Ekkert mat gert á því hvort aflandseignaskýrsla varðaði almannahag

Bjarni Bene­dikts­son segir að skýrsla um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum hafi verið unnin að sínu frum­kvæði. Því hafi birt­ing hennar verið án kvaða eða mats á því hvort þær ætti við sam­kvæmt siða­reglum ráð­herra.

Ekkert mat fór fram á því hvort að efni skýrslu um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum varð­aði almanna­hag. Ástæða þess var sú að skýrslan var unnin að frum­kvæði Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og því var birt­ing hennar „því alger­lega án utan­að­kom­andi kvaða eða mats á því hvort þær ættu við sam­kvæmt siða­reglum.“

[links]Þetta kemur fram í svari Bjarna við fyr­ir­spurn Björns Leví Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, um birt­ingu gagna sem var birt á vef Alþingis í dag.

Samkvæmt siða­reglum ráð­herra á ekki að leyna upp­lýs­ingum sem varða „almanna­hag nema lög bjóði eða almanna­hags­munir krefj­ist þess að öðru leyti“. Í svari Bjarna kemur fram að hann telur siða­reglur ráð­herra ekki eiga við um birt­ingu skýrsl­unnar.

Björn Leví spurði einnig hvaða verk­lags­reglur gildi um birt­ingu gagna sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur og varða almanna­hag. Í svar­inu segir að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið kapp­kosti að birta almenn­ingi „allt það efni sem því ber skylda til og annað efni sem það hefur undir höndum bæði á vef­síðu ráðu­neyt­is­ins og öðrum vefjum, svo sem á opn­ir­reikn­ingar.is, rík­is­reikn­ingur.is og rsk.is, í frétta­til­kynn­ingum og á hvern þann hátt sem tal­inn er heppi­leg­astur hverju sinni.“

Skýrslan tilbúin í október en ekki birt fyrr en í janúar

Í byrjun jan­úar 2017 var gerð opin­ber skýrsla starfs­hóps sem skoð­aði umfang aflandseigna Íslend­inga og áætl­aði hversu miklu eig­endur slíkra eigna hefðu stungið undan skatti.

Skýrslan var unnin sem við­bragð við opin­berun Panama­skjal­anna svoköll­uðu. Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi og núver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, greindi frá því í maí 2016 að sér­stöku teymi, með aðkomu utan­að­kom­andi sér­fræð­inga, yrði falið að „gera mat á umfangi fjár­magnstil­færslna og und­an­skota á aflands­svæðum sam­hliða því að áætla tekju­tap hins opin­bera af slíkri starf­sem­i.[...]Við höfum skyldur til þess að draga fram og skýra hvert umfang skattsvikanna var. Hvert er umfang vand­ans? Hversu mikið tap­ast? Hversu algengt var að þetta félaga­form, þessi lönd, þessi svæði, væru nýtt til þess að skjóta sér undan íslenskum lög­um? Það finnst mér sjálf­sagt og eðli­legt að kanna. Mér finnst það frum­skylda okkar að gefnu þessu til­efni núna að taka það út sér­stak­lega og verður það meg­in­verk­efni þessa sér­staka teymis sem ég hyggst fela þetta hlut­verk þannig að við getum haft betri grund­völl undir umræðu um umfang vand­ans.“

[adspot]Þessi hópur starf­aði frá vor­inu 2016 undir for­mennsku Sig­urðar Ing­ólfs­sonar hag­fræð­ings. Og hann skil­aði skýrslu til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í sept­em­ber sama ár, rúmum mán­uði fyrir kosn­ing­arnar sem haldnar voru fyrr en áætlað var vegna aflands­fé­laga­op­in­ber­anna Panama­skjal­anna.

Skýrslan var kynnt fyrir Bjarna Bene­dikts­syni, þáver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í byrjun októ­ber sama ár, nokkrum vikum fyrir kosn­ingar sem fram fóru undir lok þess mán­aðar.

Skýrslan var hins vegar ekki birt fyrr en 6. jan­ú­ar, eftir að Kjarn­inn hafði ítrekað spurst fyrir um afdrif henn­ar.

Svandís sendi skriflega fyrirspurn til umboðsmanns

Svandís Svav­ars­dóttir, þáver­andi þing­flokks­for­maður Vinstri grænna og núver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, óskaði eftir því skrif­lega í fyrra að umboðs­maður Alþingis myndi fjalla um hvort Bjarni hefði brotið gegn 6. grein siða­reglna ráð­herra með því að birta ekki skýrslu um aflands­fé­lög fyrr en nokkrum vikum eftir að hún lá fyr­ir.

Umboðs­maður til­kynnti síðar um að ekki væri til­efni til að taka til athug­unar hvort Bjarni hefði brotið gegn siða­reglum ráð­herra með því að birta ekki skýrslu um eignir Íslend­inga í aflands­fé­lögum fyrr en raun bar vitni.

Ástæðan var fyrst og fremst að Bjarni hafði við­ur­kennt að það hafi verið mis­tök af hans hálfu að birta ekki skýrsl­una mun fyrr en gert var.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár