1. Að það var engu lofað. Maður fær engin ábyrgðarskírteini í lífinu en það fæðast alls konar börn og við eigum að sjálfsögðu að taka þeim eins og þau eru. Ég er ekki viss um að ég hefði hugsað svona áður en ég eignaðist dætur mínar eða áður en þessi sjúkdómur fór að láta á sér kræla en ég verð sífellt sannfærðari um að við eigum að mæta börnunum okkar og öllum börnum eins og þau eru, styðja við þau og sýna þeim ástúð, ala þau upp og efla þau til þroska og hugsa um þau, reyna að stuðla að lífsgleði þeirra, hamingju og lífsgæðum, algjörlega óháð því hvort þau eru fötluð eða með sjúkdóm eða ekki. Þetta er í grunninn leiðarljósið sem ég hef í lífinu. Það var engu lofað og maður á ekki að taka neinu sem gefnu. Maður á að taka því sem að höndum ber og …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir