Skýrsla um hagsmuni Íslands af EES kynnt í haust - ári á eftir áætlun

Skýrsla sem leggur mat á hags­muni Íslands af EES-samn­ingnum verður kynnt á kom­andi hausti, að sögn Gunnars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra. Þetta kemur fram í svari hans við fyr­ir­spurn Andrésar Inga Jóns­sonar, vara­þing­manns Vinstri grænna. Fyr­ir­spurnin var lögð fyrir þingið áður en það fór í sum­ar­frí, en svarið var sett inn á vef Alþingis í dag.

Grunn­vinna við skýrsl­una hefur verið unnin í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu en sam­ráð um efn­is­tök hefur verið haft við sam­ráðs­hóp aðila vinnu­mark­að­ar­ins, að því er Gunnar Bragi segir. Þá hefur Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands verið falið að vinna úttekt á tollaí­viln­unum í við­skiptum við Evr­ópu­sam­bandið sam­kvæmt EES-samn­ingnum.

Skýrslan var boðið sem hluti af Evr­ópu­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar, og henni átti upp­haf­lega að skila haustið 2014. Hún átti að liggja fyrir síð­asta haust í til­efni af 20 ára afmæli EES-samn­ings­ins.

Hluti af Evr­ópu­stefn­unni var einnig að rík­is­stjórnin setti sér mark­mið um að inn­leið­ing­ar­halli EES-gerða yrði kom­inn undir eitt pró­sent vorið 2015 og að á sama tíma yrði ekk­ert dóms­mál fyrir EFTA-dóm­stólnum vegna skorts á inn­leið­ingu EES-gerða. Í nýjasta frammi­stöðu­mati Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA, ESA, var inn­leið­ing­ar­hall­inn enn 2,8% í októ­ber í fyrra en nið­ur­stöður frammi­stöðu­mats sem miðar við stöð­una í lok apríl á þessu ári hafa ekki verið birtar, að sögn utan­rík­is­ráð­herra. Gert er ráð fyrir að inn­leið­ing­ar­hall­inn verði um tvö pró­sent. Fimm mál eru nú fyrir EFTA-dóm­stólnum vegna skorts á inn­leið­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár