Illugi tjáir sig um fjárhagsleg tengsl sín við Orku Energy á morgun

Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, mun ræða ítar­lega um tengsl sín við fyr­ir­tækið Orku Energy í föstu­dags­við­tali Frétta­blaðs­ins sem kemur út á morgun. Illugi hefur ekki viljað ræða málið við fjöl­miðla und­an­farna mán­uði þrátt fyrir ítrek­aðar fyr­ir­spurnir þess efnis.

Illugi hefur verið gagn­rýndur víða fyrir tengsl sín við Orku Energy. Páll Magn­ús­son, fyrrum útvarps­stjóri, gerði það síð­ast í gær í blaða­grein. Þar sagði hann m.a.:"„Nú er liðið eitt sumar síðan upp­lýst var að mennta­mála­ráð­herra bað um og fékk per­sónu­legan fjár­stuðn­ing frá aðila sem hann síðan veitti póli­tíska fyr­ir­greiðslu vegna við­skipta­hags­muna í Kína. Pólitísk spill­ing verður ekki aug­ljós­ari en þetta.“

Starfaði sem ráðgjafi hjá Orku Energy


Illugi starf­aði sem ráð­gjafi hjá Orku Energy á árinu 2011 á meðan að hann var í leyfi frá þing­störfum vegna rann­sóknar á starf­semi pen­inga­mark­aðs­sjóðs­ins Sjóðs 9 hjá Glitni, en Illugi sat í stjórn sjóðs­ins fyrir hrun.

Eftir að Illugi varð mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra eftir kosn­ing­arnar vorið 2013 hefur hann verið við­staddur við­burði þar sem Orka Energy á við­skipta­lega hags­muni undir. Í des­em­ber 2013 var hann við­staddur þegar Orka Energy skrif­aði undir sam­starfs­samn­ing við kín­verska hér­aðið Xianyang og Sinopec Star Petr­o­leum um þróun á jarð­varma­nýt­ingu og frek­ari útþennslu á hit­un­ar­kerfum í Xianyang. Und­ir­ritun samn­ings­ins fór fram á Íslandi. Fyrir hönd Orku Energy und­ir­rit­aði Haukur Harð­ar­son, stjórn­ar­for­maður félags­ins, sam­komu­lagið.

Illugi heim­sótti svo Kína í lok mars síð­ast­lið­ins. Á meðal þeirra sem voru með í för í þess­ari ferð ráð­herr­ans til Kína voru fimm full­trúar Orka Energy. Einn þeirra var Haukur Harð­ar­son, stjórn­ar­for­maður Orku Energy. Á öðrum degi heim­sóknar sinnar, þann 22. mars, kynnti hann sér jarð­varma­verk­efni í Xionxian hér­aði, sem unnin eru af SGEG, sem Orka Energy China á 49 pró­sent hlut í.

Þann 25. mars hitti Illugi Fu Chengyu, stjórn­ar­for­mann Sinopec. Samkvæmt dag­skrá ferðar ráð­herr­ans, sem Hring­braut hefur birt opin­ber­lega, tóku fimm aðilar utan Illuga þátt í fund­inum með Fu Chengyu. Þrír þeirra voru íslenskir emb­ætt­is­menn. Hinir tveir voru frá Orku Energy. Annar þeirra var Haukur Harð­ar­son.

[caption id="attachment_27132" align="alignnone" width="620"] Í des­em­ber 2013 var Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­inga­mála­ráð­herra, við­staddur þegar Orka Energy skrif­aði undir sam­starfs­samn­ing við kín­verska hér­aðið Xianyang og Sinopec Star Petr­o­leum um þróun á jarð­varma­nýt­ingu og frek­ari útþennslu á hit­un­ar­kerfum í Xianyang. Und­ir­ritun samn­ings­ins fór fram á Íslandi. Fyrir hönd Orku Energy und­ir­rit­aði Haukur Harð­ar­son, stjórn­ar­for­maður félags­ins, sam­komu­lagið. Mynd: Orka­energy.com[/caption]

„Nokkur fjárhagsleg áföll“


Eftir Kína­ferð­ina hófu fjöl­miðlar að spyrj­ast fyrir um tengsl Illuga við Orku Energy. Hann skýrði loks frá því í hádeg­is­fréttum RÚV 26. apríl síð­ast­lið­inn að hann hefði selt íbúð sína í Vesturbæ Reykja­víkur til Hauks Harð­ar­sonar. Þá voru liðnir 20 dagar frá því að hann var fyrst spurður um tengsl sín við félagið af fjöl­miðlum. Hann setti síðan stöðu­upp­færslu inn á Facebook dag­inn eftir þar sem kom fram að hann hefði selt íbúð­ina fyrir 53,5 millj­ónir króna árið 2013 og að hann leigi hana nú til baka af Hauki á 230 þús­und krónur á mán­uði. Illugi var því orð­inn ráð­herra þegar hann seldi íbúð­ina. Ástæðan hafi verið „nokkur fjár­hags­leg áföll“ sem á hann og eig­in­konu hans dundu fyrir nokkrum árum.

Kjarninn greindi frá því sama dag að eitt þess­arra áfalla hafi verið gjald­þrot Sero ehf., félags sem Illugi hafi átt hlut í og varð gjald­þrota í nóv­em­ber 2012. Ekkert fékkst upp í 65 milljón króna kröfur í bú félags­ins.

Illugi hefur sagt að hann hafi sýnt frum­kvæði af því að upp­lýsa um þessi tengsl sín við Hauk. Stundin hefur hins vegar sagt frá því að fjöl­mið­ill­inn hefði árang­urs­laust reynt að fá svör frá Illuga um tengsl hans og Orku Energy, meðal ann­ars vegna þess að Haukur Harð­ar­son hefði keypt íbúð Illuga sam­kvæmt afsali frá 23. júní 2014, áður en hann skýrði frá kaup­unum í hádeg­is­fréttum RÚV.

Vildi ekki upplýsa um upphæð


Kjarninn greindi frá því í maí að þau verk­efni sem Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, vann fyrir Orku Energy, voru öll erlendis. Hann kom ekki að kaupum félags­ins á Enex-Kína af Orku­veitu Reykja­víkur og Geysi Green Energy né að kaupum þess á Iceland America Energy og fjórð­ungs­hlut Orku­veitu Reykja­víkur í Envent Holding af Orku­veitu Reykja­víkur á árinu 2011. Þetta kom fram í svari aðstoð­ar­manns Illuga við fyr­ir­spurn Kjarnans um vinnu ráð­herr­ans fyrir Orku Energy.

Á meðal þess sem spurt var um í fyr­ir­spurn­inni var hvað Illugi fékk greitt fyrir störf sín fyrir félagið. Í svari Sigríður Hall­gríms­dóttur, aðstoð­ar­manns Illuga, er þeirri spurn­ingu ekki svarað en sagt að hægt sé að skoða „tekjur þing­manna og margra ann­arra í opin­berum gögnum“.

Fyr­ir­spurn Kjarnans var send 29. apríl síð­ast­lið­inn og svar barst 12. maí, eftir ítrek­anir eftir svörum. Fyr­ir­spurnin var í formi fimm spurn­inga um aðkomu Illuga að við­skiptum Orku Energy og fjár­hags­lega hags­muni hans af störfum fyrir félagið. Þeim var ekki öllum svarað. Til að mynda fékkst ekki svar við því hvað Illugi hefði fengið greitt fyrir ráð­gjafa­störf fyrir Orku Energy.

Síðan í maí hefur Illugi ekki viljað svara fyr­ir­spurnum fjöl­miðla um málið né mæta í við­töl þar sem til stendur að ræða tengsl hans við Orku Energy. Þ.e. fyrr en nú þegar hann hefur afráðið að ræða við Frétta­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár