Utanríkisráðherra Palestínu: „Ef Ísrael kemst upp með þetta, getur það hver sem er“

Varsen Aghabekian utan­rík­is­ráð­herra Palest­ínu segir að það ætti að hringja við­vör­un­ar­bjöllum að ríki kom­ist upp með að fylgja ekki alþjóða­lögum. Hún telur frið­ar­á­ætlun Banda­ríkja­for­seta ein­ungs skref fram á við og að áætl­unin verði að vera í sam­ræmi við alþjóða­lög.

Varsen Aghabekian
Varsen Aghabekian Segir mik­il­vægt að frið­ar­á­ætlun Trumps sé í sam­ræmi við alþjóða­lög. Mynd: Golli

„Ísland er okkur kært því Ísland var eitt fyrsta ríkið sem við­ur­kenndi sjálf­stætt ríki Palest­ínu,“ segir Varsen Aghabekian utan­rík­is­ráð­herra Palest­ínu og bætir við: „Ef að fleiri hefði gert það á sama tíma og Ísland hefði staðan kannski verið önnur í dag.“

Aghabekian hélt erindi á árlegri frið­ar­ráð­stefnu Höfða frið­ar­set­urs sem fer fram í Veröld húsi Vigdísar í Háskóla Íslands. Í erind­inu lagði hún áherslu á mik­il­vægi alþjóða­laga sem hún sagði hafi verið virt að vettugi und­an­farin ár. Skortur á beit­ingu þeirra telur hún eina ástæða hörm­ung­anna í Palest­ínu.

„[Alþjóða­lög] ættu að koma í veg fyrir her­námið sem ég hef lifað við í mörg ár,“ sagði ráð­herr­ann og benti á að það fari eftir því hvar í heim­inum fólk sér hvort að alþjóða­lög séu virt eða ekki. 

Ekkert rétt­lætti það sem hefur átt sér stað á Gaza. Þá ætti aðgerða­leysi gagn­vart Ísrael – sem hafi brotið alþjóða­lög – …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár