Fimm hlutir sem þú þarft að vita um EM 2017

Íslenska lands­liðið mætir Frökkum í fyrsta leik sínum á EM 2017. Hér eru praktískar upp­lýs­ingar sem gott er að hafa áður en poppið er sett í örbylgj­una.

Íslenska landsliðið í knattspyrnu hefur leik á EM 2017 í dag.
Íslenska lands­liðið í knatt­spyrnu hefur leik á EM 2017 í dag. Mynd: Úr safni

Íslenska lands­liðið hefur leik á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu í knatt­spyrnu á þriðju­dag­inn þegar stelp­urnar okkar mæta Frökkum í Hollandi.

[links]Mikil stemmn­ing er fyrir mót­inu enda spil­aði íslenska liðið frá­bæran fót­bolta í und­ankeppni móts­ins. Þetta er í þriðja sinn sem íslenska lands­liðið tekur þátt í Evr­ópu­meist­ara­mót­inu. Síðast náðu stelp­urnar frá­bærum árangri en féllu úr leik í fjórð­ungsúr­slitum.

Evr­ópu­mótið hefst í dag með leik Hollands og Noregs. RÚV verður með mikla umfjöllun um leik­inn og sýnir frá öllum leikjum Íslands. Útsend­ing frá opn­un­ar­leiknum hefst klukkan 15:30.

Hvernig gengur mótið fyrir sig?

Alls taka 16 lið þátt í keppn­inni í ár en aldrei hafa fleiri lið hlotið þátt­töku­rétt í loka­móti Evr­ópu­meist­ara­móts kvenna í fót­bolta. Mótið er leikið í fjórum skrefum; riðla­keppni, 8 liða úrslitum, und­an­úr­slitum og úrslitum. Liðunum er skipt í fjóra riðla þar sem fjögur lið eru í hverjum riðli. Liðin fjögur leika svo öll þrjá leiki, einn við hverja þjóð í riðl­inum, sam­tals sex leiki.

[adspot]

Þá tekur úrslita­keppnin við og gilda nú nýjar reglur er lið standa jöfn eftir 90 mín­útna leik. Þá tekur við fram­leng­ing og ef ekki tekst að finna sig­ur­veg­ara í fram­leng­ingu þá er gripið til víta­spyrnu­keppni. Tvö lið úr hverju riðli kom­ast í 8 liða úrslit.

Sig­ur­veg­arar úr fjórum leikjum í 8 liða úrslitum kom­ast áfram í und­an­úr­slit og sig­ur­veg­arar úr tveimur leikjum taka svo þátt í úrslita­leik móts­ins 6. ágúst.

Hvenær spilar Ísland?

Íslenska liðið leikur alls þrjá leiki í riðla­keppn­inni og aldrei á sama stað. Leikir Íslands í riðla­keppn­inni eru þó allir í sunn­an­verðu Hollandi og vega­lengd­irnar á milli tak­mark­aðar. Keppn­is­staðir Íslands í riðla­keppn­inni eru merktir með rauðu á kortið hér að ofan. Íslenskir stuðn­ings­menn þurfa þess vegna að ferð­ast á milli borga til þess að styðja okkar konur. Ísland leikur í C-riðli. Þar leika einnig Frakk­land, Aust­ur­ríki og Sviss.

Fyrsti leikur Íslands verður gegn franska lið­inu í borg­inni Tilburg, skammt frá landa­mær­unum við Belgíu, hinn 18. júlí. Leik­ur­inn hefst klukkan 18:45 að íslenskum tíma. Franska liðið er sterkt og er talið vera besta liðið í C-riðli. Besti árangur franska liðs­ins er hins vegar sá sami og íslenska lands­liðs­ins, fjórð­ungsúr­slit í síð­ustu keppni árið 2013.

Ísland tapaði 0-1 í leiknum gegn Frökkum og er með 0 stig þegar tveir leikir eru eftir í riðlakeppninni. Frétt Kjarnans um úrslitin.

Ísland mætir Sviss fjórum dögum síðar á Doetinchem-leik­vang­inum í De Vijver­berg, í um tveggja klukku­stunda akst­urs­fjar­lægð frá Tilburg, laug­ar­dag­inn 22. júlí. Leik­ur­inn gegn Sviss hefst klukkan 16:00 að íslenskum tíma. Sviss er að taka þátt í Evr­ópu­meist­ara­mót­inu í fyrsta sinn.

Ísland tapaði 1-2 í leiknum gegn Sviss og er með 0 stig þegar einn leikur er eftir í riðlakeppninni. Frétt Kjarnans um úrslitin.

Síðasti leikur Íslands í riðla­keppn­inni verður svo gegn Aust­ur­ríki mið­viku­dag­inn 26. júlí. Sá leikur hefst klukkan 18:45 að íslenskum tíma og fer fram í Rott­er­dam. Aust­ur­ríki hefur heldur aldrei tekið þátt í Evr­ópu­meist­ara­mót­inu.

Hversu lengi stendur mótið?

Úrslita­leikur móts­ins verður leik­inn sunnu­dag­inn 6. ágúst í Enschede aust­ast í Hollandi. Þetta er sunnu­dagur um versl­un­ar­manna­helgi svo það er um að gera að finna góðan stað til að horfa á leik­inn. Íslenski hóp­ur­inn á alveg mögu­leika á að kom­ast í úrslita­leik­inn!

Hverjar eru í liðinu?

Eftir að hafa leikið gríð­ar­lega vel í und­ankeppni Evr­ópu­móts­ins fékk íslenska liðið slæmar fréttir um að fyr­ir­lið­inn Margrét Lára Við­ars­dóttir yrði ekki með í loka­keppn­inni vegna meiðsla. Íslenski leik­manna­hóp­ur­inn er sterkur og lætur þetta ekki á sig fá. Hólm­fríður Magn­ús­dóttir, lands­liðs­kona, sagði í sam­tali við RÚV á dög­unum að liðið væri óðum að ná fyrri styrk eftir öll meiðslin sem hrjáð hafa liðið.

Það verður Sara Björk Gunn­ars­dóttir sem ber fyr­ir­liða­bandið í stað Mar­grétar Láru í loka­keppn­inni. Hún fer fyrir öfl­ugu liði sem ætlar sér langt í keppn­inni. Þetta verður þriðja loka­mót Evr­ópu­keppn­innar sem Sara Björk tekur þátt í.

Lið Íslands er svo skipað:

Nr.StaðaLeik­maðurAldurlands­leikirMörkFélags­lið
1MarkGuðbjörg Gunn­ars­dóttir32510Sweden Djur­går­den
2VörnSif Atla­dóttir31630Sweden Krist­i­an­stad
3VörnIngi­björg Sig­urð­ar­dóttir1920Iceland Breiða­blik
4VörnGlódís Perla Vigg­ós­dóttir22542Sweden Eskilst­una United
5MiðjaGunn­hildur Yrsa Jóns­dóttir28425Norway Våler­enga
6SóknHólm­fríður Magn­ús­dóttir3211037Iceland KR Reykja­vík
7MiðjaSara Björk Gunn­ars­dóttir (c)2610618Germany Wolfsburg
8MiðjaSigríður Lára Garð­ars­dóttir2380Iceland Vest­manna­eyjar
9MiðjaKatrín Ásbjörns­dóttir24131Iceland Stjarnan
10MiðjaDagný Brynjars­dóttir257019Portland Thorns
11VörnHallbera Guðný Gísla­dóttir30843Sweden Djur­går­den
12MarkSandra Sig­urð­ar­dóttir30160Iceland Valur
13MarkSonný Lára Þrá­ins­dóttir3030Iceland Breiða­blik
14VörnMál­fríður Erna Sig­urð­ar­dóttir33332Iceland Valur
15SóknElín Metta Jensen22285Iceland Valur
16SóknHarpa Þor­steins­dóttir316118Iceland Stjarnan
17MiðjaAgla María Alberts­dóttir1740Iceland Stjarnan
18MiðjaSandra Jessen22186Iceland Þór/KA Akureyri
19VörnAnna Björk Krist­jáns­dóttir27310Sweden Limhamn Bunkeflo
20SóknBerglind Björg Þor­valds­dóttir25271Iceland Breiða­blik
21VörnArna Ásgríms­dóttir24121Iceland Valur
22SóknRakel Hönnu­dóttir28835Iceland Breiða­blik
23SóknFanndís Frið­riks­dóttir278410Iceland Breiða­blik

Hvaða lið er sigurstranglegast?

Sig­ur­strang­leg­asta lið keppn­innar er án efa Þýska­land. Þýska­land hefur staðið uppi sem sig­ur­veg­ari í Evr­ópu­mót­inu í síð­ustu sex skiptin sem það hefur verið haldið. Veð­bankar telja þýska liðið einnig vera sig­ur­strang­leg­ast, þær fá lík­urnar 2/1 á því að vinna mótið sem lýsir fáheyrðum yfir­burðum þeirra vel. Frönsku kon­urnar eru taldar næst sig­ur­strang­leg­astar, með 3/1.

Ísland á auð­vitað mögu­leika á sigri, það fylgir mið­anum á mótið að þær eiga séns á að lyfta doll­unni. Til þess þurfa þær hins vegar að leggja sterk­ustu lið heims að velli.

Áfram Ísland!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

em2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár