Nýsjálendingar munu kjósa sér nýjan fána — Burkninn vinsælastur

Nýr þjóð­fáni Nýja Sjálands verður hugs­an­lega dreg­inn að húni á næsta ári því Nýsjá­lenska þingið er búið að skipu­leggja tvær þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur um hver nýji fán­inn verður og hvort skipta eigi 113 ára gömlum nýlendu­fán­anum út.

Sérstök fána­nefnd nýsjá­lenska þings­ins birti svo í gær 40 til­lögur af hönnun nýs fána. Að end­ingu verður aðeins kosið um fjóra val­kosti. Allar til­lög­urnar nema ein hafa það sam­eig­in­legt að breski fán­inn, Union Jack, er ekki lengur ráð­andi tákn. Tákn breska heims­veld­is­ins er horfið en stjörn­u­rnar fjórar virð­ast enn vin­sælar meðal hönn­uða. Þær tákna Suð­ur­kross­inn, ráð­andi stjörnu­merki á himni suð­ur­hvels jarðar.

Til­lög­urnar 40 voru valdar úr meira en 10.000 til­lögum frá almenn­ingi. John Borrows, yfir­maður verk­efn­is­ins, hefur sagt að hugs­an­legur nýr fáni þurfi óað­yggj­andi að vera frá Nýja Sjálandi, und­ir­strika þjóð­ina sem fram­sækna og sam­stæða þjóð í tenglsum við nátt­úr­una. Fáninn þurfi einnig að hafa rætur í for­tíð­inni og vera tákn fram­tíðar.

„Það er mik­il­vægt að svona hönnun sé tíma­laus, geti virkað við mis­mun­andi aðstæður, sé ein­föld, laus við óþarfa, í jafn­vægi og hafi skarpar línur,“ sagði Burrows.

Það er hins vegar augjóst hvaðan hönn­uð­irnir hafa fundið táknin til að raða í til­lögur sínar. Mest áber­andi er silfraði burkn­inn sem er tákn helstu lands­liða Nýsjá­lend­inga, hvort sem það er net­bolti, ruðn­ingur eða krikket. Burkna er líka að finna í skjald­ar­merki Nýja Sjálands, á myntum og í merkjum her­deilda. Svarti lit­ur­inn, sem er ráð­andi í mörgum hönn­unum, er ráð­andi litur helstu lands­liða.

Silfraði burkn­inn, hvítt burkna­lauf á svörtum grunni, hefur þess vegna hlotið stöðu óop­in­bers þjóð­fána í Nýja Sjálandi. Þær til­lögur sem skarta burkn­anum eru jafn­framt vin­sælastar meðal almenn­ings. Árið 2004 var kosið um nýjan fána á vegum dag­blaðs og bar Silfraði burkn­inn á rauðum og bláum grunni, sigur úr býtum. Sú hönnun skart­aði einnig Suð­ur­kross­inum.

[caption id="attachment_36228" align="alignnone" width="2500"] Tillögur að nýjum þjóð­fána Nýja Sjálands. Smelltu á mynd­ina til að sjá hana stærri.[/caption]

Fáninn er of líkur þeim ástralska


John Key, for­sæt­is­ráð­herra Nýja Sjálands, hefur lengi þrýst á það að þjóðin velji sér nýjan fána. Hann vill að silfr­aður burkni prýði fán­ann, eins og meiri­hluti þjóð­ar­innar. Í skoð­ana­könn­unum eru Nýsjá­lend­ingar hins vegar alls ekki á því að það þurfi að skipta út fán­anum. Í skoð­anna­könnun sem New Zealand Herald gerði í apríl sögð­ust 70 pró­sent vera á móti fána­breyt­ing­unni.

Fána­breyt­ingin er hins vegar ekki ný hug­mynd. Hún hefur verið til umræðu síðan á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar. Helstu rök þeirra sem vilja breyta um fána eru að flaggið sé ein­fl­ald­ega of líkt ástr­alska fán­anum. Nýsjá­lenskir ráða­menn hafa, til dæmis, oft þurft að sitja undir þjófána Ástralíu í opin­berum heim­sóknum til ann­arra landa.

Þá þykir það grafa undan sjálf­stæði þjóð­ar­innar að breski fán­inn skuli enn prýða þjóð­fána Nýja Sjálands. Það var venjan að nýlendur bresku krún­unnar bæru sam­bands­fána Bret­lands. Núgild­andi þjóð­fáni Nýja Sjálands er til dæmis síðan 1902 en þjóðin hlaut sjálf­stæði í des­em­ber 1947.

Svo er það skortur á táknum frum­byggja Nýja Sjálands í fán­anum. Ensk arf­leið þjóð­ar­innar er öllu yfir­sterk­ari í þjóð­fán­anum en engu púðri eytt í aðrar þjóðir lands­ins. Hug­myndir um að bæta við táknum Māori-þjóð­ar­innar í fán­ann voru fyrst settar fram í seinni heim­styrj­öld­inni. Nýja Sjáland er fjöl­þjóð­legt sam­fé­lag og helsta tákn lands­ins ætti að við­ur­kenna það. Í mann­tali árið 1961 var sýnt fram á að 92 pró­sent þjóð­ar­innar hefðu evr­ópska arf­leifð. Árið 2013 var hlut­fallið orðið 74 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár