Trump fær að snúa aftur í Hvíta húsið

Donald Trump verður fluttur af Walter Reed-spít­al­anum í kvöld og aftur í Hvíta húsið. Hann mun halda áfram að fá lyfið rem­devisir þegar þangað er komið. For­set­inn segir að honum líði betur en fyrir 20 árum síðan.

Donald Trump fór í umdeildan bíltúr í gær og veifaði stuðningsmönnum sínum.
Donald Trump fór í umdeildan bíltúr í gær og veif­aði stuðn­ings­mönnum sínum. Mynd: Hvíta húsið

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti segir að hann muni yfir­gefa Walter Reed-sjúkra­húsið í Washington í kvöld. Þessu lýsti hann yfir á Twitter. „Líður mjög vel! Ekki vera hrædd við Covid. Ekki láta það stjórna lífi ykkar,“ skrif­aði for­set­inn.



Hann bætti því við að búið væri að þróa „frá­bær lyf og þekk­ingu“ við veirunni og gaf í skyn að það væri Trump-stjórn­inni að þakka. „Mér líður betur en fyrir 20 árum síðan!“ sagði Trump í tísti sínu.



Læknateymi for­set­ans á Walter Reed-spít­al­anum steig fram á blaða­manna­fundi skömmu eftir að for­set­inn sendi þessi skila­boð frá sér. Þar stað­festi Sean Conley, læknir for­set­ans, að Trump yrði fluttur í Hvíta húsið í kvöld eftir að honum yrði gef­inn næsti skammtur af lyf­inu rem­devisir, sem beitt er gegn COVID-19. Hann er sagður hafa svarað lyfja­með­ferð­inni vel.

Hann mun fá annan skammt af rem­devisir á morgun, þriðju­dag, og halda áfram að vera í umsjá fær­ustu lækna allan sól­ar­hring­inn, að sögn Conley.

Spurður út í ástand for­set­ans og bata­horfur sagði Conley að Trump væri ekki alveg hólp­inn, en almennt var á honum að skilja að hlut­irnir litu ágæt­lega út fyrir hönd for­set­ans, sem hefur verið á spít­ala vegna COVID-19 síðan á föstu­dag­inn, en greint var frá því að hann væri með sjúk­dóm­inn á fimmtu­dags­kvöld.

Erfitt hefur reynst fyrir fjöl­miðla að fá áreið­an­legar upp­lýs­ingar um ástand hans yfir helg­ina og hafa mis­vísandi upp­lýs­ingar komið frá læknateym­inu sem ann­ast hann. Þó er vitað að tví­vegis hefur lækk­andi súr­efn­is­mettun í blóði for­set­ans gefið til­efni til þess að hann fái súr­efn­is­gjöf.

Trump hefur einnig fengið stera­lyfið dexa­meta­són, sem hefur verið notað til þess að takast á við alvar­leg til­felli sjúk­dóms­ins. Sýnt hefur verið fram á það í rann­sóknum, t.d. á vegum Lyfja­stofn­unar Evrópu, að við­bót­ar­með­ferð með dexa­meta­sóni getur minnkað lík­urnar á því að þeir COVID-19 sjúk­lingar sem fá súr­efn­is­gjöf eða þurfa að leggj­ast í önd­un­ar­vél láti lífið.

Conley læknir sagð­ist ekki geta rætt nið­ur­stöður úr lungna­mynda­tökum for­set­ans við fjöl­miðla vegna laga­legra tak­mark­ana á því hvað læknum er heim­ilt að gefa upp um ástand sjúk­linga sinna, á blaða­manna­fund­inum í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár