Stjórnarandstaðan: Virðingarleysi og valdníðsla – verið að grafa undan þingræðinu

Stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn voru síður en svo ánægðir með vinnu­brögð meiri­hlut­ans á Alþingi við upp­haf þing­fundar. Formaður fjár­laga­nefndar og vara­for­maður báð­ust afsök­unar á mis­tökum sínum.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, er formaður fjárlaganefndar.
Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, er for­maður fjár­laga­nefndar. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn­ar­and­staðan gagn­rýndi harð­lega vinnu­brögð meiri­hlut­ans á Alþingi í dag undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta en þing­fundur hófst í morgun klukkan 10:30.

Rétt eftir að kosið var í nefndir í gær fengu þing­menn þær upp­lýs­ingar að fjár­laga­frum­varp­inu hefði verið vísað til umsagn­ar­að­ila – án þess að fjár­mála­nefnd hefði tekið til starfa. Ekki hefði verið boðað til funda og þar af leið­andi hefði nefndin meðal ann­ars ekki getað ákveðið umsagn­ar­tíma og hverjum bið­ist að senda inn umsagnir.

Formaður og vara­for­maður fjár­laga­nefndar báð­ust afsök­unar á mis­tökum sínum en fjörugar umræður sköp­uð­ust á þingi í morgun um málið.

Eðlilegt að nefndin komi saman áður

Helga Vala Helga­dóttir þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar bað for­seta Alþingis, Birgi Ármanns­son, vin­sam­leg­ast um að fara fram á það við full­trúa rík­is­stjórn­ar­flokk­anna á Alþingi að þeir sýndu „þess­ari merku stofnun snefil af virð­ingu í störfum sínum“.

„Það er ekki í boði að hefja störf Alþingis með þeim hætti að virða hér reglur að vettugi. Það er engin heim­ild fyrir því að senda út beiðni um umsagnir jafn­vel áður en mál er flutt í þing­sal. Það er nefndin sem ákveður það í sam­ein­ingu. Í þessu til­viki hefur hátt­virt fjár­laga­nefnd ekki verið kölluð saman og það er for­kast­an­legt að sá aðili sem stýrir þar hafi óskað eftir því, ef svo hefur verið, að umsagn­ar­beiðnir væru sendar út héðan úr húsi klukkan fjögur í gær,“ sagði hún.

Halldóra Mogensen þing­flokks­for­maður Pírata sagð­ist taka undir áhyggjur varð­andi þessi vinnu­brögð. „Ég velti því fyrir mér: Var það fyrsta emb­ætt­is­verk nýs for­manns fjár­laga­nefndar að kalla eftir umsögnum um mál sem ekki er búið að mæla fyrir, án þess að kalla nefnd­ar­menn saman? Ég veit ekki betur en að það sé eðli­legt að nefndin sé kölluð saman og þar fari meira að segja fram umræða um hversu langur frestur eigi að vera til að skila umsögnum og öðru. Þetta þykir mér stórfurðu­legt, og mér þykir þetta líka vera merki um — þetta er bara einn hluti af svo mörgum, þetta er eitt púsl af svo mörgum púslum sem sýnir ákveðna mynd sem mér finnst dálítið var­huga­verð hvað það varðar að grafa undan þing­ræð­inu.

Er þetta ein­hvers konar blinda hjá stjórn­inni? Átta þau sig ekki á því hvernig þau koma fram? Hér er verið að grafa undan aðhalds­getu stjórn­ar­and­stöð­unnar. Verið er að grafa undan þing­ræð­inu með svona skrefum. Mér finnst að for­seti eigi að taka þetta fyrir og biðja for­mann fjár­laga­nefndar koma sér­stak­lega hingað upp og gera grein fyrir þess­ari ákvörðun sinni. Hvar stendur í reglum þings­ins að þetta megi?“ spurði hún.

Ekki þannig að „sigurvegari taki allt“

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar sagði að þessi vinnu­brögð væru ekki sam­kvæmt þing­ræð­inu og reglum þings­ins.

„Myndin sem er að teikn­ast upp — ég man ekki eftir því, og var hér starfs­ald­urs­for­seti í ein­hvern tíma, að það hafi verið þannig á síð­ustu 20 árum að skipað hafi verið í nefndir með afli meiri­hluta eins og nú er verið að gera. Það eru ákveðin skila­boð. Það eru ákveðin skila­boð sem verið er að senda með þessum vinnu­brögðum núna inn í þingið. Mér finnst miður hvernig rík­is­stjórnin byrjar þetta en ekki síst að það er verið að setja sér­stakt álag á núver­andi virðu­legan for­seta í því hvernig eigi að bregð­ast við. Ég vil hvetja hæst­virtan for­seta til að taka þessu alvar­lega, beina því í þann far­veg að virð­ing Alþingis verði sem mest og við fáum að virkja eft­ir­lits­hlut­verk okkar sem skyldi með fram­kvæmd­ar­vald­inu.“

[adspot]

Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sagð­ist hafa kosið í gær að líta á það sem „sak­leys­is­leg mis­tök hjá for­seta að hann skyldi ná að klúðra sæta­val­inu“.

„Ég kaus hann og geri ráð fyrir að hann muni starfa fyrir okkur öll hér í þing­inu. Við hér í Norð­vestur-Evrópu að minnsta kosti höfum yfir­leitt litið á lýð­ræði tals­vert öðrum augum en mörg önnur ríki, það er við virðum í raun­inni minni­hluta líka. Það er ekki þannig að sig­ur­veg­ari taki allt og eigi allt og megi allt. Það er alla vega ný hug­mynd um íslenskt lýð­ræði. Hér skiptir þess vegna máli að for­seti stigi inn og tryggi það að núna og í fram­tíð­inni þá hafi minni­hlut­inn, sem hefur 40 og eitt­hvað pró­sent þjóð­ar­innar á bak við sig, að minnsta kosti þann rétt sem honum ber,“ sagði hann.

„Mér var tjáð að þetta væri venja“

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður VG og for­maður fjár­laga­nefndar, kom í pontu og baðst afsök­unar á mis­tökum sínum og sagð­ist taka þau á sig.

„Mér var tjáð að þetta væri venja og hefði verið í ára­tugi varð­andi umsagn­ar­ferli fjár­laga­nefndar og síðan hefði það verið tekið fyrir á fyrsta fundi hennar hvort bæta ætti við o.s.frv. En það er alveg rétt að þetta er ekki sam­kvæmt prótókoll­inum. En þetta hefur, eins og ég segi, verið gert mjög lengi og ég taldi mig bara vera að halda áfram því sem gert hefur verið. En ég játa að það eru mis­tök og það eru mín mis­tök og ég vona svo sann­ar­lega að við náum saman um það í fjár­laga­nefnd að vinna vel saman þrátt fyrir að þetta byrji ekki vel af minni hálfu,“ sagði hún.

Flestir þing­menn tóku afsök­un­ar­beiðn­ina gilda í umræð­unum í fram­hald­inu. Guð­mundur Ingi Krist­ins­son þing­flokks­for­maður Flokks fólks­ins sagði að nú væri komin skýr­ing á þessu „stórfurðu­lega máli“.

„Það hlýtur að setja spurn­ing­ar­merki við og hlýtur að telj­ast und­ar­legt þegar maður er ekki búinn að kynna sér fjár­mála­á­ætl­un­ina almenni­lega, hefur varla kom­ist í það, þegar jafn­vel umsagn­ar­að­ilar úti í bæ eru byrj­aðir að vinna í því máli. Ég held að þetta séu vinnu­brögð sem við getum ekki leyft okkur. Við verðum að fara að sýna Alþingi virð­ingu. Við tölum um að við viljum hafa virð­ingu fyrir Alþingi, en á meðan svona vinnu­brögð eru til staðar þá er sú virð­ing ekki til staðar. Við verðum að fara að breyta vinnu­brögð­unum hér,“ sagði hann.

Valdníðslu af hálfu hinnar nýju ríkisstjórnar

Hanna Katrín Frið­riks­son þing­maður Við­reisnar sagði að lögin væru mjög skýr – svona ætti ekki að gera hlut­ina. „Það er fyrst eftir að nefnd hefur fengið mál til umfjöll­unar sem þessi ákvörðun er tekin. Og nefnd fær mál til umfjöll­unar þegar það hefur verið rætt hér á þingi. Gár­ung­arnir segja að nú leiti spuna­meist­arar log­andi ljósi að heiti á þessa nýju rík­is­stjórn. Ég er ekk­ert viss um að þeir séu hrifnir af því heiti sem virð­ist vera að fest­ast, og það er rík­is­stjórn hinna ýmsu ann­marka á fram­kvæmd á lögum. En hér hefur hátt­virtur for­maður fjár­laga­nefndar komið upp, lýst yfir van­þekk­ingu sinni á með­ferð, sem mér þykir reyndar býsna sér­kenni­legt í ljósi starfs­ald­urs.

En gott og vel, sú afsök­un­ar­beiðni er tekin til greina, sam­þykkt, sann­ar­lega, að sjálf­sögðu. En von­andi verður hér lát á því sem ekki er hægt að lýsa öðru­vísi en sem vald­níðslu af hálfu hinnar nýju rík­is­stjórnar, sem seint verður sagt að fari vel af stað,“ sagði hún.

Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sagði að þetta byrj­aði ekki vel og að hún hefði áhyggjur af þess­ari byrjun í því lang­hlaupi sem eitt kjör­tíma­bil er.

„Ég tek afsök­un­ar­beiðni nýs for­manns fjár­laga­nefndar gilda en upp­haf þessa kjör­tíma­bils og upp­haf þing­starfs­ins hér ein­kenn­ist af fauta­skap. Ég er enn að jafna mig eftir að hafa upp­lifað hér og fylgst með hvernig meiri­hlut­inn ákvað að ganga í það að skipa í nefndir og fara alla leið í meiri­hluta­valdi sínu. Það hefur ekki gerst á hinu háa Alþingi frá því á síð­ustu öld, for­seti.

Ég biðla til nýs for­seta Alþingis að sjá til þess að hér verði starfað af fullri virð­ingu og heil­indum í sam­starfi meiri­hluta og minni­hluta og að gætt verði að virð­ingu Alþingis og að hún bíði ekki var­an­lega hnekki vegna upp­hafs þessa kjör­tíma­bils,“ sagði Þórunn.

„Svolítið ankannalegt“ að þurfa alltaf að kalla saman fund nefndar

Bryndís Har­alds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og nefnd­ar­maður í fjár­laga­nefnd, tjáði sig um málið og sagði að hún hlakk­aði mikið til að starfa með for­manni fjár­laga­nefndar og öllum þeim þing­mönnum sem eiga sæti með henni í þeirri nefnd.

„Við vitum öll hvað klukkan slær, það er 2. des­em­ber og fjár­lög koma fram á hverju ári og það er alveg rétt að þau þarf að sam­þykkja fyrir ára­mót. Hátt­virtur þing­maður og for­maður fjár­laga­nefndar kom hér upp og baðst afsök­unar á því að frum­varpið hefði farið í umsagn­ar­ferli og ég tek þá afsök­un­ar­beiðni gilda.

Mig langar engu að síður að koma inn á það, því að hér er verið að ræða um virð­ingu Alþingis, að ég sat í hátt­virtri efna­hags- og við­skipta­nefnd á síð­asta kjör­tíma­bili þar sem við sam­þykktum það einmitt, sem er tekið fram í regl­unum að má gera, að heim­ila for­manni þeirrar nefndar að senda út umsagn­ar­beiðnir. Ég á starfs­reynslu á öðrum vett­vangi en í þing­inu og ég verð að við­ur­kenna, þegar við erum að velta fyrir okkur svona form­festu og virð­ingu og annað, að mér fannst það svo­lítið ankanna­legt að alltaf þyrfti að kalla saman fund til að senda kannski á aðila sem hvort sem er voru farnir að fylgj­ast með mál­inu og fjalla um það. Ég vil því hvetja til þess að við ræðum það í nefnd­unum hvort við viljum hafa verk­lagið með þeim hætti að alltaf þurfi að kalla saman nefnd­ar­fund til að senda út umsagn­ar­beiðnir. Ef það er vilji nefnd­ar­manna þá verður það að sjálf­sögðu þannig enda gera regl­urnar ráð fyrir því,“ sagði hún.

Ekki í boði að fara á svig við reglur þingsins til að „komast heim í jólasteikina“

Margir stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn gagn­rýndu þessi orð Bryn­dísar en meðal þeirra var Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata. Hún sagð­ist þurfa að útskýra fyrir Bryndísi hvers vegna þessar reglur væru eins og þær eru.

„Þegar nefndir koma saman ákveða þær hversu langur umsagn­ar­frest­ur­inn skal vera og hverjum býðst að senda inn umsagnir. Þetta er eitt­hvað sem nefndin ákveður í sam­ein­ingu. Þess vegna þarf nefndin að koma saman til þess að gera þetta, vegna þess að það er ekki bara meiri­hlut­ans að ákveða hverjir hafa eitt­hvað um fjár­lög rík­is­ins að segja. Það er ekki bara meiri­hlut­ans að hafa eitt­hvað um það að segja hversu langan tíma þetta sama fólk hefur, meira að segja þó að það sé þægi­legt akkúrat núna af því að það er svo stutt til jóla og við viljum nú öll kom­ast í jóla­hlé, er það ekki? Það er samt ekki í boði að fara á svig við reglur þings­ins til að kom­ast heim í jólasteik­ina,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Haraldur Bene­dikts­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og vara­for­maður fjár­laga­nefndar lagði orð í belg og sagði að hann væri vit­orðs­maður með for­mann­inum og baðst afsök­unar á hlut sínum í mál­inu.

„En ég vil bara segja hér í þessum ræðu­stól að auð­vitað er þetta rétt­mæt gagn­rýni. Auðvitað er það þannig að nefndin heldur ekki á mál­inu. Það er ekki komið til nefnd­ar­innar og það er nefnd­ar­innar að ákveða umsagn­ar­að­ila og umsagn­ar­frest. Það mun nefndin gera. Við þessar aðstæður þá var ein­fald­lega rætt á fundi með nefnd­ar­rit­ara að vekja athygli á að fjár­laga­frum­varpið væri komið fram. Það er mikið verk að gefa góða umsögn um fjár­laga­frum­varpið. Gagnrýni stjórn­ar­and­stöð­unnar hér er rétt­mæt, ég heyri hana og við virðum þau sjón­ar­mið sem hafa komið fram. Þegar málið kemur til nefnd­ar­innar mun nefndin að sjálf­sögðu funda um það hvaða umsagn­ar­að­ilar senda inn umsögn eða óskað er eftir og hvaða tíma­frestur verði gef­inn,“ sagði hann.

Lærdómur fyrir nefndarformenn og nefndarmenn alla

Nýr for­seti Alþingis, Birgir Ármanns­son, tók til máls í lok umræðna og sagði að hann hefði heyrt þær athuga­semdir sem komið hefðu fram af hálfu þing­manna vegna umsagn­ar­beiðni sem send var út af hálfu for­manns fjár­laga­nefndar.

„Forseti áréttar að það er mik­il­vægt að nefndir fari eftir starfs­reglum nefnda og ákvæðum þing­skapa í störfum sínum og telur að þetta dæmi eigi að vera ákveð­inn lær­dómur fyrir nefnd­ar­for­menn og nefnd­ar­menn alla að haga vinnu­brögðum í sam­ræmi við starfs­reglur og ákvæði þing­skapa,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár