Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Berlín

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Það er lygi. Ég var of bug­aður til að blogga í gær og núna er mánu­dag­ur­inn 1. des­em­ber. Frídagur.

Við vökn­uðum allir frekar hell­aðir í gær og mig grunar að rauð­vínið hans Böbba hafi haft með það að gera. Það var alveg djöf­ull vont. Stór partur var kannski sá að við gátum hvergi lagt rút­unni í Berlín, við höfðum jú næt­ur­stað á ein­hverju random bíla­stæði, en þegar Robert renndi henni upp að venjúinu um hádegið var hvergi pláss fyrir okkur. Við máttum því tæma draslið úr henni, hljóð­færi og annað haf­urtask, og svo sáum við á eftir henni burtu. Það hefði svo sem verið sök sér nema hversu öll aðstaða bak­sviðs var þröng. Ég var orð­inn hund­brjál­aður í skap­inu eftir svona 20 mín­útur, en var svo sem bæði nývakn­aður og kol­ryðg­aður. Við fundum okkur kaffi­hús gegnt tón­leika­staðnum og drukkum kaffi. Það dug­aði samt bara alls ekk­ert til.

[caption id="attachment_13543" align="alignnone" width="3264"] Par­tytime, excellent! Bibbi í góðum gír bak­sviðs.[/caption]

Sándtékk gekk vel og reyndar var stað­ur­inn allur til fyr­ir­myndar fyrir utan pláss­leysið. Þetta er legend­ary staður og uppi um alla veggi hanga plaköt stórskost­legra banda sem hafa spilað þarna gegnum tíð­ina. Bad Religion, NOFX, Rancid, Atari Teenage Riot, Napalm Death, Dropkick Murphys, Discharged, Exploited og ég veit ekki hvað og hvað. Bönd sem ég hef hlustað á frá ung­lings­árum. Það er gaman að feta í fótsporin.

En við vorum þarna orðnir enn voða­legri en áður. Ég er kannski að stækka þetta eitt­hvað, ég var kannski bara verstur. Við fengum þarna hið svo­kall­aða Buy Out, það eru pen­ingar sem ætl­aðir eru fyrir kvöld­mál­tíð. Þessi aðgerð er reyndar mjög óþýsk því venju­lega eru þýsku stað­irnir með inn­an­hús­s­mötu­neyti eða aðkeyptan mat. En í gær sáum við um okkur sjálfir. Við náðum í alvör­unni ekki lengra en í næsta hús­númer og borð­uðum ham­borg­ara. Þá fatt­aði ég reyndar að ég var djöf­ull svangur sem hjálp­aði ekki til. Ég rit­aði hér um dag­inn að ég lifði svo óhollu líf­erni að ég hlyti að vera að fitna heil ósköp. Það er algert kjaftæði. Ég er far­inn að herða beltið á bux­unum mínum til muna. Þegar ég fatt­aði þetta fór ég yfir þetta allt saman og komst að því að ég borða afskap­lega lítið. Það sem ég borða er vissu­lega mis­hollt, en óreglan er jafn­vel meiri en mig óraði fyrir, og mest sökum skorts á nær­ingu. Og þarna hafði ég senni­lega gengið fram af mér.

Það var stutt í gigg og ég keyrði í mig vatn á eftir borg­ar­anum til að reyna að hjálpa system­inu. Það gekk bara svona lala. Klukkan hálf8 var svo vit­an­lega talið í. Þung­arokkið bíður ekk­ert eftir aum­ingjum. Fyrstu lögin hjálp­uðu ekk­ert til en við slógum auð­vitað hvergi af. Daginn áður höfðum við spilað í Póllandi og þar urðu lætin svo mikil að ég var næstum rif­inn út í sal, en dyra­verð­irnir höfðu betur í reip­tog­inu. Áhorf­endur rifu reyndar svo harka­lega í hand­legg­inn á mér að ég var ekk­ert alveg viss um að ég gæti klárað giggið vegna sárs­auka í öxl. Þegar tón­leik­unum lauk var ég hins vegar alger­lega heill og hef ekki kennt mér meins síðan. Und­ar­legt, en mjög gott. En já, sól­ar­hring síðar erum við þarna í Berlín, allt í skrúf­unni og á gólf­inu er svona reyt­ingur af fólki sem sýnir lítil við­brögð. Þjóð­verjar hlusta og með­taka, en sýna ekk­ert endi­lega af sér kæti. Það er allt miklu erf­ið­ara. Og sal­ur­inn langt því frá fullur. Það breytt­ist nú sem betur fer og til þess að öllu sé til haga haldið spil­uðum við mjög sann­fær­andi gigg og af fullu afli. Skálmöld gefur ekki afslátt þótt blóð­syk­ur­inn sé í ójafn­vægi. Þannig end­aði allt í háa­lofti og stemn­ingin mikil. En þetta var eitt­hvað und­ar­legt.

Og það var eins og mig grun­aði. Við áttum von á þónokkuð mörgum gestum og flestum íslenskum. Strax þegar ég sá hversu fáir voru mættir í upp­hafi tón­leika vissi ég þetta. Í fjórða skiptið á túrnum eru tón­leik­arnir aug­lýstir klukkan átta en við settir á svið klukkan hálf. Og núna höst­uðum við harka­lega á yfir­stjórn Elu­veitie, sem reyndar reyn­ist okkur nú afskap­lega vel alla daga. En þetta getur ekki bara verið svona. Mér fannst þetta sér í lagi leið­in­legt í gær vegna fólks­ins okkar, en heilt yfir er þetta bara ómögu­legt. Og ekki stóð á við­brögðum. Í morgun fór út tölvu­póstur á skrif­stofur allra stað­anna sem við eigum eftir að spila á í Þýska­landi að koma þessu á hreint. Svo virð­ist sem að við miða­sölu­kompaníið hér í landi sé að sakast. Þau fengu upp­lýs­ingar um eitt en áfram­sendu svo annað. Og hér eftir verður þetta kannað í grunn­inn og klárt að Skálmöld fer ekki á svið fyrir aug­lýstan tíma. Helvítis hel­víti!

Eftir þetta stapp og sturtu ætl­aði ég að hitta fólkið en sökum þess hversu lít­ill þessi staður er var eina leiðin, úr bakksteids­inu og út, í gegnum mann­hafið. Ég var síð­astur okkar í sturtu og þegar því lauk voru Elu­veitie byrjuð að spila. Ég lagði ekki í þann troðn­ing, ég bara gat það ekki. Eftir giggið staulað­ist ég fram og náði að hrista nokkra spaða en missti af öðrum. Og það eig­in­lega kláraði mig alveg. Robert kom skömmu síðar, við hentum öllu inn í rútu og fórum flestir í koju. Þráinn var þá reyndar orð­inn alveg prýði­legur. Robert lagði rút­unni við ein­hvern annan tón­leika­stað hvar við gátum tengt hana við raf­magn. Svo duttu þeir félagar í það held ég. Baldur hjálp­aði þeim eitt­hvað smá og svo bætt­ust hér í partýið Marci og Anton, hljóð­maður Rússanna og Chris trommutekk Elu­veitie. Og kannski fleiri, ég veit það ekki. Þetta gerð­ist allt hér frammi í rút­unni, ég var bara inni í koju að horfa á vídeó. Ég sofn­aði seint og um síðar og vakn­aði snemma. Og þá var allt orðið betra. En meira um það næst.

Þetta tíma­bil. Þetta kemur allaf og alltaf á sama tíma. Mánuður búinn sem manni finnst óra­langur tími en samt rúmar tvær vikur eftir. Allt eins alla daga, ekk­ert gaman að drösl­ast þetta og keyra enda­laust, heilsan afskap­lega mis­góð og manni finnst lífið erfitt og ofmetið. Jebb, þessi móment koma alltaf, það er lög­mál.

Meist­ara­legt dags­ins: Ekkert.

Sköll dags­ins: Allt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár