Ungir, pólitískir blaðamenn og stjórnmálafræðingar algengir aðstoðarmenn

Kjarninn kann­aði hvaða reynslu aðstoð­ar­menn ráð­herra í Danmörku og í Noregi hafa. Flestir til­heyra flokki ráð­herr­ans.

Nýjasti danski ráðherrann, Peter Christensen.
Nýjasti danski ráð­herr­ann, Peter Christensen. Mynd: EPA

Staða aðstoð­ar­manna ráð­herra hefur verið í umræð­unni á Íslandi und­an­farið, líkt og reyndar ger­ist reglu­lega. Fyrir skömmu fjall­aði Kjarninn um reynslu núver­andi aðstoð­ar­manna ráð­herra hér á landi og um helg­ina var við­tal við Sölku Margréti Sig­urð­ar­dóttur, sem er aðstoð­ar­maður ráð­herra í Bret­landi.

Aðstoð­ar­menn ráð­herra á Íslandi telj­ast til póli­tískra ráð­gjafa eða póli­tísks aðstoð­ar­fólks í aðþjóð­legu sam­hengi. Þegar titlar þeirra eru þýddir yfir á ensku er enda iðu­lega talað um political advisor, póli­tískan ráð­gjafa. Samkvæmt athugun OECD frá árinu 2011, sem vitnað er til í fræði­grein Gests Páls Reyn­is­sonar og Ómars H. Krist­munds­sonar, sinna póli­tískir ráð­gjafar meðal ann­ars ráð­gjöf vegna stefnu­mála, almanna­tengslum og fjöl­miðla­sam­skiptum, sam­skiptum við hags­muna­að­ila og flokks­menn ráð­herra. Það fer svo eftir reglum og hefðum á hverjum stað hvaða verk­efni eru fyr­ir­ferða­mest.

Kjarninn kann­aði hvernig þessum málum er háttað í nágranna­lönd­unum Danmörku og Noregi.

Blaðamenn og stjórnmálafræðingar áberandi í Danmörku

Í Danmörku hafa ráð­herrar sér­staka ráð­gjafa, sær­lige råd­gi­vere, sem eru fyrst og fremst póli­tískir ráð­gjafar. Að öðru leyti hefur ekki verið mikið um póli­tískt starfs­lið í ráðu­neytum þar. Flestir ráð­herrar hafa einn ráð­gjafa, en utan­rík­is­ráð­herra hefur tvo, sem gerir sam­tals sautján ráð­gjafa, sam­kvæmt sam­an­tektum danska stjórn­ar­ráðs­ins og fjöl­mið­ils­ins Altinget.dk. Þá hefur kirkju- og menn­ing­ar­mála­ráð­herr­ann Bertel Haarder ákveðið að vera ekki með aðstoð­ar­mann.

Stjórn­mála­fræð­ingar og blaða­menn eru áber­andi meðal aðstoð­ar­mann­anna, auk þess sem margir hafa starfað í stjórn­málum og fyrir stjórn­mála­flokka. Þeir hafa líka margir verið sér­legir ráð­gjafar ráð­herra í fyrri rík­is­stjórnum, og eiga því margir sam­eig­in­legt að vera nokkuð reynslu­miklir.

Jacob Bruun, ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra, er með tíu ára reynslu sem póli­tískur ráð­gjafi hjá Venstre og er stjórn­mála­fræð­ingur. Søren Møller Andersen, ráð­gjafi fjár­mála­ráð­herra, hefur fjög­urra ára reynslu sem póli­tískur ráð­gjafi, meðal ann­ars hjá fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra. Hann hefur einnig mikla reynslu í ráðu­neytum og hefur starfað að upp­lýs­inga- og fjöl­miðla­málum fyrir fyr­ir­tæki og fyrir Venstre.

Eini ráð­herr­ann sem hefur tvo ráð­gjafa er utan­rík­is­ráð­herr­ann Kristian Jensen. Christopher Arzrouni, annar aðstoð­ar­mann­anna, er stjórn­mála­fræð­ingur og starf­aði sem umræðu­rit­stjóri hjá Børsen frá 2011 og þar til hann tók við starfi aðstoð­ar­manns. Hann hefur líka starfað fyrir ráðu­neyti og verið aðstoð­ar­maður ráð­herra áður, auk þess sem hann hefur starfað fyrir Venstre. Peter Høyer er mennt­aður blaða­maður og kom í ráðu­neytið frá mennta­mála­ráðu­neyt­inu, þar sem hann var upp­lýs­inga­full­trúi. Hann var líka aðstoð­ar­maður skatta­mála­ráð­herra frá 2004 til 2011. Áður var hann almanna­teng­ill og ráð­gjafi. Upp­lýs­ingar um aðra ráð­gjafa má finna hér.

Ungur aldur vakti athygli í Noregi

Staða póli­tísks ráð­gjafa í norska stjórn­ar­ráð­inu varð til úr tveimur störfum, ann­ars vegar einka­rit­ara og hins vegar aðstoð­ar­manns ráð­herra. Árið 1992 var búin til staða póli­tísks ráð­gjafa í stað hinna tveggja starf­anna. Þar tíðkast hins vegar að póli­tískir aðstoð­ar­ráð­herrar eða ráðu­neyt­is­stjórar séu í starfs­liði ráð­herra.

Ráð­gjaf­arnir hjá norsku rík­is­stjórn­inni eru nítján tals­ins, og eru allir póli­tískir. Greint er frá því hvaða flokki þau til­heyra á vef­síðum ráðu­neyta. Margir aðstoð­ar­mann­anna hafa auk þess fyrri reynslu af póli­tískri ráð­gjöf, en segja má að ungir og reynslu­meiri aðstoð­ar­menn séu í bland í hópnum.

Erna Solberg for­sæt­is­ráð­herra hefur tvo póli­tíska ráð­gjafa, Hans Christian Kaurin Hansson og Benedicte Staalesen Nilsen sem er í hluta­starfi í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og hinn hlut­ann í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Hins vegar eru sjö póli­tískir aðstoð­ar­ráð­herrar, eða ráðu­neyt­is­stjórar, einnig í ráð­gjaf­arteymi for­sæt­is­ráð­herr­ans. Hansson tók við starf­inu í fyrra eftir að hinn ungi Rolf Erik Tvedten hætti, en aldur Tvedten hafði vakið athygli þegar hann var ráð­inn til aðstoðar við Solberg eftir kosn­ingar. Hann var m.a. kall­aður undra­barnið hennar. 

Hansson hafði starfað um stutta hríð í sam­skipta­málum fyrir Hægri­flokk­inn áður en hann var ráð­inn aðstoð­ar­maður. Hann var áður blaða­maður um margra ára skeið, lengst af hjá VG.

Siv Jensen fjár­mála­ráð­herra er með fjóra aðstoð­ar­ráð­herra og einn aðstoð­ar­mann í sínu ráðu­neyti. Petter Kvinge Tvedt er aðstoð­ar­maður hennar en hann hafði verið póli­tískur ráð­gjafi á ýmsum sviðum í borg­ar­stjórn Bergen í átta ár áður en hann flutt­ist í fjár­mála­ráðu­neytið. Hann hefur starfað fyrir Fram­fara­flokk­inn og hefur setið í bæj­ar­stjórn fyrir flokk­inn.

Í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu eru tveir ráð­herrar. Børge Brende er utan­rík­is­ráð­herra og Elisa­beth Aspaker er ráð­herra EES og Evr­ópu­sam­bands­mála. Þau hafa þrjá und­ir­ráð­herra og svo sitt hvorn póli­tíska ráð­gjafann. Benedicte Staalesen Nilsen hefur starfað sem ráð­gjafi borg­ar­stjóra í Stavan­ger og einnig sem ráð­gjafi hjá Statoil og Nordic Energy Research auk þess sem hún hafði verið starfs­nemi í sendi­ráð­inu í London. Hún hefur bæði BA og meistara­gráðu í evr­ópskum fræðum. Peder Weidemann Egseth hafði líka verið ráð­gjafi innan Hægri­flokks­ins og starfað hjá Danske bank áður en hann tók við starfi aðstoð­ar­manns.

Pólitískt starfslið mjög lítið á Íslandi

Pólitísk for­ysta í ráðu­neytum er ólík eftir löndum. Víða ann­ars staðar en á Íslandi tíðkast að hafa aðstoð­ar­ráð­herra, sem eru póli­tískir, póli­tíska ráð­gjafa eða aðstoð­ar­menn og póli­tíska ráðu­neyt­is­stjóra. Á Íslandi er póli­tískt starfs­lið ráð­herra mjög lítið í sam­an­burð­inum.

Í Svíþjóð og Noregi eru póli­tískir ráðu­neyt­is­stjórar, eða aðstoð­ar­ráð­herrar, sem eru skip­aðir af for­sæt­is­ráð­herra. Í Noregi eru einnig emb­ætt­is­menn sem fara með stjórn ráðu­neyt­anna, en í Svíþjóð eru þessir aðstoð­ar­ráð­herrar með stöðu svip­aða ráðu­neyt­is­stjórar á Íslandi og í Danmörku. Þetta kemur fram í grein Ómars H. Krist­munds­sonar pró­fess­ors um bak­grunn aðstoð­ar­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár