Hafnaði bótatilboði ríkisins og undirbýr málsókn

Guðjón Skarp­héð­ins­son, einn þeirra sem Hæsti­réttur sýkn­aði í Guð­mundar- og Geir­finns mál­inu, náði ekki sam­komu­lagi við sátta­nefnd stjórn­valda varð­andi bætur. Lögmaður hans segir að næstu skref séu að und­ir­búa mál­sókn.

Verjendur fyrrum sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálið
Verj­endur fyrrum sak­born­inga í Guð­mundar- og Geir­finns­málið Mynd: Skjáskot.

Guðjón Skarp­héð­ins­son, einn þeirra sem sýkn­aður var í Hæsta­rétti í sept­em­ber í fyrra í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu, náði ekki sam­komu­lagi við sátta­nefnd stjórn­valda varð­andi miska- og skaða­bætur. Ragnar Aðal­steins­son, lög­maður Guðjóns, segir að næstu skref séu að und­ir­búa mál­sókn þar sem ríkið virð­ist ekki vilja ná sáttum. Frá þessu er greint á RÚV.

Bótatilboð ríkisins of lágt

[links]Í sept­em­ber árið 2018 sýkn­aði Hæsti­réttur fimm sak­born­inga af öllum ákæru­liðum í end­ur­upp­töku á einu umdeildasta saka­máli 20. ald­ar­inn­ar, Guð­mund­ar- og Geir­finns­máls­inu, nærri því 40 árum eftir að dóm­ur­inn féll í Hæsta­rétti árið 1980. ­For­sæt­is­ráð­herra ­skip­aði í kjöl­farið sátta­nefnd sem leiða átti sátta­um­leitun við aðila máls og aðstand­endur þeirra. Nefndin átti jafn­framt að gera til­lögur um hugs­an­lega greiðslu miska- og skaða­bóta eða eftir atvikum svo­nefndra sann­girn­is­bóta til aðila máls­ins og aðstand­enda þeirra.

Frétta­blaðið greindi síðan frá því í lok apríl að upp­­haf­­lega hefðu stjórn­­völd hyggst verja til sátt­anna í Guð­mund­ar- og Geir­finns­mál­inu 400 millj­­ónum en nú hefði sú upp­­hæð verið hækkuð í 600 millj­­ónir til að liðka fyrir við­ræð­un­um. Þeirri upp­hæð yrði síðan deilt á milli hinna sýkn­uðu meðal ann­­ars eftir lengd frels­is­­svipt­ing­­ar.

Ragnar Aðal­steins­son sagði í við­tali í Silfr­inu fyrr í mán­uð­inum að það hljóti að hafa orðið ein­hver mis­tök hjá stjórn­völdum þegar upp­hæð miska­bóta í mál­inu var ákveð­in. Enn fremur greindi hann frá því að hann hafi krafið ríkið um miska­bætur upp á rúman millj­arð og atvinnu­tjón nálægt 120 milj­ónum fyrir hönd síns skjól­stæð­ings. Hann seg­ist hafa mið­aði upp­hæð bót­anna við það for­dæmi sem hann einna helst hafi en það er dómur Hæsta­réttar frá 1983, í málum svo­nefndra Klúbbs­manna.

Næstu skref að undirbúa málsókn

Í morgun greindi Frétta­blaðið síðan frá því að Guðjón hafi hafnað bóta­til­boði sátta­nefndar stjórn­valda. Andri Árnason, settur rík­is­lög­maður í mál­inu, er hins vegar ekki búin að taka form­lega afstöðu til kröfu Guðjóns en þar sem ekki var gengið að henni við borð sátta­nefndar þá segir blaðið að ólík­legt sé að henni verði annað en hafnað.

Ragnar sagði í sam­tali við frétta­stofu RÚV í morgun að ekk­ert form­legt til­boð hafi komið fram frá sátta­nefnd en að nefndin hafi verið að ræða tölur á bil­inu 120 til 150 millj­ónir króna. Hann sagði að því virð­ist sem ríkið vilji ekki ná sáttum og því séu næstu skref í máli Guðjóns hefja und­ir­bún­ing að mál­sókn. „Ég tel ekki að ríkið vilji ræða sættir áfram. Ég veit ekki hvort það hafi áhuga á sáttum,” sagði Ragnar.

Þá sagð­ist Ragnar jan­framt að hann hefði ekki heyrt af því hvort að nið­ur­staða væri komin í mál hinna máls­að­il­anna sem sýkn­aðir voru í Hæsta­rétti síð­asta haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár