Stjórnvaldssektir vegna heimagistingar rúmar 94 milljónir

Álagðar og fyr­ir­hug­aðar stjórn­valds­sektir í kjöl­far sér­staks átaks sýslu­manns um aukið eft­ir­lit með heimagist­ingu nema 94,6 millj­ónum króna. Sýslu­maður telur að enn sé um helm­ingur heimagist­inga án til­skil­inna leyfa eða skrán­ingar.

Mikil aukn­ing hefur orðið á fjölda skráðra heimagist­inga í kjöl­far efl­ingar Heimagist­ing­ar­vakt­ar­innar síð­asta sumar. Fjöldi skrán­inga nær tvö­fald­að­ist á einu ári og það sem af er ári hefur sýslu­maður skráð 2033 heimagist­ingar. Þá eru fyr­ir­hug­aðar og álagðar stjórn­valds­sektir vegna átaks­ins 94,6 millj­ónir króna.

Um 50 prósent heimagistinga án tilskilinna leyfa

Rúmlega 8000 gisti­rými voru aug­lýst til útleigu hér á landi á bók­un­ar­síð­unum Airbnb og Homeaway í júní síð­ast­liðnum, sam­kvæmt Mæla­borði ferða­þjón­ust­unnar. Þar af voru flest á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða rúm­lega 4000 gisti­rými á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, 1443 á Suð­ur­landi og 255 á Suð­ur­nesj­unum. Ekki liggja þó fyrir upp­lýs­ingar hjá Mæli­borð­inu um aug­lýs­ingar á öðrum bók­un­ar­síðum. 

Í júní í fyrra und­ir­rit­uð­u Þór­­dís Kol­brún Reyk­­fjörð Gylfa­dóttur, ráð­herra ferða­­mála, og Þórólfur Hall­­dór­s­­son, sýslu­­mað­­ur­inn á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu, sam­komu­lag þess efnis að eft­ir­lit með heimagist­ingu yrði virkara og sýn­i­­legra með styrk­ingu á heimagist­ing­­ar­vakt Sýslu­­manns­ins á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­in­u.

Mikil aukn­ing hefur orðið á fjölda skráðra heimagista í kjöl­farið. Í svari Þórdísar Kol­brúnar við fyr­ir­spurn á Alþingi um leigu hús­næðis til ferða­manna kemur fram að fjöldi skrán­ingu hefur nær tvö­fald­ast. Skrán­ingar fór úr því að vera 1056 í lok árs 2017 í 2022 í lok árs 2018. Þá hefur sýslu­maður stað­fest 2033 skrán­ingar, nýskrán­ingar og end­ur­nýj­aðar skrán­ingar, það sem af er ári.[adspot]

Í svar­inu kemur jafn­framt fram að þrátt fyrir þessa aukn­ingu í skrán­ingu áætlar sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að um helm­ingur skamm­tíma­leigu hér á landi fari enn fram án til­skil­inna leyfa eða skrán­ingar.

17 milljónir í skráningargjöld það sem af er ári

Þórdís Kolbrún segir jafn­framt að reynslan af átak­inu sýni að sam­an­lagðar fjár­hæðir álagðra og fyr­ir­hug­aðra stjórn­valds­sekta auk inn­heimtra skrán­ing­ar­gjalda nemi hærri fjár­hæð en þær 64 millj­ónir króna sem veittar voru til emb­ættis sýslu­manns vegna verk­efn­is­ins.

Sam­an­lögð upp­hæð skrán­ing­ar­gjalda, stjórn­valds­sekta og fyr­ir­hug­aðra stjórn­valds­sekta frá árs­byrjun 2017 nemur í dag 138.350.160 krónum. Þar af nema fyr­ir­hug­aðar og álagðar stjórn­valds­sektir vegna átaks­ins 94.6 millj­ónum.

Jafn­framt kemur fram í svar­inu að frá árs­byrjun 2017 hefur sýslu­maður inn­heimt tæpar 44 milj­ónir í skrán­ing­ar­gjöld vegna heimagist­ingar. Þar af námu skrán­ing­ar­gjöld 9.039.360 krónum árið 2017, 17.308.320 í fyrra og 17.402.480 það sem af er árinu 2019.

Lagt var upp með að átaks­verk­efnið yrði til eins árs en í lok júní síð­ast­liðnum fram­lengdi ráð­herra samn­ing við sýslu­mann­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um sex mán­uði. Átakinu verður því haldið áfram en mark­miðið er að hafa hvetj­andi áhrif á ein­stak­l­inga til að skrá skamm­­tíma­út­­­leigu sína.

Gisting í gegnum Airbnb dregst enn saman

[links] Greiddum gistin­óttum hefur fækkað hér á landi í sumar sam­an­borið við árið á undan í kjöl­far fækkun ferða­manna. Þá hefur gist­ing í gegnum á Airbnb og sam­bæri­legar síður dreg­ist meira saman en gist­ing á öðrum gisti­stöðum í sumar.

Í tölum Hag­stof­unnar má sjá að gist­ing gegnum Airbnb og sam­bæri­legar síður dróst saman 29 pró­sent í maí síð­ast­liðnum, sam­an­borið við sama mánuð í fyrra. Í júní dróst sú gist­ing saman um 10,5 pró­sent á milli ára og í júlí um 5,3 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár