Rússar hefja loftárásir á skotmörk í Sýrlandi - Landher í stellingum

Rúss­neskar her­flug­vélar hófu í morgun loft­árásir á valin skot­mörk í Sýrlandi sem bein­ast að Íslamska rík­inu. Árás­irnar eru gerðar undir vernd­ar­væng rík­is­stjórnar Bashar al-Assad, for­seta Sýrlands, en Vladímir Pútín, for­seti Rúss­lands, hefur hvatt þjóðir heims­ins, ekki síst Banda­ríkja­menn, til þess að „stilla sér upp með“ stjórn­ar­her Sýrlands í bar­átt­unni við Íslamska ríkið og sjálf­stæða hryðju­verka­hópa inn þessa stríðs­hrjáða rík­is­ins.

Samkvæmt frá­sögn Washington Post hafa Rússar þegar sett land­her í stell­ingar í Sýrlandi, sem er til þjón­ustu reið­bú­inn, þegar Assad og yfir­menn í stjórn­ar­her Sýrlands gefa skip­anir um hvað skuli gera. Banda­rísk stjórn­völd hafa þegar gagn­rýnt aðgerðir Rússa og sagt að þær geti leitt til flók­innar stöðu í Mið­aust­ur­löndum og grafið undan friði og sam­stöðu.


[caption id="attachment_37868" align="alignnone" width="1393"] Þessi litla stúlka býr við við­var­andi ótta, eins og millj­ónir manna sem hafa flúið átökin í Sýrlandi, Írak og Afganistan. Mynd: EPA.[/caption]


Spennuþrungið ástand


Frum­kvæði Rússa kemur á tíma þar sem þeir eru ein­angr­aðir á hinu alþjóða­póli­tíska sviði. Evr­ópu­sam­bands­ríkin hafa stillt sér upp gegn Rússum, vegna aðgerð­anna í Úkraínu og átak­anna þar, og það sama má segja um Banda­ríkin. Við­skipta­þving­unum er beitt til þess að halda rúss­neska birn­inum niðri.


Á vef Foreign Policy kemur fram að Rússar sjái stöð­una í Sýrlandi sem ákveðna leið út úr vand­anum sem landið er í, þar sem alþjóða­sam­fé­lag­inu, með Banda­ríkja­menn í broddi fylk­ingar, hefur mis­tek­ist að búa til jarð­veg friðar. Þvert á móti eru átökin í Sýrlandi, Írak og Afganista sífellt að versna, og er nú talið að 20 til 25 millj­ónir manna séu á flótta undan hat­urs­fullu ofbeldi og átökum. Í Sýrlandi er ástandið verst, en um tíu millj­ónir manna hafa flúið heim­ili sín og um fimm millj­ónir hafa kom­ist úr land­inu. Af um 22 millj­ónar heildar­í­búa­fjölda, sé tekið mið af tölum Alþjóða­bank­ans frá því í lok árs 2013, þá eru meira en fjórtán millj­ónir í hreinni neyð. Stór hópur fólks telur sig hvergi geta farið, og heldur til við slæmar aðstæður á heim­ilum sínum. Almennum borg­urum stafar bæði ógn af aðgerðum stjórn­ar­hers­ins og Íslamska ríks­ins.


Pútín hefur sagt, að þjóðir heims­ins hafa engan annan kost en að hefja strax kerf­is­bundnar hern­að­ar­að­gerðir gegn Íslamska rík­inu. En hvers vegna hika aðrar þjóðir, Banda­ríkin, Frakk­land og Bretland þar helst, við að vinna með stjórn­ar­her Sýrlands? Ástæðan er algjört van­traust á Assad. Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, sagði í ræðu sinni á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna, að Assad hafi beitt sprengjum gegn börnum í sínu eigin landi, og að hann gæti aldrei verið hluti af póli­tískri lausn á stöð­unni í Sýrlandi. Francois Hollande, for­seti Frakk­lands, og David Cameron, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hafa báðir sagt það sama.


[caption id="attachment_40236" align="alignnone" width="620"] Sýrland. Stríðs­hrjáð ríki í augna­blik­inu. Á kort­inu sést borgin Homs, þar sem gríð­ar­lega hörð átök hafa átt sér stað, í á fjórða ár. Loft­árásir stjórn­ar­hers­ins í borg­inni hafa verið harð­lega gagn­rýndar. Mynd: Google.[/caption]


Hernaðarlega flókin staða


Rúss­neski her­inn hefur stillt sér upp einkum á þremur stöðum í land­inu. Við Al Sanobar her­stöð­ina, skammt frá borg­inni Latakia, á Bassel al-Assad alþjóða­flug­vell­inum, og við Tartus, sem er um hund­rað kíló­metra frá Latakia. Allir þessir staðir eru við vest­ur­strönd lands­ins, þar sem Mið­jarð­ar­hafið leggst að. Árásin í morgun var tölu­vert innar í land­inu, sam­kvæmt Washington Post, á svæði í grennd við borg­ina Homs, sem er með um eina milljón íbúa. Þar er ástandið hvað verst í land­inu, hús hafa verið jöfnuð við jörðu og óbreyttir borg­arar halda til við illan kost í örvænt­ingu án neyð­ar­að­stoðar. Íslamska ríkið er sagt byggja sínar aðgerðir úr leyni­byrgjum, meðal ann­ars í kringum Homs, þar sem Rússar sprengdu í morgun.


En yfir­ráð í land­inu, til þess að ná stöð­ug­leika, eru ekki handan við hornið. Barist er víða, ekki síst í aust­ur­hluta lands­ins sem á landa­mæri að Írak. Flótta­menn sem flýja frá Írak til Sýrlands eru á væg­ast sagt hættu­legri leið til betra lífs.


Sértækar aðgerðir breska, franska og banda­ríska hers­ins, meðal ann­ars með svo­nefndum drónum, sem eru ómönnuð loft­för, hafa meðal ann­ars miðað að því að skaða víga­menn Íslamska ríks­ins sem ráð­ast á óbreytta borg­ara sitt hvoru megin við landa­mæri Sýrlands og Íraks. Af þeim 250 þús­und borg­urum sem hafa látið lífið í Sýrlandi frá árinu 2011, og þeim 800 þús­und sem hafa slasast, hefur stór hluti fallið á svæð­inu nærri landa­mærum Sýrlands og Íraks. Stór hópur flótta­manna innan úr Sýrlandi hefur safn­ast saman í flótta­manna­búðum í Líbanon, sem á landa­mæri að suð­vest­ur­hluta lands­ins.



Amid Putin’s moves in Syria, Poros­henko tries to divert U.N. attention back to Ukraine. @ReidStan reports. http://t.co/gRpeZuvdKP


— Foreign Policy (@ForeignPolicy) Sept­em­ber 30, 2015



Hvað gera Bandaríkjamenn?


Frum­kvæði Rússa, og skarpar aðgerðir þeirra í Sýrlandi, hafa beint spjót­unum að Banda­ríkja­mönnum. Hvað gera þeir nú, og hvað liggja hags­munir þeirra? Jafnvel þó Obama hafi opnað á sam­starf við Rússa í Sýrlandi, þá er kalt á milli þess­ara stór­velda í augna­blik­inu, og efna­hags­legar þving­anir Banda­ríkj­anna til marks um það. Banda­ríkin standa nú frammi fyrir því að blanda sér beint í átökin, ná frum­kvæði í hern­að­ar­að­gerðum, en að láta Rússa um það að stilla til friðar í Sýrlandi með stjórn­ar­hernum, sem síðan teygir anga sína víðar. Eins og segir í umföllun Foreign Policy, þá hafa banda­rísk stjórn­völd langa reynslu af því að treysta ekki Rússum. Ólíklegt verður að telj­ast að þau leyfi þeim að stýra ferð­inni. En eftir að Rússar form­lega hófu hern­að­ar­að­gerðir í Sýrlandi í morgun, virð­ist blasa við að Banda­ríkja­menn, með Sam­ein­uðu þjóð­unum og eftir atvikum öðrum alþjóð­stofn­unum og banda­lögum þjóða, þurfa að gera upp við sig hvernig þeir ætla að nálg­ast þetta súra epli sem Sýrland er.


Þessi litla stúlka býr við viðvarandi ótta, eins og milljónir manna sem hafa flúið átökin í Sýrlandi, Írak og Afganistan. Mynd: EPA.
Þessi litla stúlka býr við við­var­andi ótta, eins og millj­ónir manna sem hafa flúið átökin í Sýrlandi, Írak og Afganistan. Mynd: EPA.
Sýrland. Stríðshrjáð ríki í augnablikinu. Á kortinu sést borgin Homs, þar sem gríðarlega hörð átök hafa átt sér stað, í á fjórða ár. Loftárásir stjórnarhersins í borginni hafa verið harðlega gagnrýndar. Mynd: EPA.
Sýrland. Stríðs­hrjáð ríki í augna­blik­inu. Á kort­inu sést borgin Homs, þar sem gríð­ar­lega hörð átök hafa átt sér stað, í á fjórða ár. Loft­árásir stjórn­ar­hers­ins í borg­inni hafa verið harð­lega gagn­rýndar. Mynd: EPA.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár