Karl Garðarsson vill að stjórnarandstæðingar biðji Framsókn afsökunar

Karl Garð­ars­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill að þing­menn sem gagn­rýndu mál­flutn­ing fram­bjóð­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins í síð­ustu kosn­inga­bar­áttu afsök­unar vegna þeirrar nið­ur­stöðu sem nú hefur náðst í losun fjár­magns­hafta. Hann kvaddi sér hljóðs undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag og ræddi þetta.

„Það var ekki lítið hlegið að fram­bjóð­endum Fram­sókn­ar­flokks­ins þegar þeir minnt­ust á kylfu og gul­rót í síð­ustu kosn­inga­bar­áttu. Póli­tískir and­stæð­ingar höfðu aldrei heyrt aðra eins firru, aldrei heyrt annað eins bull og það að hægt væri að nálg­ast kröfu­hafa á þessum nótum. Annað hefur komið á dag­inn,“ sagði Karl, en hann vitn­aði í umfjöllun um Lee Buchheit, ráð­gjafa stjórn­valda í hafta­málum, í Morg­un­blað­inu í dag. Þar er haft eftir heim­ilda­manni blaðs­ins að Buchheit hafi nálg­ast málin með „aðferða­fræði kylfu og gul­rótar, þ.e. aðferða­fræði hörku eða umb­unar,“ eins og segir í Morg­un­blað­inu.

„Það væri kannski smá mann­dómur í því ef þetta sama fólk sem situr hér á þingi myndi biðj­ast afsök­unar á þessum ummælum og öðrum í kosn­inga­bar­átt­unni. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur nefni­lega staðið við stóru orðin,“ sagði Karl í ræðu sinni á Alþingi í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár