Riðill Íslands á EM í tveimur myndritum

Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins.
Sara Björk Gunn­ars­dóttir, fyr­ir­liði íslenska lands­liðs­ins. Mynd: EPA

Íslenska lands­liðið í fót­bolta mun keppa sinn fyrsta leik í C-riðli á EM 2017 í kvöld. Í ljósi þess ákvað Kjarninn að taka saman nokkra töl­fræði um öll liðin í riðl­inum.

Lið Frakka þykir næst­sig­ur­strang­leg­ast í mót­inu á eftir Þjóð­verjum, en liðið er í þriðja sæti á styrk­leika­lista FIFA. Frakkar hafa líka reynst Íslend­ingum erf­iðir, en þeir hafa unnið sjö af síð­ustu níu leikjum við okkur.

Hins vegar stóð lið Íslands sig frá­bær­lega í und­ankeppni móts­ins og skor­aði 34 mörk á meðan þær fengu aðeins á sig tvö mörk. Til sam­an­burðar skor­uðu Frakkar 27 mörk, en fengu engin á sig.

Sérhver leik­maður íslenska liðs­ins hefur spilað um 44 lands­leiki, sem er rétt undir með­al­tali rið­ils­ins. Frakkar hafa reynd­ustu leik­menn­inna, en þar er með­al­fjöldi hvers leik­manns um 69 lands­leikir. Aust­ur­ríska lands­liðið er hins vegar óreynd­ast, en þar hefur hver leik­maður aðeins spilað um 26 lands­leiki. 

Franska lands­liðið hefur tekið þátt í Evr­ópu­mót­inu fimm sinnum áður en Ísland er að taka þátt í þriðja sinn. Aust­ur­ríki og Sviss eru aftur á móti að taka þátt í fyrsta skipti.

Ljóst er að þetta verður erf­iður leikur fyrir Íslend­inga. Veð­bankar spá Frökkum sigri, en sam­kvæmt veð­bank­anum Bet365 er stuð­ull­inn á þeim 1,14 á meðan hann er 23 hjá okkur.

Klukkan 18:45 hefst leikur Íslands gegn Frakk­landi á EM kvenna í Tilburg, en hægt verður að fylgj­ast með leiknum á EM torg­inu við Ing­ólfs­torg. Þetta verður fyrsti leikur Íslands af þremur í C-riðli móts­ins, en þær munu síðan keppa á móti Aust­ur­ríki 18. júlí og Sviss 22. júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

em2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár