Þingrofsskjöl Sigmundar Davíðs ekki til í málaskrá forsætisráðuneytisins

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra segir að þing­rofs­gögn sem for­seti Íslands hefur greint frá að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hafi komið með til hans á fund séu ekki til í mála­skrá ráðu­neyt­is­ins.

Gögn um þing­rof, sem tengj­ast fundi Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra og Ólafs Ragnars Gríms­sonar for­seta Íslands þann 5. apríl síð­ast­lið­inn, eru ekki skráð í mála­skrá ráðu­neyt­is­ins. Þetta kemur fram í svari Sigurðar Inga Jóhanns­sonar for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Krist­jáni Möller, þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar.

„Eru skjöl um þing­rof og nýjar kosn­ingar sem und­ir­búin voru í aðdrag­anda fundar með for­seta Íslands 5. apríl sl. sem for­seti hefur greint frá opin­ber­lega eða önnur gögn tengd sama fundi skráð í mála­skrá ráðu­neyt­is­ins? Eru gögnin aðgengi­leg og þá hvar?“ spurði Kristján for­sæt­is­ráð­herra. Hann svar­aði með ein­földum hætti. „Fyr­ir­spurnin felur í sér tvær spurn­ingar, svarið við þeim er nei.“

Sig­mundur Davíð fór á fund Ólafs Ragnars að morgni 5. apríl síð­ast­lið­inn. Áður en hann fór til Bessa­staða setti hann inn færslu á Facebook-síðu sína þar sem hann sagð­ist ætla að „rjúfa þing og boða til kosn­inga hið fyrsta“ ef þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins væru ekki reiðu­búnir að styðja rík­is­stjórn undir hans for­sæti.

Ólafur Ragnar greindi svo frá því á blaða­manna­fundi að loknum fund­inum með for­sæt­is­ráð­herra að sá síð­ar­nefndi hefði óskað eftir því að for­set­inn veiti honum heim­ild til að rjúfa þing. Ólafur Ragnar sagð­ist ekki hafa verið til­bú­inn að veita slíka heim­ild.

Sig­mundur Davíð sagði í kjöl­farið að Ólafur Ragnar færi með rangt mál. „Formleg til­laga um þing­rof var hvorki borin upp á fund­inum né kynnt for­seta eins og skilja mátti af ummælum for­seta Íslands að fundi loknum. For­sæt­is­ráð­herra tjáði for­seta að hann hygð­ist bera þing­rof­s­til­lögu form­lega upp við for­seta ef nið­ur­staða um fram­an­greint lægi fyrir,“ sagði í yfir­lýs­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Þessu hafn­aði svo for­set­inn, og sagði atburða­rás­ina alveg skýra af hans hálfu og ljóst hvað Sig­mundur hefði viljað. Hann nefndi því til sönn­unar að emb­ætt­is­menn hefðu fylgt Sigmundi Davíð á Bessa­staði með skjala­tösku rík­is­ráðs­ins með í för. Ragn­hildur Arn­ljóts­dóttir, ráðu­neyt­is­stjóri for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og rit­ari rík­is­ráðs, sagði í kjöl­farið að engin sér­stök taska væri ein­kennd sem rík­is­ráð­staska. Hún sagði einnig að til þess að til­laga um þing­rof væri form­leg þyrfti for­sæt­is­ráð­herra að afhenda for­set­anum und­ir­rit­aða til­lögu um þing­rof og óska eftir áritun for­seta.

Fréttin hefur verið upp­færð. Upp­runa­lega var mis­ritað að fyr­ir­spurnin hefði verið frá Svandísi Svav­ars­dóttur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár