„Mest langar mig til að fá starfsmenn umboðsmanns hingað, hrista þá til og láta þá hanga :P“

Skúli Þór Gunn­steins­son, lög­fræð­ingur í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, sendi skrif­stofu­stjóra tölvu­póst þar sem hann gerði stjórn­ar­mönnum Afstöðu upp ann­ar­legar hvatir og sagð­ist vilja tuska starfs­menn umboðs­manns Alþingis til.

Skúli Þór Gunn­steins­son, lög­fræð­ingur og stað­geng­ill skrif­stofu­stjóra í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, hefur verið færður til í starfi eftir að tölvu­póstur frá honum rataði fyrir slysni í hendur for­manns Afstöðu, félags fanga á Íslandi. 

Póst­ur­inn var ætl­aður skrif­stofu­stjóra hjá ráðu­neyt­inu og hafði að geyma drög að svari við fyr­ir­spurn sem umboðs­maður Alþingis hafði sent vegna athug­unar á lög­mæti reglna sem settar voru um bann við heim­sóknum fanga á milli fanga­klefa. Stöð 2 fjall­aði um málið í kvöld­fréttum en Stundin hefur umræddan tölvu­póst undir höndum. Þar segir m.a. orð­rétt:

Ég er orð­inn býsna þreyttur á þessu máli.  Mest langar mig til að fá starfs­menn umboðs­manns hingað, hrista þá til og láta þá hanga :p  og benda þeim á að þeir sem eru að kvarta, þ.e. Afstaða, eru þeir sem hafa verið að berja á öðrum föngum og eru eðli­lega ósáttir við þessa regl­urnar.

Stundin sendi inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu fyr­ir­spurn um málið síð­degis en hefur ekki fengið svör. Í frétt Stöðvar 2 var hins vegar greint frá því að ráðu­neytið hefði til­kynnt að í umræddum tölvu­pósti væri að finna „efni sem sé á allan hátt ófag­legt og fjarri því að fela í sér afstöðu ráðu­neyt­is­ins“. Ráðu­neytið og starfs­mað­ur­inn hefðu beðist afsök­unar. 

Skúli Þór hefur áður ratað í fjöl­miðla vegna ófag­legra vinnu­bragða. Árið 2014 greindi Vísir frá því að kona hefði sent inn­ran­rík­is­ráðu­neyt­inu kröfu vegna þess að Skúli fjall­aði um per­sónu­lega hagi hennar í emb­ætti sínu sem lög­fræð­ingur inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Fram kom að Skúli væri vinur fyrrum sam­býl­is­manns kon­unnar og hefði fjallað um sam­búð­ar­slit þeirra og skap­gerð hennar í bréfi sem hann sendi lög­fræð­ingi Barna­vernd­ar­stofu. „Ég vildi bara láta þig vita varð­andi þessa tvo fugla,“ sagði meðal ann­ars í bréf­inu.

Aðal­heiður Ámunda­dóttir, lög­fræð­ingur sem situr í stjórn Afstöðu, segir í færslu á Facebook-síðu sinni að málið hafi reynst stjórn­ar­mönnum í félag­inu erfitt. „Að vera bendl­aður við ofbeldi gegn þeim sem maður starfar fyrir er mjög vond til­finn­ing. Hún er ekki síður sár þegar maður hefur lagt sig allan fram við að gera góða hluti,“ skrifar hún og bætir við að stjórnin hafi mik­inn metnað, vinni án end­ur­gjalds fyrir félagið og af eld­móði og ástríðu. Hrós hefði því verið við hæfi frekar en dylgjur á borð við þær sem fram komu í bréfi Skúla. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár