Varaforsætisráðherra Norður-Kóreu tekinn af lífi fyrir skoðanir á skógrækt

Kim Jong-un, leið­togi Norður-Kóreu, fyr­ir­skip­aði aftöku vara­for­sæt­is­ráð­herra stjórnar sinnar í maí, að sögn suður-kóresku frétta­stof­unnar Yonhap. Choe Yong-gon var tek­inn í af lífi með byssu­skotum af aftöku­sveit í byrjun sum­ars eftir að hafa lýst „óþæg­indum sínum með skóg­rækt­ar­stefnu leið­tog­ans“, hefur Yonhap eftir heim­ildum sínum. Suður-kóresk stjórn­völd hafa ekki getað stað­fest fregn­irnar en hafa skoðað málið eftir að fjar­vera Choe varð áber­andi.

Ráðu­neyti sam­ein­ingar í Suður-Kóreu sagði í yfir­lýs­ingu að Choe hafi ekki sést opin­ber­lega í átta mán­uði. „Hann sást síð­ast í des­em­ber við hátíð­ar­höld á þriggja ára dán­araf­mæli Kim Jong-il. Ráðu­neytið fylgist náið með til að kom­ast að því hvað kann að hafa orðið um hann.“

Njósn­a­stof­unun Suður-Kóreu í Seoul stað­festi að hvarf Choe gæti verið enn önnur aftaka hátt setts ráða­manns í Norður-Kóreu eftir að Kim Jong-un tók við af föður sínum árið 2011, bæði úr röðum hers­ins og stjórn­valda. Í apríl var Hyon Yong-chol, yfir­maður varn­ar­mála í Norður-Kóreu, tek­inn af lífi. Talið er að hann hafi verið myrtur með loft­varn­ar­byssu fyrir að svíkja traust leið­tog­ans þegar Kim sofn­aði yfir her­æf­ingu.

Njósn­a­stof­unin segir leið­tog­ann hafa hert tökin á stjórn lands­ins með hrotta­fengnum hætti og fyr­ir­skipað aftökur um það bil 70 hátt­settra manna í stjórn lands­ins.


Uppfært 12:24. Upp­haf­lega var vitnað í tvít sem sagt var vera á vegum frétta­stofu Norður-Kóreu. Twitter-reikn­ing­ur­inn reynd­ist ekki vera opin­ber vett­vangur Norður-Kóreu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár