Innviðaráðuneyti ósammála Persónuvernd um nauðsyn uppflettinga í málaskrá

Allir sem vinna á flug­vernd­ar­svæði, til að mynda inni á Kefla­vík­ur­flug­velli, þurfa sér­staka aðgangs­heim­ild að svæð­inu og til að sækja um slíka heim­ild þarf lög­regla að fram­kvæma bak­grunns­skoðun. Sú bak­grunns­skoðun er full ítar­leg að mati Per­sónu­verndar.

Innviðaráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson í þingsal.
Inn­við­a­ráð­herra Sigurður Ingi Jóhanns­son í þing­sal. Mynd: Bára Huld Beck

Inn­við­a­ráðu­neytið telur ekki þörf á að gera breyt­ingar á ákvæði í lögum um loft­ferðir í sam­ræmi við óskir Per­sónu­verndar. Ákvæðið snýr að heim­ild lög­reglu til þess að fletta upp í mála­skrá ein­stak­linga sem þurfa að sæta bak­grunns­at­hugun áður en þeir geta talist hæfir til að fá heim­ild að hafta­svæði flug­verndar. Í umsögn Per­sónu­verndar við nýttlaga­frum­varp um loft­ferðir segir að vinnsla per­sónu­upp­lýs­inga eigi ekki að vera meiri en nauð­syn­legt þyki og að í mála­skrám lög­reglu séu oft nær­göngular upp­lýs­ingar sem fela oft í sér óstað­festar grun­semdir.

Allir þeir sem sækja um aðgangs­heim­ild að hafta­svæði flug­valla þurfa að und­ir­gang­ast bak­grunns­skoðun. Hafta­svæði flug­verndar nær meðal ann­ars yfir öll brott­far­ar­svæði far­þega á milli vopna­leitar og flug­vélar, flug­hlað og flokk­un­ar­svæði. Því þurfa allir sem til dæmis starfa á þessum svæðum á Kefla­vík­ur­flug­velli að sækja um aðgangs­heim­ild og und­ir­gang­ast bak­grunns­skoðun. Í kjöl­farið þarf umsækj­andi svo að ljúka nám­skeiði um flug­vernd­ar­vit­und.

Samkvæmt upp­lýs­ingum á vef ISAVIA er bak­grunns­skoðun skil­greind sem: „Athugun á því hver ein­stak­lingur er og upp­lýs­ingum lög­reglu um saka­feril hans, þ.m.t. hvort hann eigi afbrota­feril að baki, sem lið í mati á því hvort óhætt er að heim­ila honum aðgang að hafta­svæði flug­verndar án fylgdar og við­kvæmum trún­að­ar­upp­lýs­ingum um flug­vernd.“

Í áður­nefndu frum­varpi um loft­ferðir er fjallað um fram­kvæmd athug­unar á bak­grunni í 159. grein. Þar segir að í athugun á bak­grunni felst skoðun lög­reglu á upp­lýs­ingum um ein­stak­ling sem veitt hefur heim­ild til fram­kvæmd­ar­innar. Upp­lýs­inga­öfl­unin feli meðal ann­ars í sér skoðun á skrám lög­reglu, þar með talið mála­skrá, saka­skrá og skrám dóm­stóla, upp­lýs­inga­kerfi Alþjóða­lög­regl­unnar og ann­arra erlendra yfir­valda og stofn­anna, upp­lýs­inga­kerfum toll­yf­ir­valda og loks upp­lýs­inga­kerfi Þjóð­skrár.

Ósönnuð mál megi finna í málaskrá

Líkt og áður segir gerir Per­sónu­vernd athuga­semd við það að lög­reglu sé heim­ilt að fletta upp í mála­skrá við fram­kvæmd bak­grunns­skoð­unar. „Hvað varðar hina almennu bak­grunns­at­hugun í þágu flug­verndar er til þess að líta að í reglu­gerð (ESB) 2015/1998, með síð­ari breyt­ingum, er ein­ungis vísað til saka­skrár­upp­lýs­inga (e. Criminal record), sbr. b-lið greinar 11.1.3 og b-lið greinar 11.1.4 í við­auka við reglu­gerð­ina,“ segir í umsögn Per­sónu­verndar.

Því sé gengið lengra í frum­varp­inu en efni reglu­gerð­ar­innar gefur til­efni til hvað varðar skoðun í mála­skrá lög­reglu. „Þá er til þess að líta að sumt af því sem skráð er í mála­skrá, þ.e. í málum sem ekki hefur lokið með sekt­ar­gerð eða dómi, verður að telj­ast ósannað,“ segir enn fremur í umsögn­inni.

Per­sónu­vernd telur að á því þurfi að vera mjög rík þörf ef nýta á upp­lýs­ingar úr mála­skrá lög­reglu í þágu ann­ars en lög­gæslu og rann­sóknar saka­mála, „en ljóst er að slíkar upp­lýs­ingar geta verið mjög nær­göngular og fela oft í sér óstað­festar grun­semdir. Verði á annað borð litið svo á að hér sé slík þörf fyrir hendi telur Per­sónu­vernd þörf á að afmarkað verði með skýrum hætti í laga­texta hvers konar upp­lýs­inga afla megi úr mála­skrá lög­reglu.“ Að öðrum kosti telji Per­sónu­vernd að fella ætti til­vísun til mála­skrár lög­reglu brott úr frum­varp­inu.

Í nið­ur­lagi umsagn­ar­innar ítrekar stofn­unin að við alla vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga þurfi að hafa hlið­sjón af meg­in­reglum laga sem lúta að því að þær per­sónu­upp­lýs­ingar sem unnið er með hverju sinni séu nægi­legar, við­eig­andi og ekki umfram það sem nauð­syn­legt er miðað við til­gang vinnsl­unnar.

Ákvæðið óbreytt frá núgildandi lögum

Í minn­is­blaði inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins segir að það telji ekki þörf á að gera breyt­ingar á ákvæð­inu. Fyrir því séu nokkrar skýr­ingar. Í fyrsta lagi bendir ráðu­neytið á að ákvæðið sem um ræðir sé nú þegar í núgild­andi lögum um loft­ferðir. Þegar núgild­andi frum­varp var afgreitt bár­ust sam­bæri­legar athuga­semdir frá Per­sónu­vernd.

„Í umsögn Per­sónu­verndar þá, líkt og nú, sagði að „heim­ild til nýt­ingar upp­lýs­inga ætti að fara eftir því hvort hún sé í raun nauð­syn­leg í þágu lög­mæts og mál­efna­legs til­gangs“ og bent á að „mat lög­reglu eitt og sér ætti því ekki að geta rennt stoðum undir lög­mæti nýt­ing­ar­innar“,“ segir í minn­is­blaði inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins.

Færð eru frek­ari rök fyrir því hvers vegna þessi heim­ild ætti að vera í lögum um loft­ferðir í minn­is­blað­inu. Þar segir að reglur um bak­grunns­at­hug­anir séu settar í því skyni að koma í veg fyrir að ein­stak­lingar með vafa­saman bak­grunn kom­ist inn á svæði sem eru háð aðgangs­tak­mörk­unum af örygg­is­á­stæðum. Enn fremur til að tak­marka ógn af hryðju­verkum og öðrum ólög­mætum aðgerðum á borð við smygl á vopnum, fíkni­efnum og sprengi­efnum milli landa. „Sjón­ar­mið um öryggi, líf og heilsu lands­manna vega þungt og má telja í því ljósi að almanna­hags­munir krefj­ist þess að þeir ein­stak­lingar sem fái aðgang að hafta­svæðum gang­ist undir ítar­lega bak­grunns­at­hugun.“

„Rétt er að benda á að saka­vott­orð eru alltaf skoðuð áður en mála­skráin er skoðuð,“ segir í minn­is­blað­inu en það er nokkuð óljóst hvaða þýð­ingu það hefur, enda segir strax í kjöl­farið: „Reynslan hefur því miður sýnt að saka­vott­orð, þó þau nái tíu ár aftur í tím­ann, gefa oft ekki rétta mynd af við­kom­andi og duga skammt til að meta hvort ein­stak­lingur er hæfur til að fá jákvæða umsögn. Til­gangur ákvæð­is­ins er fyrst og fremst að bak­grunns­at­hugun sé full­nægj­andi og trú­verðug.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár