Þórólfur: Hægt að hafa margar skoðanir á siðferði bólusetninga

Að baki þeirri ákvörðun að gefa fólki bólu­settu með Janssen örv­un­ar­skammt býr að sögn sótt­varna­læknis sú stefna að reyna að bólu­setja sem flesta hér á landi með áhrifa­ríkum hætti. 1,32 pró­sent íbúa fátæk­ustu ríkja heims hafa verið bólu­sett.

Himinn og haf skilja fátækari ríki heims og þau ríkari að þegar kemur að bólusetningum.
Himinn og haf skilja fátæk­ari ríki heims og þau rík­ari að þegar kemur að bólu­setn­ingum. Mynd: WHO

„Varðandi spurn­ing­una um sið­ferði bólu­setn­ing­anna þá væri hægt að ræða það lengi og hafa á því margar skoð­anir,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir spurður hvort það sé sið­ferði­lega rétt­læt­an­legt að gefa þeim sem fengu bólu­efni Janssen örv­un­ar­skammt á meðan innan við 2 pró­sent íbúa í fátæk­ustu ríkjum heims hafa fengið nokkuð bólu­efni yfir höfuð. „Sú stefna hefur hins vegar verið tekin hér að reyna að bólu­setja sem flesta og gera það á eins áhrifa­ríkan hátt og mögu­legt er,“ heldur Þórólfur áfram í skrif­legu svari sínu við fyr­ir­spurn Kjarnans. „Þar undir fellur sú ákvörðun að gefa þeim sem fengu Janssen örv­un­ar­skammt.“

[adspot]

Þórólfur greindi frá því á upp­lýs­inga­fundi á fimmtu­dag að uppi væru áætl­anir um að bjóða öllum þeim sem bólu­settir eru með bólu­efni Janssen hér á landi auka­skammt af öðru bólu­efni. Líklega yrði bólu­efni Pfizer-BioNtech fyrir val­inu. „Sömu­leiðis að bjóða fólki sem að lík­legt er að hafi verr svarað bólu­setn­ingu en aðrir auka­skammt.“

Þetta mun að sögn Þórólfs ekki koma til fram­kvæmda fyrr en seinni hluta ágúst­mán­aðar vegna þess að ákveð­inn tími þarf að líða frá síð­asta skammti þar til örv­un­ar­skammtur er gef­inn. Rík­is­stjórnin sam­þykkti áformin á föstu­dag og í frétt á vef heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins, vegna hertra sam­komu­tak­markanna er sér­stak­lega fjallað um málið og þar segir: Í sam­ræmi við til­lögur sótt­varna­læknis er þegar haf­inn und­ir­bún­ingur að því að bjóða þeim sem bólu­settir hafa verið með bólu­efni Janssen seinni bólu­setn­ingu í ágúst. Einnig verður ein­stak­lingum með und­ir­liggj­andi ónæm­is­vanda­mál og þeim sem talið er að tveir skammtar veiti ekki nægi­lega góða vörn gegn COVID-19 boð­inn þriðji skammtur bólu­efnis.

Græðgi Vesturlanda

Eftir að smitum tók að fjölga á ný á Vest­ur­löndum hefur umræða um örv­un­ar­skammta af bólu­efnum (e. Boosters) orðið hávær­ari. Lyfja­fyr­ir­tækið Pfizer greindi frá því nýverið að það ætti í við­ræðum við stjórn­völd í Banda­ríkj­unum um að gefa þeim sem fengið hefðu bólu­efnið þriðja skammt­inn.

Hins vegar hafa sér­fræð­ingar Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar (WHO) nýlega sagt að enn væru ekki komnar fram nægj­an­legar sann­anir fyrir því að þörf væri á þriðja skammt­inum og hvöttu stjórn­endur Pfizer, Moderna og fleiri bólu­efna­fram­leið­enda, til að ein­beita sér frekar að því að bæta aðgengi að bólu­efnum um allan heim.

[links]Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, fram­kvæmda­stjóri WHO sagði að græðgi væri drif­kraft­ur­inn í mis­munun í bólu­setn­ingu milli heims­hluta. „Við erum að taka með­vit­aðar ákvarð­anir núna um að vernda ekki þá sem þurfa mest á því að halda,“ sagði hann og að þeir sem ekki hefðu enn fengið einn ein­asta skammt af bólu­efni ættu að ganga fyrir, áður en kæmi að því að gefa „örv­un­ar­skammta“ á Vest­ur­löndum. Bólu­efna­fram­leið­endur ættu að gera allt sem þeir gætu til að styðja við COVAX-sam­starfið og almennt við dreif­ingu bólu­efna til fátæk­ari ríkja heims.

Soumya Swaminathan, helsti vís­inda­sér­fræð­ingur WHO, sagði að WHO myndi gefa út til­mæli varð­andi örv­un­ar­skammta byggð á vís­indum – ekki yfir­lýs­ingum ein­stakra lyfja­fram­leið­enda.

Michael Ryan, sem fer fyrir bráða­að­gerðum WHO, sagði að ef ríku löndin ákveða að gefa örv­un­ar­skammta í stað þess að gefa bólu­efni til fátæk­ari ríkja myndum við síðar „líta til baka í reiði og ég held að við myndum líta til baka með skömm“.

Einn af hverjum 76

Í rík­ustu löndum jarðar, sem Ísland til­heyrir, hefur að með­al­tali annar hver maður verið bólu­settur. Í fátæk­ari löndum hefur aðeins einn af hverjum 76 fengið bólu­setn­ingu eða um 1,32 pró­sent íbúa þeirra.

Rúmlega 53 þús­und manns hafa fengið bólu­efni Janssen hér á landi. Um 21.500 eru á aldr­inum 16-29 ára eða um 40 pró­sent, og um 16.400 á aldr­inum 30-39 ára eða um 30 pró­sent allra sem fengið hafa bólu­efnið.

Lang­flestir sem greinst hafa með COVID-19 síð­ustu daga eru á aldr­inum 18-29 ára.

Því hefur ítrekað verið haldið fram bæði af heil­brigð­is­yf­ir­völdum hér á landi og íslenskum stjórn­völdum að heims­far­aldr­inum ljúki ekki fyrr en heims­byggðin öll hafi verið bólu­sett. Í óbólu­settum sam­fé­lögum er hætta á stökk­breyt­ingum veirunnar mest. Því sé það allra hagur að bólu­setja alla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár