Breska ríkisútvarpið sparar 15 milljónir punda með lokun vefsíðna

Miklar breyt­ingar verða gerðar á vef­síðum BBC til þess að spara fimmtán millj­ónir punda. Meðal þess sem verður lokað er mat­ar­vef­síðan og News tíma­ritið.

Breska rík­is­út­varpið BBC ætlar að leggja niður mat­ar­vef­síðu sína, iWonder þjón­ust­una, News Magazine og Newsbeat, til þess að spara fimmtán millj­ónir punda, sem eru um fimmtán pró­sent af kostn­aði við rit­stjórn­ina. James Harding, yfir­maður BBC News, til­kynnti um þetta í morgun.

Í síð­ustu viku kom út skýrsla stjórn­valda um fram­tíð BBC, og til­lögur BBC News koma í kjöl­far þeirrar skýrslu. Skýrslan er til­laga stjórn­valda um þjón­ustu­samn­ing við BBC, og inni­heldur áform stjórn­valda fyrir næstu ell­efu árin í rekstri rík­is­út­varps­ins. Tals­verðar breyt­ingar verða gerðar á rekstr­inum gangi áformin eftir, en þó stendur til að halda áfram afnota­gjöldum hjá BBC og láta þau fylgja verð­lagi.

BBC Food, mat­ar­síðan, hefur verið mjög vin­sæl og mat­reiðslu­menn í Bret­landi mót­mæla lok­un­inni. Þar eru ell­efu þús­und upp­skriftir, en stefnt er að því að varð­veita þær og flytja annað. News Magazine tíma­rit­inu verður hætt sem og Newsbeat síð­unni. Áfram á að bjóða upp á ferða­fréttir en ferða­síð­unni BBC Travel verður lokað. Þá verður dregið úr virkni á sam­fé­lags­miðlum og í staf­rænu útvarpi og dregið úr annarri dag­skrár­gerð sem ekki er talið kjarna­starf­semi miðl­anna.

Harding segir við BBC að engin ákvörðun hafi verið tekin um fram­tíð frétta­stöðv­ar­innar BBC News Channel, en að ekki komi til greina að henni verði lokað. Harding hefur lagt fram sex mögu­leika sem stjórn BBC velur um í júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár