Kolbeinn segist ekki kannast við að hafa beitt ofbeldi

Kolbeinn Sig­þórs­son knatt­spyrnu­maður hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann seg­ist iðr­ast hegð­unar sinnar gagn­vart tveimur konur á skemmti­stað árið 2017, en hafi þó ekki kann­ast við að hafa áreitt þær né beitt ofbeldi.

Kolbeinn Sigþórsson, hér í blárri treyju íslenska landsliðsins.
Kolbeinn Sig­þórs­son, hér í blárri treyju íslenska lands­liðs­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Knatt­spyrnu­mað­ur­inn Kolbeinn Sig­þórs­son hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu, þar sem hann seg­ist hvorki kann­ast við að hafa áreitt eða beitt Þórhildi Gyðu Arn­ars­dóttur og vin­konu hennar ofbeldi á skemmti­staðnum B5 árið 2017. Hann seg­ist hafa neitað sök, en við­ur­kennir þó að hegðun sín hafi ekki verið til fyr­ir­myndar og hann hafi beðist afsök­unar á því, eftir að hafa hitt Þórhildi Gyðu og vin­konu hennar vorið 2018 og hlustað á þeirra upp­lifun af atvikum.

Þór­hildur Gyða steig fram í fréttum RÚV í síð­ustu viku og lýsti því að lands­liðs­mað­ur­inn hefði gripið um klof hennar og tekið sig háls­taki þannig að hún hefði verið með sjá­an­lega áverka í tvær til þrjár vikur.

„Ég iðr­að­ist og tók á því ábyrgð og var til­bú­inn að leita sátta. Þær höfðu uppi kröfu um afsök­un­ar­beiðni og greiðslu sem ég féllst á. Auk þess greiddi ég 3 millj­ónir króna til sam­tak­anna Stíga­móta og studdi þannig mik­il­væga bar­áttu sam­tak­anna gegn kyn­ferð­is­of­beldi,“ segir í yfir­lýs­ingu Kolbeins, sem var tek­inn úr lands­liðs­hópi A-lands­liðs karla að beiðni stjórnar KSÍ eftir að málið opin­ber­að­ist yfir helg­ina.

KSÍ upplýst um sáttagreiðslurnar

Í yfir­lýs­ingu Kolbeins segir að mál­inu á milli Þór­hildar Gyðu og hans hafi lokið með áður­nefndri sátta­greiðslu, sem KSÍ hafi verið upp­lýst um. Kolbeinn segir jafn­fram að „afneitun KSÍ“ á því að hafa haft vit­neskju um nokkur mál af þessu tagi hefði leitt til þess að „Þórhildi Gyðu fannst hún rænd sinni sátt.“

„Ég hef skiln­ing á því,“ segir Kolbeinn, sem leikur knatt­spyrnu með sænska lið­inu IFK Gauta­borg.

[adspot]

„Ég harma mína hegðun á þessum tíma og tek harða afstöðu gegn hvers kyns ofbeldi. Ég er enn mark­visst að vinna í mínum málum,“ segir Kolbeinn.

Knatt­spyrnu­mað­ur­inn seg­ist í yfir­lýs­ingu sinni hafa átt í erf­ið­leikum á und­an­förnum árum. Hann hafi verið and­lega á slæmum stað, mikið meiddur og að fram­tíð fer­ils hans sem knatt­spyrnu­manns hafi verið í mik­illi hættu.

Yfirlýsing Kolbeins í heild sinni:

Á und­an­förnum árum hef ég átt í erf­ið­leikum, verið and­lega á slæmum stað, mikið meiddur og fram­tíð fer­ils míns sem knatt­spyrnu­manns í mik­illi hættu. Ég kom mér í aðstæður þar sem ég hegð­aði mér með óvið­eig­andi hætti. Þór­hildur Gyða Arn­ars­dóttir hefur stigið fram og lýst sinni upp­lifun af atviki á skemmti­staðnum B5 haustið 2017. Vorið 2018 hitti ég Þórhildi Gyðu og vin­konu hennar og hlust­aði á þeirra upp­lifun.

Ég kann­að­ist ekki við að hafa áreitt þær eða beitt ofbeldi og neit­aði sök. Hegðun mín var hins vegar ekki til fyr­ir­myndar og baðst ég afsök­unar á henni. Ég iðr­að­ist og tók á því ábyrgð og var til­bú­inn að leita sátta. Þær höfðu uppi kröfu um afsök­un­ar­beiðni og greiðslu sem ég féllst á. Auk þess greiddi ég 3 millj­ónir króna til sam­tak­anna Stíga­móta og studdi þannig mik­il­væga bar­áttu sam­tak­anna gegn kyn­ferð­is­of­beldi.

Með þessu var mál­inu lokið af okkar hálfu. KSÍ var upp­lýst um fram­vindu sátta­við­ræðna og lyktir þeirra en afneitun KSÍ leiddi til þess að Þórhildi Gyðu fannst hún rænd sinni sátt. Ég hef skiln­ing á því.

Ég harma mína hegðun á þessum tíma og tek harða afstöðu gegn hvers kyns ofbeldi. Ég er enn mark­visst að vinna í mínum málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár