forms­at­riði eru í höfn,“ sagði Sander um fram­haldið eftir að stjórn­völd í Danmörku og Formúla 1 hafa sam­þykkt að veita þessu verk­efni athygli.

„Við þurfum að hefja samn­inga­við­ræður við danska ríkið, sem þegar hefur gefið vil­yrði fyrir fjár­stuðn­ingi við móts­haldið,“ segir hann enn­fremur.

Kappakstur víða um heim er oftar en ekki studdur af stjórn­völdum af ein­hverju eða öllu leyti. Einka­fjár­fest­ing er yfir­leitt lít­ill hluti þess fjár­magns sem sett er í keppn­is­haldið. Þar sem rík­is­stjórnir hafa komið að fjár­mögnun móta hefur það verið til þess að kynna land og þjóð fyrir alheim­inum. Formúlu 1 er sjón­varpað til nær allra landa í heim­inum, og er ítrekað meðal stærstu sjón­varps­við­burða á árs­grund­velli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kappakstur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár