Vopnuð útköll sérsveitarinnar nær þrefaldast á einu ári

Vopnuð útköll og verk­efni sér­sveitar lög­regl­unnar juk­ust um 190 útköll á milli ára. Skýring lög­regl­unnar er að til­kynn­ingum um vopn­aða ein­stak­linga hefur fjölgað und­an­farin ár og þar af leið­andi útköllum lög­reglu til að sinna þeim verk­efnum.

Vopnuðum útköllum sér­sveitar lög­regl­unnar hefur fjölgað gríð­ar­lega á síð­ustu árum en það sem af er ári hefur sér­sveitin sinnt 177 vopn­uðum verk­efnum og útköllum. Fjöldi vopn­aðra útkalla jókst úr 108 útköllum árið 2016 í 298 útköll árið 2017 og því nærri þre­faldst á milli ári. Þetta kemur fram í svari Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Smára Mccarthy, þing­manns Pírata.

Breyting á eðli brota og samsetningu brotamanna í landinu

Í svari dóms­mála­ráð­herra segir að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra hefur til­kynn­ingum um fjölda vopn­aðra ein­stak­linga fjölgað und­an­farin ár og þar af leið­andi útköllum til að sinna þeim verk­efnum en ástæða þess er meðal ann­ars breyt­ing á eðli brota og sam­setn­ingu brota­manna í land­inu.

Í svari við spurn­ingu Smára, um hvort að gerðar hafi verið breyt­ingar á starfs­reglum, mála­flokkum eða aðgerða­venjum lög­reglu á und­an­förnu ári, segir að ekki hafi verið gerðar breyt­ingar á þessum sviðum varð­andi sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra heldur er skýrn­ingin breyt­ing á eðli brota og sam­setn­ingu brota­manna í land­inu en til­kynn­ingar um vopn­aða ein­stak­linga hefur auk­ist til muna á milli ára en árið 2017 voru 174 til­kynn­ingar til lög­reglu um vopn­aða ein­stak­linga en aðeins 83 árið 2016. Árið 2003 voru 65 til­kynn­ingar um vopn­aða ein­stak­linga og 52 útköll vopn­aðra sér­sveita.

Segir það hlutverk lögreglu að bregðast við tilkynningum

Smári spyr einnig hvort að það sé í sam­ræmi við stefnu rík­is­stjórn­ar­innar í lög­gæslu­málum að fjölga vopn­uðum verk­efnum og útköllum lög­reglu og ef svo er ekki hvort það standi til að sporna við þess­ari fjölgun í vopn­uðum verk­efnum lög­regl­unnar. Í svari við þeirri fyr­ir­spurn segir dóms­mála­ráð­herra að það sé ekki stefna rík­is­stjórn­ar­innar að fjölga vopn­uðum verk­efnum eða útköllum lög­reglu en tekið er fram að það sé hlut­verk lög­reglu að bregð­ast við til­kynn­ingum um vopn­aða ein­stak­linga.

Ekki kemur fram í svar­inu hvort til standi að sporna við fjölg­un­inni en fram kemur að ráð­ist hefur verið í ýmsar aðgerðir og verk­efni til að styrkja starf lög­regl­unnar á und­an­förnum árum, til dæmis hefur við­bót­ar­fjár­magni verið varið til efl­ingar lög­gæslu almennt í land­inu, bún­að­ar­kaupa og umfangs­miklar skipu­lags­breyt­ingar hjá lög­regl­unni með fækkun lög­reglu­emb­ætta úr fimmtán í níu og aðskiln­aði lög­reglu­emb­ætta og sýslu­manns­emb­ætta árið 2015.

„Öflug lög­gæsla er ein af for­sendum þess að öryggi borg­ar­anna sé tryggt. Mik­il­vægt er að lög­regla veiti eins góða þjón­ustu og mögu­legt er á hverjum tíma í sam­ræmi við það hlut­verk sem henni er falið. Í því felst að gæta öryggis borg­ar­anna með því að svara hjálp­ar­kalli hratt og örugg­lega, að stemma stigu við afbrotum, meðal ann­ars með því að hafa afskipti þar sem brot, slys eða aðrar ófarir kunna að vera yfir­vof­andi og rann­saka brot og leiða hið sanna í ljós. Þessu hlut­verki sinnir lög­reglan á ýmsan hátt, svo sem með fyr­ir­byggj­andi aðgerðum, fræðslu til almenn­ings og sam­starfi við ýmsa aðila hér­lendis og erlendis, auk rann­sókna mála.“ segir jafn­framt í svari dóms­mála­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár