Mynd: Bára Huld Beck

Árið þar sem allar alvöru tilraunir til að breyta sjávarútvegskerfinu voru kæfðar

Sam­herj­a­málið ýtti við þjóð­inni og ákall var um breyt­ingar í íslensku sjáv­ar­út­vegs­kerfi. Rík­is­stjórnin lof­aði aðgerðum. Rúmu ári síðar hefur lítið sem ekk­ert gerst og allar til­raunir til að gera kerf­is­breyt­ingar á sjáv­ar­út­vegs­kerf­inu hafa verið kæfðar.

Eftir að Sam­herj­a­málið svo­kall­aða, þar sem stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins liggur undir grun um að hafa greitt mútu­greiðslur, stundað stór­fellda skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti, kom upp í nóv­em­ber 2019 til­kynnti rík­is­stjórn Íslands að hún myndi grípa til aðgerða í sjö liðum til að auka traust á íslenskt atvinnu­líf.

Á meðal þeirra voru aukið gagn­sæi í rekstri sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja og varnir gegn hags­muna­á­rekstrum og mútu­brotum eru á meðal þeirra að­gerða sem gripið verður til.

Þá ætl­aði Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, að hafa

frum­kvæði að því að Al­þjóða­mat­væla­stofn­unin ynni út­tekt á við­skipta­háttum út­gerða sem stunda veiðar og eiga í við­skiptum með afla­heim­ildir, meðal ann­ars í þró­unar­löndum. Jafn­framt var stefnt að því að ljúka endur­skoðun á skil­grein­ingu á tengdum aðilum í sjávar­út­vegi.

Nú, rúmu ári síðar, hefur nán­ast ekk­ert breyst. Sú vinna sem ráð­ist var í við end­ur­skoðun á tengdum aðilum í sjáv­ar­út­vegi skil­aði því að hjón og aðrir fjöl­skyldu­með­limir munu telj­ast tengdir en áfram verða til staðar mun víð­ari heim­ildir fyr­ir­tækja til að eiga í hvoru öðru án slíkrar skil­grein­ingar en eru í til dæmis lögum um raun­veru­lega eig­endur.

Kjarninn greindi frá því í síð­asta mán­uði að ári eftir að Sam­herj­a­málið var opin­berað var enn ekki búið að und­ir­rita samn­ing við Alþjóða­mat­væla­stofn­un­ina (FAO) um þá úttekt á við­skipta­háttum útgerða sem íslensk stjórn­völd boð­uðu að þau myndu hafa frum­kvæði að.

Fáir halda á mestu

Mikil sam­þjöppun hefur átt sér stað í sjáv­ar­út­vegi á Íslandi á und­an­förnum ára­tugum, eftir að fram­sal kvóta var gefið frjálst og sér­stak­lega eftir að heim­ilt var að veð­setja afla­heim­ildir fyrir banka­lánum, þótt útgerð­ar­fyr­ir­tækin eigi þær ekki í raun heldur þjóðin. Slík heim­ild var veitt árið 1997.

Samhliða hefur eft­ir­lit með fram­fylgd laga um stjórn fisk­veiða lengi verið í lama­sessi. Það var til að mynda stað­fest í kol­svartri skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar sem birt var í byrjun árs 2019. Þar gerði hún meðal ann­ars veru­legar athuga­semdir við að Fiski­stofa kann­aði ekki hvort yfir­ráð tengdra aðila í sjáv­ar­út­vegi yfir afla­hlut­deild­um, eða kvóta, væru í sam­ræmi við lög. Eft­ir­lits­að­il­inn sinnti ekki eft­ir­lit­inu.

Samkvæmt lögum má hver blokk halda á 12 pró­sent af úthlut­uðum kvóta en í gild­andi lögum má eiga allt upp að helm­ingi í annarri útgerð án þess að kvóti sem hún heldur á telj­ist með. Þessi lög eiga að koma í veg fyrir mikla sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi á meðal þeirra fyr­ir­tæki sem fá að vera vörslu­að­ili fiski­mið­anna.

Kristján Þór Júlíusson
Kristján Þór Júl­í­us­son

Samkvæmt síð­ustu birtu tölum Fiski­stofu, sem gefnar voru út í lok apríl, héldu tíu stærstu útgerðir lands­ins sam­tals á tæp­lega 53 pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Sú tala hefur hækkað síðan þá. Þrjár stærstu blokk­irnar í sjáv­ar­út­vegi: Samherji/Síld­ar­vinnslan, Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur/Brim og félög tengd Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga halda á meg­in­þorra þess kvóta, eða um 44 pró­sent alls úthlut­aðs kvóta.

Þetta hefur gerst á sama tíma og hagur útgerða heilt yfir – vöxtur á eigin fé þeirra ásamt útgreiddum arði – hefur vænkast gríð­ar­lega, nánar til­tekið um 480 millj­arða króna á ára­tug. Á sama tíma­bili greiddu útgerðir lands­ins 70 millj­arða króna í veiði­gjöld. Af virð­is­aukn­ing­unni sem varð í geir­anum fóru því tæp 13 pró­sent til eig­anda auð­lind­ar­innar en 87 pró­sent varð eftir hjá þeim sem fá að nýta hana.

Umsvif útgerða í atvinnulífinu kortlögð

Vís­bend­ingar eru um að þessi mikla auð­söfnun fárra aðila hafi leitt til þess að fjár­fest­ingar þeirra út fyrir grein­ina hafi auk­ist í sam­ræmi við hinn aukna auð. Afleið­ing­arnar eru veru­leg upp­söfn­un eigna og áhrifa á fárra hendur og veru­lega áhyggjur eru víða um að virki sam­keppni á mörk­uðum sé fyrir vikið að drag­ast saman. Ísland er sér­stak­lega við­kvæmt fyrir slíkri sam­þjöppun og fákeppni vegna smæðar sinnar.

Vegna þessa lögðu alls 20 þing­menn, 18 úr stjórn­ar­and­stöðu og tveir þing­menn Vinstri grænna, nýverið fram beiðni um að sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra láti gera skýrslu um eign­ar­hald 20 stærstu útgerð­ar­fé­laga í íslensku atvinnu­lífi. Fyrsti flutn­ings­maður máls­ins er Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisn­ar.

Þing­menn­irnir vilja að ráð­herr­ann láti taka saman fjár­fest­ingar útgerð­ar­fé­lag­anna, dótt­ur­fé­laga þeirra og félaga þeim tengdum í félögum sem ekki hafa útgerð fiski­skipa með höndum á síð­ustu 10 árum og bók­fært virði eign­ar­hluta þeirra í árs­lok 2019.

Í beiðn­inni er sér­stak­lega farið fram á að í skýrsl­unni verði raun­veru­legir eig­endur þeirra félaga sem yrði til umfjöll­unar til­greindir og sam­an­tekt á eign­ar­hlut 20 stærstu útgerð­ar­fé­lag­anna í íslensku atvinnu­lífi byggt á fram­an­greindum gögn­um.

Svæft í nefnd

Nokkrar til­raunir hafa verið gerðar á und­an­förnum árum til að taka á þeirri stöðu sem komin er upp í sjáv­ar­út­vegi á Íslandi og brjóta upp hringa­mynd­anir í geir­anum. Slíkar hug­myndir fengu byr í seglin eftir að Sam­herj­a­málið var opin­berað í nóv­em­ber 2019.

Þorri þeirra til­rauna hefur verið kæfður. Nið­ur­staðan eru engar sýni­legar breyt­ingar á kerf­inu.

Fyrir um ári síðan, nánar til­tekið 6. des­em­ber 2019, lögðu þing­menn úr þremur stjórn­ar­and­stöðu­flokkum: Viðreisn, Sam­fylk­ingu og Pírötum, fram frum­varp sem fól í sér kúvend­ingu á því kerfi sem er við lýði vegna nýt­ing­ar­réttar á fisk­veiði­auð­lind­inni.

Í frum­varp­inu fólust þrjár megin breyt­ingar. Í fyrsta lagi yrðu þeir aðilar skil­greindir sem tengdir sem eiga að minnsta kosti tíu pró­sent hluta­fjár í öðrum sem heldur á meira en eitt pró­sent kvóta. Sama átti að gilda um kröfur sem gerðu það að verkum að ætla megi að eig­andi þeirra hafi áhrif á rekstur aðila sem ræður yfir eitt pró­sent hluta­fjár eða meira. Samkvæmt gild­andi lögum þarf sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki að eiga meiri­hluta í annarri útgerð til að hún telj­ist tengd, en eft­ir­lit með því hvað telj­ist tengdir aðilar hefur auk þess verið í lama­sessi.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, var fyrsti flutningsmaður frumvarpsins sem lagt var fram í fyrra. Það var svæft í nefnd.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, var fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins sem lagt var fram í fyrra. Það var svæft í nefnd.

Í öðru lagi gerði frum­varpið ráð fyrir að allir þeir sem ráða yfir eitt pró­sent heild­ar­afla­hlut­deildar þurfi að stofna hluta­fé­lag um rekst­ur­inn og skrá félagið á markað. Það myndi þýða, að óbreyttu, að 21 sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki þyrftu að skrá sig á markað til við­bótar við Brim, sem er eina fyr­ir­tækið sem heldur á kvóta sem er skráð í dag.

Í þriðja lagi lagði frum­varpið til að settar yrðu tak­mark­anir við hluta­fjár­eign eða atkvæð­is­rétt ein­stakra hlut­hafa og tengdra aðila í útgerðum sem fara með átta til tólf pró­sent af kvóta. Í frum­varp­inu sagði að í slíkum útgerð­ar­fyr­ir­tækjum ætti eng­inn aðili, ein­stak­lingur, lög­að­ili eða tengdir aðilar, að eiga „meira en tíu pró­sent af hlutafé, stofnfé eða atkvæð­is­rétti í við­kom­andi aðila. Þessu ákvæði er ætlað að koma í veg fyrir frek­ari sam­þjöppun eign­ar­að­ildar í allra stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækj­unum.“

Frum­varpið, sem unnið var af þing­mönnum Við­reisnar sem fengu svo stuðn­ing úr hinum flokk­unum tveimur, fékk að ganga til atvinnu­vega­nefndar þar sem það var svæft.

Hjón yrðu talin tengdir aðilar

Eftir að áður­nefnd svört skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar var birt skap­að­ist nokkur þrýst­ingur á úrbætur. Skipuð var verk­efna­stjórn sem fékk það hlut­verk að leggja þær til. Vinnu hennar var flýtt eftir að Sam­herj­a­málið kom upp.

Í febr­úar 2020 kynnti Krist­ján Þór drög að frum­varpi um breyttar skil­grein­ingar á því hvað telj­ist tengdir aðil­ar sem byggði á vinnu verk­efna­stjórn­ar­innar.

Í þeim drögum kom fram að þeir sem laga­breyt­ingin hefur áhrif á munu hafa fram á fisk­veiði­árið 2025/2026 til að koma sér undir lög­bundið kvóta­þak, eða sex ár.

Í til­­lög­un­um, sem voru fimm tals­ins, fólst að skil­­grein­ing á tengdum aðilum verði látin ná til hjóna, sam­­búð­­ar­­fólks og barna eða fóst­ur­barna þeirra, að ákveðin stjórn­­un­­ar­­leg tengsl milli fyr­ir­tækja leiði til þess að fyr­ir­tækin eru talin tengd nema sýnt sé fram á hið gagn­­stæða, að skil­­greint verði hvað felst í raun­veru­­legum yfir­­ráðum, að aðilar sem ráða meira en sex pró­­sent af afla­hlut­­deild eða 2,5 pró­­sent af krókafla­hlut­­deild skulu til­­kynna til Fiski­­stofu áætl­­aðan sam­runa, eða kaup í félagi sem ræður yfir hlut­­deild eða kaup á hlut­­deild og koma kaupin ekki til fram­­kvæmda nema sam­­þykki Fiski­­stofu liggi fyrir og að Fiski­­stofu verði veittar auknar heim­ildir til afla gagna.

Í til­­lög­unum var hvorki tekin afstaða til reglna um hámarks­afla­hlut­deild né kröfu um hlut­­fall meiri­hluta­­eignar í tengdum aðil­­um.

Meirihluti nefndar varði kvótaþakið

Þegar loka­skýrsla verk­efna­stjórn­ar­innar var birt í sumar kom í ljós að hann gerði engar til­lögur að breyt­ingum á kvóta­þaki eða kröfu um hlut­­fall meiri­hluta­­eignar í tengdum aðil­um í nýrri skýrslu verk­efna­stjórnar um bætt eft­ir­lit með fisk­veiði­auð­lind­inni.

Oddný Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sem sat í nefnd­inni, gerði fyr­ir­vara við nið­ur­stöð­una og vildi að ákvæði laga um hámarks­afla­hlut­deild yrði breytt í sam­ræmi við þau ákvæði sem er að finna í lögum um skrán­ingu raun­veru­­legra eig­enda. Þar er miðað við 25 pró­­sent beinan eða óbeinan eign­­ar­hlut til að aðilar telj­ist tengdir eða aðili telj­ist raun­veru­­legur eig­and­i.

Oddný tal­aði fyrir þess­ari breyt­ingu á vett­vangi nefnd­ar­innar, en hún hlaut ekki hljóm­grunn hjá hinum nefnd­ar­mönn­unum. Þeir voru Sigurður Þórð­ar­son, fyrr­ver­andi rík­is­end­ur­skoð­andi, Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Ölfusi og áður bæj­ar­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks í Vest­manna­eyjum, Bryn­hildur Bene­dikts­dóttir, sér­fræð­ingur í sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu, og Hulda Árna­dóttir lög­maður.

Frumvarp Páls myndi litlu breyta

Undir lok árs var svo lagt fram nýtt frum­varp sem teng­ist þessu máli. Flutn­ings­maður þess er Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks.

Í því er gert ráð fyrir að hlut­falls­leg eign útgerðar í öðrum sem halda á kvóta telji þegar reikn­aður er út sá kvóti sem blokkin heldur á en að kvóta­þakið verði áfram tólf pró­sent.

Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði frumvarp um kvótaþak fram í lok árs 2020.
Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, lagði frum­varp um kvóta­þak fram í lok árs 2020.

Útreikn­ingar Kjarnans sýna að verði frum­varp Páls að lögum myndi það ein­ungis knýja eina sjáv­ar­út­vegs­blokk til að selja lít­inn hluta af upp­söfn­uðum kvóta sínum, en gefa öðrum tæki­færi til að bæta mun meira við sig en t.d. ef stuðst væri við sömu við­mið og í lögum um raun­veru­lega eig­endur.

Sam­herj­a­sama­stæðan heldur á mestu kvóta á Íslandi. Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja hf, er með næst mesta afla­hlut­­­deild í íslenskri efna­hags­lög­­sögu allra sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 7,02 pró­­­sent. ­Út­­­­­gerð­­­­­­­ar­­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,3 pró­­­­­­­sent kvót­ans og Sæból fjár­­­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­­fé­lag, sem það sama gildir um, heldur á 0,64 pró­­­­­­­sent hans.

Samherji á svo, beint og óbeint, 49,9 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni. For­svars­menn beggja fyr­ir­tækja hafa ætið svarið það af sér opin­ber­lega að þau séu tengd og vísað í að eign­ar­hlutur Samherja í Síld­ar­vinnsl­unni sé eins lítið undir því marki sem gild­andi lög setja til að aðilar telj­ist tengdir.

Kjarn­inn greindi hins vegar frá því í frétta­­skýr­ingu 20. nóv­­em­ber 2019 að þegar Sam­herji kynnti sam­­stæðu sína erlendis á árum áður þá var Síld­­ar­vinnslan kynnt sem upp­­­sjá­v­­­ar­hluti hennar og myndir birtar af starf­­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta sýndu glæru­kynn­ingar sem voru hluti af þeim gögnum sem Wikileaks birti vegna Sam­herj­­a­­máls­ins. Þá er Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar.

Síld­­­­­­­ar­vinnslan með 5,2 pró­­­sent afla­hlut­­­deild og Berg­­­ur-Hug­inn, í eigu Síld­­­ar­vinnsl­unn­­­ar, er nú með tæp­lega 2,7 pró­­­sent af heild­­­ar­kvóta til umráða.

Auk þess á Síld­­ar­vinnslan 75,20 pró­­sent hlut í Run­ólfi Hall­freðs­­syni ehf., sem heldur á 0,62 pró­­sent af úthlut­uðum kvóta. Sam­an­lagt er þessi blokk með að minnsta kosti 17,5 pró­­­sent afla­hlut­­­deild.

Verði frum­varp Páls sam­þykkt mun hún þó ekki reikn­ast þannig heldur mun heild­ar­um­fang þess kvóta sem Samherji heldur á telj­ast tæp­lega 13,2 pró­sent. Samherji þyrfti því að losa sig við tæp­lega 1,2 pró­sent af þeim heim­ildum sem sam­stæðan heldur á á næstu tæpu sex árum.

Næst stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar er félagið Kjálka­nes ehf. Á meðal helstu hlut­hafa þess er Björgólfur Jóhanns­son, hinn for­stjóri Sam­herja, og fjöl­skylda hans. Sami hópur á einnig útgerð­ar­fé­lagið Gjög­ur, sem heldur á 2,29 pró­sent af öllum úthlut­uðum afla­heim­ild­um. Ef sá kvóti er talin með ofan­greindu er ljóst að rétt undir fimmt­ungur (19,79 pró­sent) af öllum úthlut­uðum afla­heim­ildum lands­ins eru á höndum fyr­ir­tækja sem eru að ein­hverju leyti í eigu þeirra tveggja manna sem sitja í for­stjóra­stólum Sam­herja.

Engin bein áhrif á hina risana

Hinir tveir risarnir í íslenskum sjáv­ar­út­vegi: Brim og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, yrðu ekki fyrir neinum nei­kvæðum áhrifum af þessum breyt­ingum. Þvert á móti má færa rök fyrir því að svig­rúm þeirra til að safna að sér meiri kvóta auk­ist, sér­stak­lega þegar frum­varp Páls er borið saman við aðrar fram­komnar hug­myndir um aðgerðir gegn sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi.

Brim, eina útgerð­ar­fyr­ir­tækið sem skráð er á íslenskan hluta­bréfa­markað, heldur á 10,13 pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Útgerð­ar­fé­lag Reykja­vík­ur, sem á 43,97 pró­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt RE-13 ehf, hefur fengið úthlutað 3,51 pró­sent af öllum afla­heim­ild­um. Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur er að uppi­stöðu í eigu Guð­mundar Krist­jáns­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra og stjórn­ar­manns í Brim­i.

Brim er eina útgerðarfyrirtæki landsins sem skráð er á hlutabréfamarkað.
Brim er eina útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins sem skráð er á hluta­bréfa­markað.

Til við­bótar heldur útgerð­ar­fé­lagið Ögur­vík, að fullu í eigu Brims, á 1,55 pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Þessi þrjú félög eru því með 15,19 pró­sent af úthlut­uðum kvóta.

Samkvæmt reikni­regl­unni í frum­varpi Páls myndi Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur reikn­ast með um 8,6 pró­sent afla­hlut­deild og gæti bætt við sig rétt um 3,4 pró­sent af heild­ar­kvóta án þess að reka sig upp í þakið.

Kaup­­­­fé­lag Skag­­­­firð­inga á FISK Seafood, sem heldur á 5,5 pró­­­­sent heild­­­­ar­kvót­ans. FISK á 32,9 pró­­­­sent í Vinnslu­­­­stöð­inni í Vest­­­­manna­eyjum sem er með 4,5 pró­sent heild­­­­ar­afla­hlut­­­­deild. Þá á Vinnslu­stöðin 48 pró­sent hlut í útgerð­ar­fé­lag­inu Hug­inn í Vest­manna­eyj­um, sem heldur á 0,76 pró­sent af útgefnum kvóta.

FISK á til við­bótar allt hlutafé í Soff­an­­­­ías Cecils­­­­son, en það fyr­ir­tæki heldur á um 0,3 pró­­­­sent kvót­ans. Sam­tals nemur heild­­­­ar­kvóti þess­­­­ara þriggja rétt yfir ell­efu pró­sent, og er því undir 12 pró­­­­sent mark­inu þótt þeir yrðu skil­­­­greindir með öðrum hætti.

Verði frum­varp Páls að lögum myndi FISK skil­grein­ast með um 7,4 pró­sent afla­hlut­deild og getur bætt við sig veru­lega til að rekast upp í þakið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2020

Pistill

Sandra B. Franks

Far­ald­ur­inn yfir­skyggði allt

Á við­burða­ríku ári sem nú er liðið yfir­skyggði Covid-19 far­ald­ur­inn allt annað. Hann reyndi veru­lega á starfs­þrek heil­brigð­is­starfs­manna og ekki síst okkur sjúkra­liða. Mörg okkar voru í fram­lín­unni. Aðrir sjúkra­liðar stóðu vakt­ina í störfum sem ekki voru síður mik­il­væg. Ég er mjög stolt af því hve frá­bær­lega sjúkra­liða­stéttin hefur staðið sig í Covid far­aldr­inum. Hann hefur svo sann­ar­lega beint athygl­inni...

Mest lesið undanfarið ár