Ekkert afgangs eftir leikinn við Sádi-Arabíu

Greiðslan sem KSÍ fékk fyrir að spila vin­áttu­lands­leik við Sádi-Arabíu í nóv­em­ber fór öll í kostnað við leik­inn sjálfann. „Það var ekk­ert eft­ir,“ segir for­maður KSÍ. Heild­ar­upp­hæðin verður þó ekki gefin upp.

Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ.
Vanda Sig­ur­geirs­dóttir, for­maður KSÍ. Mynd: Golli

Greiðslan sem Knatt­spyrnu­sam­band Íslands (KSÍ) fékk fyrir að spila vin­áttu­lands­leik við Sádi-Arabíu í nóv­em­ber fór öll í kostnað við leik­inn sjálfan.

„Það var ekk­ert eft­ir,“ segir Vanda Sig­ur­geirs­dóttir, for­maður KSÍ, í við­tali við Kjarn­anna sem birt­ist á jóla­dag.

Í við­tal­inu fer Vanda yfir fyrsta rúma árið í starfi for­manns KSÍ, gagn­rýn­ina sem virð­ist fylgja starf­inu og bar­áttu hennar fyrir jafn­rétt­is­málum innan og utan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar.

[links]Ákvörðun KSÍ um að spila leik­inn við Sádi-Arabíu sætti mik­illi gagn­rýni. Yfir­völd í Sádi-­Ar­abíu hafa verið gagn­rýnd fyrir ítrekuð mann­rétt­inda­brot og sögð stunda „sport­þvott“ (e. sportswas­hing), það er að reynt að bæta ímynd sína með því að tengj­­ast íþrótta­við­­burðum eða íþrótta­liðum og beisla það mjúka vald sem íþrótt­­irnar hafa í dæg­­ur­­menn­ingu nútím­ans. Sveigja almenn­ings­á­litið sér í vil.

Í frétt Stund­ar­innar í lok nóv­em­ber kemur fram að KSÍ hafi fengið tugi millj­óna króna greidda fyrir vin­áttu­lands­leik­inn.

Vanda segir ekki rétt að tala um tugi millj­óna en vill ekki upp­lýsa um upp­hæð­ina, meðal ann­ars vegna trún­aðar sem ríki milli KSÍ og við­kom­andi sér­sam­banda og einnig umboðs­manna sem sjá um að semja um greiðsl­urn­ar.

Vanda gefur þó upp að greiðslan hafi aðeins staðið undir kostn­aði við ferð lands­liðs­ins til Abu Dhabi þar sem leik­ur­inn fór fram. „Það var ekk­ert eft­ir. Jú, auð­vitað fengum við pen­ing­inn fyrir kostn­að­in­um, ég hef allan tím­ann sagt það en meira var það ekki.“

Í sama lands­liðs­glugga spil­aði liðið gegn Suð­ur­-Kóreu, sem einnig fékkst greiðsla fyr­ir. Og þar var afgang­ur. Hversu mik­ill vill KSÍ ekki gefa upp.

Snið­ganga er ekki svarið

Vin­áttu­leikur við Sádi-­Ar­abíu kom fyrst upp í umræð­una fljót­lega eftir að Vanda tók við for­mennsku í KSÍ. Í fyrstu var um stærri samn­ing að ræða en KSÍ ákvað að ganga ekki að hon­um.

Í vor kom önnur beiðni um að spila vin­áttu­leik og við henni varð KSÍ. Vanda segir að ákvörð­unin hafi verið erfið en nið­ur­staðan var sú að taka boð­inu og nýta það til að eiga sam­tal og nýta fót­bolt­ann til sam­tals í stað þess að snið­ganga.

„Ég skil fólkið sem er hund­fúlt út í okk­ur. Ég skil gagn­rýn­ina og þetta er mjög flók­ið. En, allan tím­ann fer ég alltaf til baka í að hugsa: Af hverju erum við að gera þetta? Ég er ekki að segja þetta sé full­kom­ið, ég veit um brot­in, en það hafa orðið breyt­ing­ar. Það hafa orðið jákvæðar breyt­ingar í Sádi-­Ar­abíu í átt að betri mann­rétt­ind­um. Eru þau full­kom­in? Nei. Eiga þau eftir að vinna í mörg ár í við­bót? Já, engin spuning.“

Vanda sleit lið­þófa svo hún komst ekki á leik­inn við Sádi-­Ar­abíu eftir allt sam­an. Hún óskaði þess í stað eftir fundi með knatt­spyrnu­sam­bandi Sádi-­Ar­abíu í Katar í upp­hafi heims­meist­ara­móts­ins í nóv­em­ber.

„Ég fund­aði með for­mann­inum og fram­kvæmda­stjór­anum og þá kemur í ljós að for­mað­ur­inn kemur til starfa 2019 og setti það mjög ofar­lega hjá sér að hann vill stofna kvenna­lands­lið og koma deild­ar­keppni af stað. Hann hafði þetta í gegn. Núna er komin deild og það er komið lands­lið.“

Þetta eru dæmi um breyt­ingar sem KSÍ vill styðja við. „Fólk þarf ekki að vera sam­mála en staða kvenna og mann­rétt­indi fara hönd í hönd. Ég trúi því, og ekki bara ég, að ef þú bætir stöðu kvenna þá getur þú bætt mann­rétt­indi. Og hvað er það sem við getum gert? Snið­ganga er ekki svar­ið,“ segir Vanda og vísar í finnskan kollega sinn.

„Líkt og hann sagði, fyrir lönd sem eru svona lít­il, ef við ætlum að hafa ein­hver áhrif þá verðum við að nota rödd­ina okk­ar, að nota þrýst­ing, nota sam­tal. Það er eina leiðin sem við höfum til að ná fram ein­hverjum breyt­ing­um.“

Það eigi einnig við um ríki eins og Sádi-­Ar­abíu þar sem mann­rétt­inda­brot eru stað­reynd. „Ég skil gagn­rýn­ina. Algjör­lega,“ ítrekar Vanda. „En, þetta var leiðin fyrir okkur inn.“

Viðtalið við Vöndu má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár