Leigutekjur drógust saman á árinu 2020 í fyrsta sinn í langan tíma

Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hafði umtals­verð áhrif á tekjur þeirra sem eiga íbúðir eða annað hús­næði sem leigt er út. Upp­gefnar leigu­tekjur skruppu saman um 6,3 millj­arða króna á árinu 2020.

Leigu­tekjur Íslend­inga á árinu 2020 skruppu saman um 6,3 millj­arða króna milli ára og voru alls 17 millj­arðar króna. Þar af voru tekjur af leigu íbúð­ar­hús­næðis 15,3 millj­arðar króna, sem er 705 millj­ónum króna minna en árið 2019. Leigu­tekjur af öðrum eignum voru svo 1,7 millj­örðum krónum, eða 448 millj­ónum krónum lægri en árið áður.

Þetta kemur fram í umfjöllun um álagn­ingu ein­stak­linga á árinu 2021 í Tíund, frétta­blaði Skatts­ins, sem Páll Kol­beins rekstr­ar­hag­fræð­ingur skrif­ar.

Þetta er í fyrsta sinn í mörg ár sem þessar tekjur drag­ast saman og fyr­ir­liggj­andi að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur þar haft umtals­verð áhrif. Útleiga á íbúð­ar­hús­næði til ferða­manna dróst til að mynda veru­lega saman og mikil efna­hags­leg áhrif far­ald­urs­ins á ýmis fyr­ir­tæki gerðu það að verkum að þau gátu ekki staðið undir leigu­greiðslum fyrir hús­næði sem þau nýttu eða þurftu að end­ur­semja um leigu. Sum lögðu ein­fald­lega upp laupanna. Aukin heima­vinna gerði það síðan að verkum að þörf fyrir skrif­stofu­rými dróst veru­lega saman.

Fyrir vikið fækk­aði þeim sem töldu fram leigu­tekjur umtals­vert milli ára, úr 10.284 í 9.969. Mestu mun­aði um að færri töldu fram tekjur af öðru hús­næði en íbúð­ar­hús­næði fækk­aði um 293. Þá voru 8.568 fjöl­skyldur með tekjur af leigu íbúð­ar­hús­næðis, sem var 77 færra en árið áður.

35 prósent íbúða í eigu þeirra sem eiga fleiri en eina

Kjarninn greindi frá því í lok síð­asta árs að alls eiga 71 ein­stak­lingar og 382 lög­að­ilar fleiri en sex íbúð­ir, 155 ein­stak­lingar og 101 lög­að­ilar eiga fimm íbúðir og 579 ein­stak­lingar og 165 lög­að­ilar eiga fjórar íbúð­ir. Fjöldi þeirra ein­stak­linga sem eiga þrjár íbúðir er 2.974 og fjöldi lög­að­ila sem eiga sama magn íbúða er 285. Þá eiga 16.501 ein­stak­lingur og 688 lög­að­ilar tvær íbúð­ir.

Þetta kom fram í svari Þjóð­skrár við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um mál­ið. Vert er að taka fram að ein­stak­lingur eða lög­að­ilar geta verið eig­endur að sömu eign­un­um.

[adspot]Þjóð­skrá hóf að birta upp­lýs­ingar um eign­ar­hald íbúða í nóv­em­ber í fyrra. Í þeim tölum sem stofn­unin birtir á heima­síðu sinni má sjá hversu margar þeirra þeirra 148.425 íbúða sem telj­ast full­búnar á Íslandi voru í eigu ein­stak­linga eða lög­að­ila sem áttu bara eina íbúð og hversu margar voru í eigu aðila sem áttu fleiri en eina íbúð.

Í töl­unum má sjá að 35,1 pró­sent íbúða var í eigu ein­stak­linga eða lög­að­ilar sem áttu fleiri en eina íbúð, alls 52.079 íbúð­ir. Það hlut­fall hefur hald­ist nokkuð stöðugt á síð­ustu árum en hefur hækkað skarpt frá því sem var fyrir 15 árum, þegar 28,5 pró­sent íbúða voru í eigu aðila sem áttu fleiri en eina íbúð.

Greiðslu­­byrði sem telj­­ast má íþyngj­andi

Í árlegri könnun Hús­næð­is- og mann­­virkja­­stofn­unar (HMS) á íslenska leig­u­­mark­aðn­­um, sem fram­­kvæmd var frá júní til sept­­em­ber 2021 og nær til ein­stak­l­inga 18 ára og eldri sem eru á leig­u­­mark­aði á land­inu öllu, kom fram að hlut­­fall ráð­­stöf­un­­ar­­tekna allra leigj­enda sem fer í leigu sé nú 45 pró­­sent. Það var 40 pró­­sent 2019.

[links]Sam­­kvæmt HMS gefur það hlut­­fall til kynna mjög mikla greiðslu­­byrði að með­­al­tali sem telj­­ast megi íþyngj­andi. Í umfjöllun um könn­un­ina er þó tekið fram að aukn­ing­una á hlut­­fall­inu megi að hluta til skýra með því að tekju- og eigna­­meiri leigj­endur náðu að kom­­ast af leig­u­­mark­aði og yfir í eigið hús­næði á tíma­bil­inu.

Í sömu könnun kom fram að leigj­endur hjá einka­reknum leigu­fé­lögum og ein­stak­l­ingum á almennum mark­aði voru með næst­hæsta hlut­­fall þeirra sem greiddu 70 pró­­sent eða meira af ráð­­stöf­un­­ar­­tekjum sínum í leigu, eða 13 pró­­sent. Ein­ungis leigj­endur á stúd­­enta­­görð­um, að upp­i­­­stöðu náms­­menn með lágar tekj­­ur, voru með hærra hlut­­fall þeirra sem greiddu svo stóran hluta ráð­­stöf­un­­ar­­tekna í leigu, eða 15 pró­­sent.

Hlut­­fall þeirra sem greiddi helm­ing eða meira af ráð­­stöf­un­­ar­­tekjum sínum í leigu var hins vegar lang­hæst hjá einka­reknum leigu­fé­lög­unum, sam­tals 44 pró­­sent. Til sam­an­­burðar var það hlut­­fall 26 pró­­sent hjá óhagn­að­­ar­drifnum leigu­fé­lögum og 23 pró­­sent hjá þeim sem leigðu af ætt­­ingjum eða vin­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár