Aðeins þeir hugrökkustu geta unnið Þríkrúnuna – Alonso vill vera næstur

Fernando Alonso ætlar að sleppa kappakstr­inum í Mónakó og keppa í Indy 500 2017 í elt­inga­leik við goð­sagna­kenndan titil.

Graham Hill er sá eini sem hefur unnið þríkrúnuna. Fernando Alonso hyggist feta í fótspor hans.
Graham Hill er sá eini sem hefur unnið þrí­krún­una. Fernando Alonso hygg­ist feta í fót­spor hans. Mynd: SRDJAN SUKI

Hvað ætli sé mesta afrek öku­þórs í kappakstri? Eru það sjö heims­meist­aratitlar Michael Schumacher í Formúlu 1? Níu heims­meist­aratitlar Sebastien Loeb í rallakstri í röð eða níu heims­meist­aratitlar Val­entino Rossi á mót­or­hjóli? Þetta eru stór­kos­leg afrek sem verða hugs­an­lega aldrei bætt. En það er til afrek sem stundum gleym­ist þegar fólk telur titla og verð­laun. Þessi afrek falla öll í skuggan á þrí­krún­unni.

[links]Það eru þrjú mót í heim­inum sem alla öku­menn dreymir um að vinna. Það eru Mónakó kappakst­ur­inn, sól­ar­hringsakst­ur­inn í Le Mans og Indi­ana­polis 500-kappakst­ur­inn. Allt eru það stærstu við­burð­irnir í hverri móta­röð fyrir sig. Aðeins einum hefur tek­ist að vinna öll þrjú mótin á sinni lífs­leið; titil sem yfir­leitt er kall­aður Þrí­krúnan.

Þessi þrjú mót eru ein­stök hver á sinn hátt og gríð­ar­lega ólík. Þau bera hins vegar öll upp um þetta leyti árs, í lok maí og byrjun júní. Núna á sunnu­dag þræða Formúlu 1-öku­menn strætin í Mónakó og ofur­hugar handan Atl­ants­hafs­ins aka 200 sinnum yfir múr­stein­ana í Indi­ana­polis á tæp­lega 400 km/h. Helgina 13.-14. júní verður svo keppt í þolakstri í Le Mans í Frakk­landi.

Það er þess vegna sem aðeins einn öku­þór hefur unnið Þrí­krún­una. Sá hét Graham Hill, síð­hærður Breti sem ávalt bar þunnt yfir­vara­skegg, svona eins og til að halda í upp­runann. Hann bjó yfir þeim sér­staka hæfi­leika að geta beislað þrjósku sína og drif­kraft til að vinna sig ein­fald­lega upp á topp­inn. Þeir sem þekktu Graham töldu hann alls ekki vera neinn nátt­úruta­lent þó hann hafi haft burði til að standa í hár­inu á Jim Clark og Jackie Stewart, sem báðir voru góð dæmi um menn sem fengu hæfi­leik­ana í vöggu­gjöf.

Á þeim tíma sem Hill ók (1958 til 1975) þótti það alls ekk­ert til­töku­mál þó bestu öku­menn heims, sem kannski kepptu í Formúlu 1, tækju þátt í öðrum móta­röðum. Þessir menn höfðu það að atvinnu að aka kappakst­urs­bílum hraðar en aðrir, og það gerðu þeir nær allar helgar. Tími Hill var jafn­framt sá tími þar sem öryggi var aðeins smá­mál. Framan af þekkt­ist það varla bíl­arnir væru búnir örygg­is­beltum.

Hann var aldrei tal­inn vera bestur eða lík­leg­astur til að vinna, þvert á móti var hann oft aðeins hepp­inn. Fyrsta heims­meist­ara­tit­il­inn í Formúlu 1 vann hann, þvert á allar spár, eftir að Jim Clark féll úr leik í síð­ustu keppn­inni.

Og Le Mans-kappakst­ur­inn átti hann alls ekki að vinna, þegar hann tók þátt í þetta eina skipti árið 1972. Matra Simca-liðið skráði tvo bíla til leiks og vildi að heima­mað­ur­inn og ungst­irnið François Cevert ynni kappakst­ur­inn. Illa fór hins vegar fyrir Cevert þegar bíll­inn laskað­ist mikið undir hádegi í lok móts­ins, svo Hill vann.

Alonso heillaður

Það var við þessar aðstæður sem Graham Hill vann öll þrjú mótin. Það þurfti hins vegar, rétt eins og í dag, ekki aðeins heppni heldur líka ákveðna aðlög­un­ar­hæfni. Mótin þrjú sem mynda þrí­krún­una eru í grunnin mjög ólíkar keppnir. En hvað er svona sér­stakt?

Formúlu 1 öku­þór­inn Fernando Alonso til­kynnti á dög­unum að hann myndi ekki taka þátt í Formúlu 1-kappakstr­inum í Mónakó í ár vegna þess að hann ætlar að keppa í Indy500-mót­inu sama dag vestan Atlands­hafs­ins. Alonso er tvö­faldur heims­meist­ari í Formúlu 1 og hefur unnið Móna­kó­kappakst­ur­inn tvisvar á ferl­inum, árin 2006 og 2007.

„Ég er búinn að vinna Móna­kó­kappakst­ur­inn tvisvar og það er eitt af mínum mark­miðum í kappakstri að vinna Þrí­krún­una,“ var haft eftir Alonso í Autosport á mið­viku­dag­inn.

„Það er gríð­ar­leg áskorun, en ég er klár í þetta. Ég veit ekki hvenær ég ætla að taka þátt í Le Mans, en einn dag­inn langar mig að gera það. Ég er bara 35 ára. Ég hef nægan tíma.“

Spán­verj­inn Alonso ekur fyrir McLaren-liðið í Formúlu 1 en und­an­farin ár hefur liðið ekki átt góðu gengi að fagna. Honda-vélar liðs­ins hafa verið gall­aðar og Alonso hefur kvartað sáran yfir því að þurfa að berj­ast um síð­asta stiga­sætið í kappök­strum í stað sig­urs.

Það þykir mjög óvana­legt að Formúlu 1-öku­þór skuli geta sagt sig frá keppni í einu móti – án þess að hann sé slas­aður – til þess eins að taka þátt í ann­ari móta­röð. Styrkt­ar­samn­ingar í öllum íþrótta­greinum eru orðnir gríð­ar­lega yfir­grips­miklir og hamlandi hvað þetta varðar.

Alonso hefur gripið tæki­færið til þess að smella einni rós til við­bótar í hatt­inn; Indy500 kappakst­ur­inn fer fram 28. maí 2017, sama dag og kappakst­ur­inn í Mónakó. Sól­ar­hringsakst­ur­inn fer svo fram í Le Mans um miðjan júní.

Monte Carlo, Mónakó - 28. maí 2017

Í Mónakó gildir fágun öku­þórs­ins og geta hans til að sigra vegriðin. Ein mis­tök geta ekki þýtt annað en árekstur við girð­ing­arnar sem umlykja þröng strætin í Monte Carlo. Í tíð Graham Hill áttu öku­menn jafn­vel hættu á alvar­legum áverkum yrðu þeir fyrir óláni.

Fyrir þá sem fá tæki­færi til að keppa í Mónakó bíður þess vegna ekki auð­velt verk. Umstangið í kringum hið árlega Formúlu 1-mót er slíkt að öku­menn stíga oft örþreyttir upp í bíl­ana, eftir kok­teil­boð, tísku­sýn­ingar og mynda­tökur með kvik­mynda­stjörnum og boð í partí um borð í snekkj­unum í höfn­inni. Í kappakstr­inum sjálfum bíður enn meiri raun; Þeir þurfa að hend­ast á hátt í 300 km/h fram hjá lúx­us­hót­elum og snekkju­læg­inu, þar sem fólk stendur svo nálægt og veifar að öku­menn geta kannski greint andit þeirra.

Graham Hill vann þetta mót fimm sinnum, sem var met allt þar til Ayrton Senna vann sinn sjötta sigur í Mónakó 1993. Hill þótti hafa svo mikla yfir­burði í fursta­dæm­inu að hann var stundum kall­aður Mr. Monaco í bresku press­unni sem hafði (auð­vitað) dálæti á honum.

Kappakst­ur­inn í Mónakó hefur verið hald­inn ár hvert síðan árið 1929, að stríðs­ár­unum und­an­skildum. Brautin hlykkj­ast enn um sömu strætin þó þau hafi hnikast aðeins til með tíð og tíma.

Indy 500, Indianapolis - 28. maí 2017

Gríð­ar­legur fjöldi fólks sækir Indi­ana­polis 500-kappakstr­ur­inn ár hvert. Vest­an­hafs er mótið stundum kallað Super Bowl kappakst­urs­ins, enda lang stærsti sjón­varps­við­burður árs­ins þar sem sýnt er frá kappakstri.

Í Indi­ana­polis er vítt til veggja, umhverfis spor­öskju­laga braut þar sem allar beygj­urnar eru til vinstri. Þar keppa líka mun fleiri en í Mónakó (á ráslín­unni árið 2015 voru 33 bílar) svo það eitt að lenda ekki í sam­stuði getur reynst flókið, sér­stak­lega fyrstu hring­ina.

Keppnin sjálf varir eins lengi og fremsta manni tekst að kom­ast yfir 500 mílur. Það gera nákvæm­lega 200 ferðir yfir múr­steina­röð­ina frægu þar sem köflótta flaggið fellur. Kappakst­ur­inn í ár mun að öllum lík­indum vara í tæpa þrjá klukku­tíma, svo það er auð­velt að sjá að öku­menn verða að temja ein­beit­ing­una sér­stak­lega umhverfis þessa ein­hæfu braut.

Graham Hill keppti þrisvar í Indi­ana­polis en tókst aðeins einu sinni að klára. Það var í frumraun­inni þegar hann kom fyrstur í mark 1966. Strax í ræs­ingu varð mikið slys og stöðva þurfti kappakst­ur­inn í nokkra stund áður en öku­mönnum var gert að herða hug­ann og keppa. Á mín­útu 10 í mynd­band­inu hér að ofan má sjá slysið.

Keppt hefur verið umhverfis braut­ina í Indi­ana­polis nær óslitið síðan 1911, að stríðs­ár­unum und­an­skildum. Fyrsta mótið stóð í tæpar sjö klukku­stundir.

Circuit de la Sarthe, Le Mans - 17. til 18. júní 2017

Sól­ar­hringsakst­ur­inn í Le Mans er mikil þol­raun fyrir öku­menn. Þar er ekið sér­smíð­uðum götu­bílum eftir þjóð­vegum í norð­an­verðu Frakk­landi. Mark­miðið er að koma sama bílnum fyrstum í mark þegar 24 klukku­stundir eru liðnar en það geta allt að þrír öku­þórar deilt sama bílnum í kappakstr­inum.

Það getur því verið flókið fyrir kappakst­ursöku­þór sem er vanur því að sitja einn að sínum bíl að þurfa að deila tæk­inu með öðrum. Til þess þarf hann að taka til­lit til hinna við upp­still­ingu og und­ir­bún­ing fyrir mótið, sem getur reynst erfitt.

Þegar Graham Hill var ráð­inn til að aka fyrir Matra Simca árið 1972 var þar fyrir franskur öku­þór að nafni Henri Pescarolo sem leist alls ekki vel á þetta breska „snobb­hæsn“. Og það var stirt milli þeirra innan liðs­ins til að byrja með, en Hill tókst með frá­bærum og hetju­legum akstri í myrkri nótt­inni að sann­færa Pescarolo um ágæti sitt.

Akst­ur­inn í myrkr­inu er nefni­lega það sem hefur oft skorið úr um hver eigi eftir að vinna í Le Mans. Brautin liggur eftir löngum og ójöfnum vegi áður en Mulsanne-beygj­urnar birt­ast skyndi­lega í ljós­skímunni frá bílnum sem nær aldrei nógu langt þegar ekið er á meira en 300 km/h.

Í mynd­band­inu hér að ofan má sjá braut­ina með augum öku­manns árið 1977, áður en henni var breytt líti­lega til að minnka hraða. Þegar ein mín­úta er liðin af mynd­band­inu er ekið eftir veg­inum til Mulsanne og þegar tæpar tvær mín­útur eru liðnar birt­ast Mulsanne-beygj­urnar óvænt. Ímyndaðu þér að aka þetta í myrkri.

Verður afrekið endurtekið?

Það er ljóst af þessu að afburða hug­rekki þarf til að geta unnið Þrí­krún­una. Hug­rekkið þarf ekki aðeins að vera um borð í bílnum heldur einnig í ákvörð­un­ar­töku, því sé maður sig­ur­sæll í einni móta­röð er ekki þar með sagt að lukkan leiki við mann ann­ar­staðar.

Fleiri Formúlu 1-öku­menn tóku þátt í Indy 500 á tímum Graham Hill. Hæfi­leika­menn eins og Clark og Stewart kepptu þar en þrátt fyrir það liðu nærri 40 ár þar til nokkrum öðrum tókst að vinna bæði Indy 500 og í Mónakó.

Það þykir hins vegar vera óvinn­andi verk fyrir nútíma öku­þór að vinna þrí­krún­una í dag. Mikill vöxtur varð í „open-wheeler“ kappakstri vest­an­hafs á níunda og tíunda ára­tugnum. Til marks um það sagði Nigel Mansell skilið við Formúlu 1 eftir að hafa orðið heims­meist­ari 1992 og keppti í IndyCar-móta­röð­inni í Banda­ríkj­unum og varð meist­ari þar líka árið 1993.

Árið 1996 varð hins vegar klofn­ingur meðal þátt­tak­enda í IndyCar með þeim afleið­ingum að vin­sældir mótar­að­ar­innar og styrk­leiki minnk­aði gríð­ar­lega. Í dag hefur móta­röð­unum verið steypt aftur saman en sú nýja er alls ekki talin jafn öflug og áður. Það er því ólík­legt að öku­þór í IndyCar-móta­röð­inni fái samn­ing hjá sig­ur­sælu liði í Formúlu 1, eins og málin standa nú.

Þá er auð­vitað ótalin sú stað­reynd að kappakstur nútím­ans er orð­inn of mark­aðsvæddur og flók­inn, auk þess sem sam­keppnin er orðin mun harð­ari en áður þekkt­ist. Það skal þó aldrei segja aldrei. Enn keppir einn öku­þór sem unnið hefur tvö mót af þremur.

Það er Juan Pablo Montoya frá Kólumbíu sem vann Indy 500-kappakst­ur­inn í sinni fyrstu atrenu árið 2000. Árið 2003 vann hann í Mónakó, þegar hann ók fyrir Williams-liðið í Formúlu 1. Hann keppir nú í IndyCar og tekur þátt í Indy 500-mót­inu á morgun.

Fernando Alonso hefur tek­ist að brjóta mark­aðsvæð­ingu kappakst­urs­ins á bak aftur og nýtir sér aug­lýs­inga­samn­inga beggja vegna Atl­ants­hafs­ins til þess að láta draum­inn verða að veru­leika. Hann hefur hins vegar aðeins unnið einn kappakstur af þremur. Það er því verk að vinna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kappakstur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár