Gistinóttum fækkaði lítillega í júlí

Þrátt fyrir 17 pró­sent fækkun ferða­manna í júlí þá fækk­aði gistin­óttum í sama mán­uði um aðeins 1 pró­sent á milli ára.

Greiddar gistinætur ferða­manna dróg­ust saman um aðeins 1 pró­sent í júlí á milli ára. Gistinætur ferða­manna á öllum gisti­stöðum voru um 1.558.000 í júlí síð­ast­liðnum, en þær voru um 1.576.000 í sama mán­uði í fyrra. Þá varð aukn­ing í gist­ingu á hót­elum og gisti­heim­ilum í júlí en gist­ing í gegnum Airbnb og sam­bæri­legar síður dróst saman sem og gist­ing á öðrum gisti­stöðum. Þetta kemur fram í gistin­átta­tölum Hagstofu Íslands.

Gistinóttum á hótelum fjölgar um 1 prósent

Gistinætur á hót­elum í júlí síð­ast­liðnum voru 492.400, sem er 1 pró­sent fjölgun frá sama mán­uði árið áður. Gistinætur á hót­elum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu voru 5 pró­sent færri en í júlí í fyrra, en þeim ýmist fjölg­aði eða þær stóðu í stað í öðrum lands­hlutum.

Þá var her­bergj­a­nýt­ing hót­ela í júlí 80,8 pró­sent sem er lækkun um 1,9 pró­sentu­stig frá júlí 2018 þegar hún var um 82,7 pró­sent. Á sama tíma hefur fram­boð gisti­rýmis auk­ist um 3,4 pró­sent mælt í fjölda her­bergja. Á Suð­ur­nesjum var nýt­ing hót­el­her­bergja mest eða um 88 pró­sent í júlí .

Ef litið er á tólf mán­aða tíma­bil, frá ágúst 2018 til júlí 2019, var heild­ar­fjöldi gistin­átta á hót­elum um 4.400.000, sem er 1 pró­sent aukn­ing miðað við sama tíma­bil árið áður.

17 prósent fækkun í júlí

Brott­farir erlendra far­þega frá land­inu um Kefla­vík­ur­flug­völl voru um 231 þús­und í júlí. Það eru um 47 þús­und færri brott­farir en júlí árið 2018 og því nam fækk­unin á milli ára 17 pró­sentum, að því er fram kemur í taln­ingu Ferða­mál­stofu og Isavia.

Fækkun hefur verið í brott­förum ferða­manna alla mán­uði frá ára­mótum, í jan­úar fækk­aði brott­förum um 5,8 pró­sent, í febr­úar um 6,9 pró­sent, í mars um 1,7 pró­sent, í apríl um 18,5 pró­sent, um 23,6 pró­sent í maí og 16,7 pró­sent í júní

Í heild­ina hafa um 1,1 milljón erlendra far­þega farið frá Íslandi um Kefla­vík­ur­flug­völl frá ára­mótum, sem er 13,4 pró­sent fækkun miðað við sama tíma­bil í fyrra.

Spá að 1333 hótelherbergi bætist við á næstu þremur árum

[links]Á síð­ustu fimm árum hefur fram­boð hót­el­her­bergja á land­inu farið úr 6200 her­bergjum í 10.800, ­sem er aukn­ing um 74 pró­sent, sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar. Í júlí árið 2009 voru 4600 hót­el­her­bergi á Íslandi og hefur þeim því fjölgað um 133 pró­sent á síð­ustu tíu árum.

Grein­ing­ar­deild Íslands­banka áætl­ar að hót­­el­her­bergj­u­m ­­fjölgi um 6 pró­­sent á árinu 2019, 17 pró­­sent árið 2020 og 2 pró­sent árið eft­ir. Í öðrum orðum telur bank­inn bæt­ast muni við 1333 ný hót­el­bergi á höf­uð­borg­ar­svæðið á næstu þremur árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár