Ríkisstjórnin hefur aldrei sett haustkosningar á dagskrá

Komandi kosn­ingar hafa aldrei verið settar form­lega á dag­skrá rík­is­stjórn­ar­innar. Upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar segir að margt sé þó rætt í trún­aði þó að það fari ekki á form­lega dag­skrá. Fyrsti rík­is­stjórn­ar­fundur eftir sum­ar­frí var í morgun.

Ríkisstjórn Íslands kom saman í morgun í fyrsta sinn eftir sumarfrí. Þar voru rædd mannréttindamál, málefni kirkjugarða og utanríkisráðherra fór yfir stöðuna í Tyrklandi.
Rík­is­stjórn Íslands kom saman í morgun í fyrsta sinn eftir sum­ar­frí. Þar voru rædd mann­rétt­inda­mál, mál­efni kirkju­garða og utan­rík­is­ráð­herra fór yfir stöð­una í Tyrk­landi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Haust­kosn­ingar hafa aldrei komið á dag­skrá rík­is­stjórn­ar­innar síðan Sigurður Ingi Jóhanns­son tók við for­sæt­is­ráð­herra­emb­ætti í apríl. Rík­is­stjórnin hefur haldið 22 form­lega fundi síðan þá, en í til­kynn­ingum sem sendar hafa verið fjöl­miðlum eftir fund­ina hafa kosn­ingar aldrei verið á dag­skrá. Þá hefur form­lega til­laga um næstu kosn­ingar aldrei verið lögð fyrir rík­is­stjórn.

Margt fari fram í trúnaði

Sigurður Már Jónsson, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar, stað­festir í sam­tali við Kjarnann að haust­kosn­ingar hafi aldrei verið ræddar form­lega í rík­is­stjórn svo hann muni. Hann vill þó hafa þann fyr­ir­vara á að margt sé trún­að­ar­mál sem rætt sé í rík­is­stjórn og sum mál fari aldrei á form­lega dag­skrá.

„Bjarni og Sigurður Ingi hafa báðir svarað mikið fyrir þetta,“ segir Sigurður Már. „Þó að það fari ekki út sem form­leg dag­skrá gætu þeir hafa rætt þetta sín á milli undir ýmis­konar for­merkjum.“

Mannréttindi, Tyrkland og kirkjugarðar

Rík­is­stjórnin kom saman í morgun í fyrsta sinn eftir sum­ar­frí. Þau höfðu fundað form­lega síðan 5. júlí síð­ast­lið­inn. Á dag­skrá rík­is­stjórn­ar­innar í morgun, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, var úttekt Sam­ein­uðu þjóð­anna á mann­rétt­inda­málum og til­lögur á úrbótum í mál­efnum kirkju­garða. Þau mál komu frá Ólöfu Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra. Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra ræddi um stöð­una í Tyrk­landi eftir valda­ráns­til­lög­una.

22 fundir án kosningaumræðu

Á form­legri dag­skrá rík­is­stjórn­ar­innar þann 11. apríl, fyrsta fundi Sigurðar Inga sem for­sæt­is­ráð­herra, ræddi Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra um upp­lýs­ingar um skatta­skjól og við­brögð stjórn­valda við þeim, Ólöf Nordal ræddi um frum­varp til laga um útlend­inga og utan­rík­is­ráð­herra dæddi um erlenda umfjöllun um Ísland tengdri Panama­skjöl­unum. Síðan þá hefur rík­is­stjórnin fundað 21 sinni.

Samkvæmt stjórn­ar­skránni verða 45 dagar að líða frá því að þing­rofs­heim­ild er sam­þykkt og og kosn­ingar fara fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár