Mynd: EIA

Blóðblettir á parketinu

Þau eru úr eik, beyki, hlyni eða furu. Svo fal­leg með sínar dökku æðar og form­fögru kvisti. Parket er án efa eitt vin­sælasta gól­f­efni Vest­ur­landa­búa sem þrá að færa hlýju nátt­úr­unnar inn í stofur stór­borg­anna. En hvaðan kemur allur þessi viður?

Eftirför. Falin mynda­vél. Upp­töku­tæki í penna. Dul­ar­gervi. Full­trúar EIA og sam­starfs­menn lögðu sig í hættu við að afla upp­lýs­inga um glæp­sam­legt athæfi sem stundað er á afviknum stöðum. Athæfi sem var og er enn að eiga sér stað allt frá Rúss­landi til Kína og frá Rúmeníu til Perú. Það varð að fara gæti­lega enda ljóst að hinir meintu glæpa­menn svifust einskis til að smygla varn­ingi sínum milli landa og inn á markað. Þeir hót­uðu sak­lausu fólki líf­láti og myrtu jafn­vel gagn­rýnendur sína.

Hin ólög­lega starf­semi sem reynt var að upp­ræta með þessum leyni­legu aðgerðum og rann­sóknum sner­ist ekki um fíkni­efni, vopna­sölu eða man­sal. Heldur um umfangs­mikið og ólög­legt skóg­ar­högg – arð­rán stór­fyr­ir­tækja og eyði­legg­ingu nátt­úr­unnar í fátækum sam­fé­lögum víðs vegar um heim­inn.

Í heim­ild­ar­mynd­inni Wood, sem frum­sýnd var fyrr á þessu ári og er meðal mynda sem sýndar verða á RIFF í ár, er fjallað um ólög­legt skóg­ar­högg og þann umfangs­mikla iðnað sem á því hagn­ast. Hvernig lög og reglur eru þver­brotnar, hvernig timbr­inu er smyglað út úr frið­löndum og til ann­arra landa þar sem það er unnið og því svo pakkað í snyrti­legar umbúðir þekktra fram­leið­enda og selt í bygg­inga­vöru­versl­unum.

Það er lík­lega ekki á allra vit­orði en ólög­legt skóg­ar­högg og smygl á timbri eru fjórðu umfangs­mestu ólög­legu við­skipti sem fara fram í heim­inum um þessar mundir. Það er hægt að hagn­ast gríð­ar­lega á við­skiptum með timbur. Um það vitna árs­skýrslur stórra fyr­ir­tækja sem slík við­skipti stunda. Gæða timbur er eft­ir­sótt, m.a. í parket sem er eitt vin­sælasta gól­f­efnið í vest­rænu sam­fé­lagi.

En hvaðan kemur allt þetta timbur? Og geta þeir sem kaupa sér parket til að fegra heim­ili sín verið þess full­vissir að eikin, hlyn­ur­inn, ask­ur­inn, furan eða beykið hafi verið fellt með vit­und, vilja og leyfi yfir­valda og í sam­ræmi við lög og reglur? Að ekki hafi verið gengið á forna og jafn­vel frið­aða skóga – með ósjálf­bærum hætti? Að gegn­heila par­k­etið, sem gerir heim­ilið svo hlý­legt með sínum æðum og kvistum, hafi ekki skilið eftir sig blóð­uga slóð og arð­rán sam­fé­laga fólks sem hafa nytjað skóg­ana í sínu nærum­hverfi? Og að fólk og önnur dýr hafi ekki misst heim­kynni sín vegna skóg­ar­höggs­ins?

EIA stendur fyrir Environ­mental Investigation Agency sem eru óháð banda­rísk félaga­sam­tök er stunda rann­sóknir á sviði umhverf­is­mála. Samtökin beita óhefð­bundnum aðferðum, vinna með öðrum sam­tökum og blaða­mönnum um allan heim til að afhjúpa rányrkju og meng­andi starf­semi sem oftar en ekki fer fram á kostnað nátt­úr­unnar og fátæks fólks og frum­byggja svæða þar sem auð­lind­irnar er að finna.

Umhverfisfræðingur verður rannsóknarblaðamaður

Fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna er Alex­ander von Bismarck. Hann er umhverf­is­fræð­ingur frá Harvard-háskóla í Banda­ríkj­unum og með meistara­gráðu í sömu vís­indum frá London School of Economics. Áður en hann hóf störf hjá EIA stund­aði hann rann­sóknir við Harvard-háskóla, m.a. á sam­spili hag­sældar og heil­brigðis vist­kerfa og fólks. Nú fer hann fyrir rann­sóknum EIA, sem gerðar eru víða um heim, m.a. á ólög­legu skóg­ar­höggi, veiði­þjófn­aði og ólög­mætri notkun skað­legra og meng­andi efna í land­bún­aði og iðn­aði.

Og það er hann sem leiðir áhorf­endur Wood inn í fágæta frum­skóga Evrópu og regn­skóga Amazon í Suður-Ameríku í leit að upp­runa timb­urs­ins sem almenn­ingur á Vest­ur­löndum tekur sem sjálf­sögðum hlut án þess að leiða hug­ann að því hvaðan það kemur, hvernig þess er aflað, hverjir njóta ágoð­ans og hverjir skað­ast og hvernig.

Í upp­hafi mynd­ar­innar erum við stödd í barr­skóga­belt­inu aust­ast í Rúss­landi á svæði sem er síð­asta nátt­úru­lega heim­kynni Síber­íu­tíg­urs­ins á jörð­inni. Í skóg­inum eru sum staðar risa­vaxin og gömul eik­ar­tré. En á botni hans má finna ummerki eftir manna­ferðir. Djúp för eftir dekk stór­virkra vinnu­véla og flutn­inga­bíla. Og aug­ljós merki um skóg­ar­högg. Það er ljóst að þær hafa ekki verið nein smá smíði, eik­urnar sem felldar hafa verið í þessu friðlandi og fluttar á brott. Þeim er smyglað til Kína þar sem timbrið er sagað niður í verk­smiðju og verka­menn sitja saman með fjalir og pússa þær með sand­pappír. Að því loknu fara þær í gegnum vél, fá bað í við­ar­vörn og koma út sem áferð­ar­fal­legt eik­arpar­ket. Því er svo pakkað í umbúðir merktar banda­rískri versl­un­ar­keðju. „Hvað sem þú vilt, ég get afgreitt það,“ segir yfir­maður verk­smiðj­unnar við rann­sak­endur EIA sem eru komnir á hans fund undir því yfir­skini að kaupa parket.

Einyrkjarnir sem urðu frá að hverfa

Fyrir um tveimur ára­tugum voru mörg hund­ruð hús­gagna­smiðir með verk­stæði í næsta nágrenni skóga í Rúmeníu. Á næstu árum misstu þeir allir vinn­una. Þeir fengu ekki lengur við­inn sem þeir þurftu. Þá hafði aust­ur­ríska fyr­ir­tæk­inu Schweighofer vaxið fiskur um hrygg í land­inu eftir að hafa fengið stórt land­svæði árið 2004 til skóg­ar­höggs og opnað stórar verk­smiðjur til timb­ur­vinnslu.

Inn á milli hárra trjánna í einum síð­asta frum­skógi Evrópu er eins og felli­bylur hafi farið yfir. Skóg­lendið er ekki sam­fellt lengur, í því eru stórar eyður – trjá­laus belti með einu og einu tré, oft beru, á stangli. Þetta er þjóð­garður og þar er stundað umfangs­mikið og ólög­legt skóg­ar­högg. „Allir eru að stela. Jafnvel þótt að það væri lög­legt að höggva í þessum skógum mætti ekki höggva svo ung tré,“ segir rúm­enskur sam­starfs­fé­lagi EIA. „Og eng­inn gerir neitt til að stöðva þetta.“

Skóg­ar­höggs­menn, bæði þeim sem hafa leyfi til skóg­ar­höggs og þeim sem hafa það ekki, vilja selja Schweighofer afrakstur vinnu sinnar. Þeir borga best. En trjá­bol­irnir eru keyptir ómerktir án þess að sýna þurfi nokkra papp­íra. Þeir eru jafn­vel affermdir í einni af verk­smiðjum fyr­ir­tæk­is­ins í skjóli nætur. Á hverjum sól­ar­hring eru digrir trjá­bolir teknir af 120 risa­stórum flutn­inga­bílum.

Alex­ander von Bismarck og sam­starfs­menn hans í Rúmeníu elta flutn­inga­bíl­ana út úr þjóð­garð­inum. Upp um þá kemst og þeir þurfa að gæta sín. Vopnaðir földum mynda­vélum, í dul­ar­gervi og með falsað nafn­spjald upp á vas­ann, fara rann­sak­end­urnir á fund for­svars­manna Schweighofer. „Ekkert mál,“ segja þeir við öllum óskum Bismarcks og félaga sem þykj­ast vera með mikið magn af greni til sölu, frá svæði sem þarf að ryðja fljótt. Milli­stjórn­endur jafnt sem yfir­menn fyr­ir­tæk­is­ins kinka stöðugt kolli – það er hægt að upp­fylla allar óskir þeirra sem vilja selja trjá­boli án nokk­urra papp­íra.

„Á hverju ári er hogg­inn skógur í Rúmeníu á stærð við höf­uð­borg­ina Búkarest,“ segir Bogdan Micu, frum­kvöð­ull og nátt­úru­vernd­ar­sinni sem barist hefur fyrir vernd skóga með tækni­lausnir að vopni. „Og vissir þú að aðeins um helm­ingur skóg­ar­höggs­ins er lög­legur?“

Alexander von Bismarck sker skegg sitt og fer í dulargervi á fund yfirmanna timburverksmiðjanna í Rúmeníu.
Alex­ander von Bismarck sker skegg sitt og fer í dul­ar­gervi á fund yfir­manna timb­ur­verk­smiðj­anna í Rúmeníu.

Skóg­ar­höggs­menn­irnir í Rúmeníu eru ekki endi­lega starfs­menn Schweighofer. Þeir sjá sér leik á borði í þessum iðn­aði, fella tré og selja hæst­bjóð­anda. En þeir gætu bráð­lega þurft að finna sér eitt­hvað annað að gera rétt eins og hús­gagna­smið­irnir forðum daga. For­svars­menn Schweighofer segja þá stund nálg­ast að finna verði annan markað.

Það er ekki lengur nægi­legt hrá­efni til timb­ur­fram­leiðsl­unnar í Rúmeníu.

Níðst á frumbyggjum Perú

EIA-teymið er einnig við rann­sóknir í Perú. Þar er staðan jafn­vel enn verri en í Rúmeníu því frum­byggjarnir í og við Amazon-skóg­inn eru mis­not­aðir illi­lega við rányrkj­una. Nöfn þeirra eru notuð og und­ir­skriftir þeirra fals­aðar á umsóknir um leyfi til skóg­ar­höggs. Stjórn­kerfið er allt spillt, segir fólkið, bugað and­spænis gríð­ar­sterkum pen­inga­öflum.

Með þeim hætti eru litlu og fátæku sam­fé­lögin í Perú notuð til að hylma yfir ólög­legu skóg­ar­höggi. Án þess að þau hafi hug­mynd um það. Þannig sjá þau engan ágoða af nýt­ingu nátt­úru­auð­lind­anna sem þau hafa sjálf nýtt með sjálf­bærum hætti í aldir og hafa enn ein leyfi til að nýta. Mótmæli fólkið er því hótað líf­láti. Það ótt­ast því ekki aðeins um lífs­við­ur­væri sitt heldur líf sitt.

„Skóg­ar­höggs­menn­irnir kom­ast upp með allt,“ segir maður sem barist hefur gegn ólög­legu skóg­ar­höggi við þorp sitt í skóg­inum. „Ef þú ætlar að nýta skóg­ana, gerðu það með lög­legum hætti. Ef þú ætlar að græða pen­inga á skóg­unum, gerðu það með lög­legum hætti. En þeir hafa ekki rétt til að arð­ræna fátækt fólk.“

Flæðir um alla Evrópu

„Meira en 50 pró­sent af skóg­ar­höggi í Rúmeníu er ólög­legt og við­ur­inn flæðir svo um alla Evrópu,“ segir Alex­ander von Bismarck er hann kynnir nið­ur­stöður rann­sóknar EIA á blaða­manna­fundi í Vín­ar­borg. „Það er nauð­syn­legt að þeir sem versla með við­inn viti hver staðan raun­veru­lega er svo þeir geti brugð­ist við. Aðeins þannig mun eitt­hvað breyt­ast í Rúmeníu.“

Schweighofer er risa­stórt á þessum mark­aði í Rúmeníu, kaupir meira en helm­ing af öllum trjám sem felld eru. „Það er því aug­ljóst að þeir geta nýtt sér þessa mark­aðs­ráð­andi stöðu til að þrýsta á yfir­völd varð­andi lög og reglur. Og þeir hafa ekki verið feimnir við að gera það,“ segir von Bismarck.

Til fund­ar­ins er mætur einn fram­kvæmda­stjóri Schweighofer Group, móð­ur­fé­lags­ins sem er með höf­uð­stöðvar sínar í Vín. „Af hverju eruð þið að stela síð­asta frum­skógi í Evrópu?“ spyr blaða­maður hann. „Hendur okkar eru hreinar,“ svarar hann og bendir á yfir­völd í Rúmeníu. „Og starfs­fólk okkar er mjög von­svikið vegna þess­ara ásak­ana. Þetta er virki­lega óþægi­legt. En við fáum aldrei tæki­færi til að útskýra málið. Hags­muna­að­ilar hafa hag af því að kerfið sé svona.“

Eruð þið ekki hags­muna­að­ilar?

„Engan veg­inn.“

Stófellt og ólöglegt skógarhögg er stundað í Amazon-frumskóginum í Perú.
Stófellt og ólög­legt skóg­ar­högg er stundað í Amazon-frum­skóg­inum í Perú.

Schweighofer-fjöl­skyldan hefur stundað skóg­ar­högg í fjórar aldir en það var þó ekki fyrr en á sjötta ára­tug þeirrar síð­ustu sem hún fór að færa út kví­arnar í þeim efnum. Ein sög­un­ar­mylla í Aust­ur­ríki var ekki lengur nóg og eftir fjólu­bláu bylt­ing­una og Tékkland varð til, nýtti fjöl­skyldan tæki­færið og hóf að byggja upp risa­stórt við­skipta­veldi með timbur sem varð það þriðja stærsta á heims­vísu rétt fyrir síð­ustu alda­mót.

Við­skipti með timbur hafa því gert kaup­sýslu­mann­inn Gerald Schweighofer að einum rík­asta manni Aust­ur­ríkis.

„Í nokkra daga hefur fyr­ir­tækið okkar og starfs­menn okkar fengið á sig alvar­legar ásak­anir,“ segir hann ábúð­ar­fullur í ávarpi sem birt er á net­inu eftir að við­skipta­hættir fyr­ir­tækis hans eru orðnir frétta­efni víða. „Það er gefið í skyn að við, af öllu fólki, séum að skaða skóga í Rúmeníu með ólög­legum aðferðum. Þetta er ekki satt sem er ástæðan fyrir því að ég ávarpa ykkur með þessum hætti. Í marga ára­tugi hefur Holzindustrie Schweighofer verið frum­kvöð­ull í ábyrgri og sjálf­bærri timb­ur­fram­leiðslu. Leyfið mér að segja af hverju: Það er af því að við lifum á viði. Ég vil bjóða öllum sjálf­stæðum umhverf­is­vernd­ar­sam­tökum að setj­ast niður með mér og koma með til­lögur um hvernig við getum unnið saman að því að vernda skóga og nýta þá með sjálf­bærum hætti. Því það er nákvæm­lega það sem nafnið Schweighofer stendur fyrir.“

Skógarnir eru ekki ykkar

Bismarck segir aug­ljóst að ábyrgðin liggi hjá æðstu stjórn­endum fyr­ir­tæk­is­ins. Ekki sé hægt að velta henni yfir á milli­stjórn­endur – þeir hafi ekki vald til að taka ákvarð­anir um kaup á svo umfangs­miklu magni af ólög­legu timbri án vit­undar og vilja sinna yfir­manna. Um stefnu fyr­ir­tæk­is­ins sé að ræða. „Hæst­ráð­endur vita hvað er í gangi,“ full­yrðir Bismarck.

„Skóg­arnir okkar eru ekki ykkar land,“ hrópa mót­mæl­endur á götum Búkarest í kjöl­far frétta af vinnu­brögðum hins aust­ur­ríska timb­ur­fram­leið­anda. „Scheighofer, hypjaðu þig!“

Í fram­haldi af rann­sókn EIA og birt­ingu á efni sem sam­tökin öfl­uðu um ólög­lega starf­semi sem teng­ist Schweighofer er gerð hús­leit í höf­uð­stöðvum fyr­ir­tæk­is­ins í Rúmeníu. For­svars­menn þess eru sak­aðir um að hafa unnið með rúm­ensku mafí­unni í gegnum árin og byggt við­skipta­veldi sitt upp með glæp­sam­legum hætti.

Málið enn í rannsókn

Rannsókn máls­ins stendur enn yfir. Þá er einnig verið að rann­saka sex morð á skóg­ar­höggs­mönnum sem framin hafa verið und­an­farin ár. Sá síð­asti sem var drep­inn var sjálfur skóg­ar­höggs­maður sem hafði kom­ist á spor ólög­legs höggs í skóg­unum. Hann var fyrst bar­inn og skot­inn og lík­inu hent í skurð.

Fyrr á þessu ári hvatti fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins stjórn­völd í Rúmeníu til að stöðva ólög­legt skóg­ar­högg í land­inu og fylgja reglu­gerð sam­bands­ins þar um. Í bréfi sem stjórnin sendi kemur fram að rúm­enskum stjórn­völdum hafi mis­tek­ist að rann­saka starf­sem­ina og beita við­eig­andi refsi­að­gerðum. Þá segir einnig að yfir­völd sem gefa út leyfi til skóg­ar­höggs hafi gert slíkt án þess að kanna fyrst áhrif þess á svæði sem njóta verndar sam­kvæmt reglu­gerðum ESB.

Skömmu áður eða um síð­ustu ára­mót var nafni fyr­ir­tæk­is­ins Holzindustrie Schweighofer breytt. Það heitir núna HS Timber Group. Ástæðan er sögð sú að gamla nafnið hafi ekki hentað í alþjóð­legum við­skiptum.

Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan að fyr­ir­tækið opn­aði sína fyrstu timb­ur­verk­smiðju í Sebes í Rúmeníu árið 2004. Það starf­rækir þar nú nokkrar sög­un­ar­verk­smiðjur, þeirra á meðal þá stærstu í heimi. Schweighofer rekur einnig hótel í Rúmeníu, lúx­us­hót­elið Gerald´s Hotel í Radauti.

Árið 2018 var velta fyr­ir­tæk­is­ins 374 millj­ónir evra (um 48 millj­arðar króna á með­al­gengi þess árs) og hagn­að­ur­inn nam 7,2 millj­ónum evra eða tæpum millj­arði króna. Aðeins tveimur árum fyrr var veltan rúm­lega helm­ingi meiri og hagn­að­ur­inn sömu­leiðis.

Óttast frekari rányrkju vegna COVID

Schweighofer Group stundar enn við­skipti með timbur í Rúmeníu. Og þó þetta aust­ur­ríska fyr­ir­tæki sé í kast­ljósi heim­ild­ar­mynd­ar­innar Wood þá eru þau fleiri fyr­ir­tækin sem talin eru starfa með sama hætti.

Ein af nýj­ustu rann­sóknum EIA bein­ist að frum­skógum Madaga­skar, eins fátæk­asta ríkis heims. Óttast er að rányrkja og eyði­legg­ing nátt­úru­auð­linda og vist­kerfa muni aukast vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veirunnar. Fátæk­ustu ríki heims, sem orðið hafa af fjár­munum vegna hruns í ferða­þjón­ustu og ýmsum öðrum geirum efna­hags­lífs­ins, standa örvænt­ing­ar­full frammi fyrir skorti meðal þegna sinna, jafn­vel hungri. Slíkar aðstæður bjóða hættu á mis­notkun heim.

Eft­ir­spurnin eftir neyslu­vörum hvers­konar er fyrst og fremst hjá íbúum Vest­ur­landa. Og nú ríður á að neyt­endur séu á varð­bergi og krefj­ist svara um upp­runa alls varn­ings sem þeir kaupa.

Veist þú hvaðan par­k­etið þitt kemur?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár