Slitnar upp úr SALEK-viðræðum - stefnir að óbreyttu í „efnahagslegt stórslys“

Slitnað hefur upp úr við­ræðum helstu við­semj­enda á almennum og opin­berum vinnu­mark­aði, svo­kall­aðs SALEK-hóps. Hópurinn hefur und­an­farin þrjú ár unnið að því að inn­leiða bætt vinnu­brögð við gerð kjara­samn­inga á Íslandi, að nor­ræni fyr­ir­mynd.

Samtök atvinnu­lífs­ins greina frá þessu í frétta­til­kynn­ingu og segir að það hafi verið heild­ar­sam­tök opin­berra starfs­manna sem hafi ekki treyst sér til að vinna áfram á þeim grund­velli sem var til umræðu.

SALEK stendur fyrir sam­starfs­nefnd um launa­upp­lýs­ingar og efna­hags­for­sendur kjara­samn­inga. Að nefnd­inni standa fern heild­ar­sam­tök launa­fólks, Alþýðu­sam­band Íslands, Bandalag háskóla­manna, Bandalag starfs­manna ríkis og bæja og Kenn­ara­sam­bandið, og fyrir hönd vinnu­veit­enda Samtök atvinnu­lífs­ins, Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið.

Hag­fræð­ingar hjá ASÍ, BHM, BSRB, KÍ og SA, auk hag­fræð­inga hjá fjár­mála­ráðu­neyt­inu og Sambandi sveit­ar­fé­laga, lögðu mat sam­eig­in­lega á áhrif launa­hækk­ana á árinu á verð­bólgu, kaup­mátt launa, stýri­vexti og gengi krón­unnar. Í minn­is­blaði hag­fræð­ing­anna til SALEK-hóps­ins segir meðal ann­ars að verð­bólga muni lík­lega fara fljótt yfir verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans og fari svo enn lengra frá því þegar líður á samn­ings­tím­ann.

„Við þessar aðstæður er reiknað með að vextir verði háir og gengi krón­unnar muni gefa eftir þrátt fyrir hækk­andi vexti, vegna lak­ari sam­keppn­is­stöðu og versn­andi við­skipta­jafn­aðar. Bætist launa­skrið ofan á þessa mynd er ljóst að verð­bólgu­horfur versna enn frekar, gengi krón­unnar verður veik­ara en ella og vextir SÍ hærri. Gera má ráð fyrir að kaup­máttur launa vaxi mikið til skemmri tíma, en vöxtur hans stöðv­ist og veik­ist síðan til lengri tíma með vax­andi verð­bólgu,“ segir meðal ann­ars í minn­is­blað­inu.

Vonast hefur verið eftir nið­ur­stöðu af funda­höldum SALEK-hóps­ins og hefur meðal ann­ars verið beðið með að und­ir­rita ýmsa kjara­samn­inga vegna funda­hald­anna.

Grafalvarleg staða blasir við


Í frétta­til­kynn­ing­unni frá Samtökum atvinnu­lífs­ins er haft eftir Þor­steini Víglunds­syni fram­kvæmda­stjóra að nið­ur­staðan valdi miklum von­brigðum. „Það má öllum vera ljóst að grafal­var­leg staða blasir við í efna­hags­málum ef ekki tekst að koma böndum á þær miklu launa­hækk­anir sem hafa verið á vinnu­mark­aðnum und­an­farna mán­uði, eins og skýrt kemur fram í nið­ur­stöðu hag­fræð­inga allra sam­tak­anna sem tekið hafa þátt í vinnu SALEK-hóps­ins,“ segir Þor­steinn. Hann segir að ef stétt­ar­fé­lög opin­berra starfs­manna haldi áfram að halda á lofti kröfum um sér­stakar launa­hækk­anir umfram það sem samið hefur verið um á almennum mark­aði muni allir tapa. „Það er sam­eig­in­leg ábyrgð allra samn­ings­að­ila að ná skyn­sam­legri nið­ur­stöðu til að forða efna­hags­legu stór­slysi sem að óbreyttu stefnir í.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár