Ísland úr leik á EM 2017

Ísland lék sinn annan leik á EM 2017 í knatt­spyrnu í Hollandi gegn Sviss í dag.

Sif Atladóttir í baráttunni við Vanessu Buerki í leiknum. Sif var frábær í leiknum og hljóp uppi hverja skyndisókn Sviss á eftir annari í lok leiksins.
Sif Atla­dóttir í bar­átt­unni við Vanessu Buerki í leiknum. Sif var frá­bær í leiknum og hljóp uppi hverja skynd­i­sókn Sviss á eftir ann­ari í lok leiks­ins. Mynd: EPA

Íslenska lands­liðið tap­aði 1-2 gegn Sviss í öðrum leik Íslands á Evr­ópu­meist­ara­móti kvenna í knatt­spyrnu í Hollandi. Ísland er með núll stig eftir tvo leiki. Ísland á einn leik eftir í riðla­keppn­inni, á móti Aust­ur­ríki.

[links]Fanndís Frið­riks­dóttir kom Íslandi yfir í fyrri hálf­leik með flottu marki eftir að hafa fengið frá­bæra send­ingu frá Dagnýju Brynjars­dóttur inn fyrir vörn sviss­nesku leik­mann­anna.

Sviss jafn­aði fyrir hálf­leik með marki frá Lara Dickenmann. Ramona Bachmann skor­aði svo annað mark Sviss á 52. mín­útu leiks­ins eftir mis­tök í íslensku vörn­inni.

Seinni hálf­leik­ur­inn dróst á lang­inn vegna meiðsla sem Gaëlle Thalmann, mark­vörður Sviss, hlaut eftir sam­stuð við Gunn­hildi Yrsu Jóns­dóttur. Þess vegna var 11 mín­útum bætt við leik­inn.

[adspot]

Íslenska liðið átti í stök­ustu vand­ræðum með að halda aftur af sviss­nesku lands­liðs­kon­unum þegar leið á leik­inn. Stelp­urnar okkar áttu samt góða spretti en tókst ekki að koma bolt­anum oftar í netið.

Ísland þarf nú að vinna síð­asta leik sinn til þess að eiga mögu­leika á að kom­ast í úrslita­keppni móts­ins auk þess sem að stelp­urnar okkar þurfa að treysta á úrslit í öðrum leikjum í riðl­inum. Frakkar þurfa að vinna alla sína leiki, en næstu mótherjar þeirra eru Aust­ur­ríki í kvöld.

Uppfært að kvöldi laug­ar­dags 22. júlí – Ísland kemst ekki áfram í úrslita­keppni móts­ins því Aust­ur­ríki og Frakk­land gerðu 1-1 jafn­tefli í leik sínum. Þrjú stig í síð­asta leiknum munu þess vegna ekki duga til þess að ná öðru sæti í riðl­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

em2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár