Verkefni sem Illugi vann fyrir Orku Energy voru erlendis – svara ekki hvað hann fékk greitt

Þau verk­efni sem Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, vann fyrir Orku Energy, voru öll erlendis. Hann kom ekki að kaupum félags­ins á Enex-Kína af Orku­veitu Reykja­víkur og Geysi Green Energy né að kaupum þess á Iceland America Energy og fjórð­ungs­hlut Orku­veitu Reykja­víkur í Envent Holding af Orku­veitu Reykja­víkur á árinu 2011. Þetta kemur fram í svari aðstoð­ar­manns Illuga við fyr­ir­spurn Kjarnans um vinnu ráð­herr­ans fyrir Orku Energy.

Á meðal þess sem spurt var um í fyr­ir­spurn­inni var hvað Illugi fékk greitt fyrir störf sín fyrir félagið. Í svari Sigríður Hall­gríms­dóttur, aðstoð­ar­manns Illuga, er þeirri spurn­ingu ekki svarað en sagt að hægt sé að skoða „tekjur þing­manna og margra ann­arra í opin­berum gögnum“.

Fyr­ir­spurn Kjarnans var send 29. apríl síð­ast­lið­inn og svar barst við henni í dag, 12. maí, eftir ítrek­anir eftir svörum. Fyr­ir­spurnin var í formi fimm spurn­inga um aðkomu Illuga að við­skiptum Orku Energy og fjár­hags­lega hags­muni hans af störfum fyrir félagið.

Starfaði sem ráðgjafi


Illugi starf­aði sem ráð­gjafi hjá Orku Energy á árinu 2011 á meðan að hann var í leyfi frá þing­störfum vegna rann­sóknar á starf­semi pen­inga­mark­aðs­sjóðs­ins Sjóðs 9 hjá Glitni, en Illugi sat í stjórn sjóðs­ins fyrir hrun.

Eftir að Illugi varð mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra eftir kosn­ing­arnar vorið 2013 hefur hann verið við­staddur við­burði þar sem Orka Energy á við­skipta­lega hags­muni undir. Í des­em­ber 2013 var hann við­staddur þegar Orka Energy skrif­aði undir sam­starfs­samn­ing við kín­verska hér­aðið Xianyang og Sinopec Star Petr­o­leum um þróun á jarð­varma­nýt­ingu og frek­ari útþennslu á hit­un­ar­kerfum í Xianyang. Und­ir­ritun samn­ings­ins fór fram á Íslandi. Fyrir hönd Orku Energy und­ir­rit­aði Haukur Harð­ar­son, stjórn­ar­for­maður félags­ins, sam­komu­lagið.

[caption id="attachment_27132" align="alignnone" width="620"] . Í des­em­ber 2013 var Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­inga­mála­ráð­herra, við­staddur þegar Orka Energy skrif­aði undir sam­starfs­samn­ing við kín­verska hér­aðið Xianyang og Sinopec Star Petr­o­leum um þróun á jarð­varma­nýt­ingu og frek­ari útþennslu á hit­un­ar­kerfum í Xianyang. Und­ir­ritun samn­ings­ins fór fram á Íslandi. Fyrir hönd Orku Energy und­ir­rit­aði Haukur Harð­ar­son, stjórn­ar­for­maður félags­ins, sam­komu­lagið. Mynd: Orka­energy.com[/caption]

Illugi heim­sótti svo Kína í lok mars síð­ast­lið­ins. Á meðal þeirra sem voru með í för í þess­ari ferð ráð­herr­ans til Kína voru fimm full­trúar Orka Energy. Einn þeirra var Haukur Harð­ar­son, stjórn­ar­for­maður Orku Energy. Á öðrum degi heim­sóknar sinnar, þann 22. mars, kynnti hann sér jarð­varma­verk­efni í Xionxian hér­aði, sem unnin eru af SGEG, sem Orka Energy China á 49 pró­sent hlut í.

Þann 25. mars hitti Illugi Fu Chengyu, stjórn­ar­for­mann Sinopec. Samkvæmt dag­skrá ferðar ráð­herr­ans, sem Hring­braut hefur birt opin­ber­lega, tóku fimm aðilar utan Illuga þátt í fund­inum með Fu Chengyu. Þrír þeirra voru íslenskir emb­ætt­is­menn. Hinir tveir voru frá Orku Energy. Annar þeirra var Haukur Harð­ar­son.

"Nokkur fjárhagsleg áföll"


Eftir Kína­ferð­ina hófu fjöl­miðlar að spyrj­ast fyrir um tengsl Illuga við Orku Energy. Hann skýrði loks frá því í hádeg­is­fréttum RÚV 26. apríl síð­ast­lið­inn að hann hefði selt íbúð sína í Vesturbæ Reykja­víkur til Hauks Harð­ar­sonar. Þá voru liðnir 20 dagar frá því að hann var fyrst spurður um tengsl sín við félagið af fjöl­miðlum. Hann setti síðan stöðu­upp­færslu inn á Facebook dag­inn eftir þar sem kom fram að hann hefði selt íbúð­ina fyrir 53,5 millj­ónir króna árið 2013 og að hann leigi hana nú til baka af Hauki á 230 þús­und krónur á mán­uði. Illugi var því orð­inn ráð­herra þegar hann seldi íbúð­ina. Ástæðan hafi verið „nokkur fjár­hags­leg áföll“ sem á hann og eig­in­konu hans dundu fyrir nokkrum árum.

Kjarninn greindi frá því sama dag að eitt þess­arra áfalla hafi verið gjald­þrot Sero ehf., félags sem Illugi hafi átt hlut í og varð gjald­þrota í nóv­em­ber 2012. Ekkert fékkst upp í 65 milljón króna kröfur í bú félags­ins.

Illugi hefur sagt að hann hafi sýnt frum­kvæði af því að upp­lýsa um þessi tengsl sín við Hauk. Stundin hefur hins vegar sagt frá því að fjöl­mið­ill­inn hefði árang­urs­laust reynt að fá svör frá Illuga um tengsl hans og Orku Energy, meðal ann­ars vegna þess að Haukur Harð­ar­son hefði keypt íbúð Illuga sam­kvæmt afsali frá 23. júní 2014, áður en hann skýrði frá kaup­unum í hádeg­is­fréttum RÚV.

Hvað er Orka Energy?


Orka Energy var stofnað snemma árs 2011. Stærsti eig­andi félags­ins er Orka Energy Pte Ltd, félag með skráð heim­ils­festi í Singapúr. Kjöl­festu­fjár­festir í því félagi er Haukur Harð­ars­son.

Nokkrum mán­uðum eftir að Orka Energy var stofnað komst félagið í fréttir á Íslandi þegar það keypti Enex-Kína af fyrr­ver­andi eig­endum þess, Orku­veitu Reykja­víkur (OR) og Geysi Green Energy. Illugi Gunn­ars­son, núver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, vann ráð­gjafa­störf fyrir Orku Energy á árinu 2011.

Kaup­verðið var ekki gefið upp en það var 1,6 millj­arðar króna miðað við það verð sem Orku­veita Reykja­víkur fékk fyrir tæp­lega fimmt­ungs­hlut sinn. Orka Energy lét ekki staðar numið þar heldur keypti líka aðrar eignir sem höfðu verið inni í Reykja­vik Energy Invest, hinum fræga útrás­ar­armi Orku­veit­unnar. Eign­irnar sem um er að ræða voru Iceland America Energy og fjórð­ungs­hlutur í Envent Holding, sem átti jarð­varma­fyr­ir­tæki á Fil­ipps­eyjum.

[caption id="attachment_27133" align="alignnone" width="701"] Illugi er ekki eini ráð­herr­ann sem hefur verið við­staddur und­ir­rit­anir hjá Orku Energy. Hann er hins vegar eini ráð­herr­ann sem hefur þegið greiðslu frá félag­inu á ein­hverjum tíma­punkti.[/caption]

Kaup­verðið var ekki gefið upp en það var 1,6 millj­arðar króna miðað við það verð sem Orku­veita Reykja­víkur fékk fyrir tæp­lega fimmt­ungs­hlut sinn. Orka Energy lét ekki staðar numið þar heldur keypti líka aðrar eignir sem höfðu verið inni í Reykja­vik Energy Invest, hinum fræga útrás­ar­armi Orku­veit­unnar. Eign­irnar sem um er að ræða voru Iceland America Energy og fjórð­ungs­hlutur í Envent Holding, sem átti jarð­varma­fyr­ir­tæki á Fil­ipps­eyjum.

Salan á Enex-Kína og Envent Holding varð að miklu póli­tísku þrætu­epli vorið 2012, enda var hlutur Orku­veitu Reykja­víkur í félög­unum seldur án aug­lýs­ingar. Vegna umfjöll­unar um söl­una sendi Haraldur Flosi Tryggva­son, stjórn­ar­for­maður Orku­veitu Reykja­víkur, frá sér yfir­lýs­ingu þar sem fram kom að Orku­veitan hafi átt engra ann­arra kosta völ en að selja hluti sína. Ástæðan var sam­komu­lag REI við Geysir Green Energy frá mars­mán­uði árið 2010 þar sem félögin skuld­bundu sig gagn­vart hvort öðru til að taka þátt sölu­ferli félag­anna þegar og ef annar aðila krefð­ist þess. „Af þessu sam­komu­lagi leiddi að stjórn og stjórn­endur REI stóðu frammi fyrir því vali í júní 2011 að gera annað tveggja; selja hlut sinn í Enex-Kína og Envent til Orku Energy (OE) sem GGE hafði sam­þykkt ellegar kaupa hlut GGE. Sem sagt fá 3-400 millj­ónir í kass­ann eða leggja út 1.800 millj­ónir. Allar aðstæður í rekstri REI og ekki síður OR voru með þeim hætti að valið varð næsta ein­falt,“ segir í yfir­lýs­ingu Haraldar Flosa.

Í samstarfi með stærsta fyrirtæki Kína


Nafni Enex-Kína var síðar breytt í Orka Energy China ehf. Félagið á, sam­kvæmt síð­asta birta árs­reikn­ingi, 49 pró­sent hlut í kín­versku félagi sem heitir Shaanxi Green Energy Geothermal Develop­ment (SGEG), sem vinnur að þróun og rekstri jarð­varma­orku­vera í Kína. Sá hluti SGEG sem er ekki í eigu Orku Energy China, alls 51 pró­sent hlutur, er í eigu kín­verska orku­fyr­ir­tæk­is­ins Sinopec, stærsta fyr­ir­tækis Kína og þriðja stærsta fyr­ir­tækis í heimi. Tekjur Sinopec á árinu 2014 voru, sam­kvæmt lista Fortune Global 500, 457 millj­arðar dala og hagn­aður fyr­irtæð­is­ins tæp­lega níu millj­arðar dala, eða rúm­lega 1.200 millj­arðar króna. Einungis Walmart og Royal Dutch Shell voru stærri í heim­inum.

Hjá SGEG vinna á vel á þriðja hund­rað manns og stefna félags­ins er að hita upp 100 milljón fer­metra af íbúðar- og atvinnu­hús­næði fyrir árið 2020 auk þess sem það hyggur á stór­tæka raf­magns­fram­leiðslu. Fyr­ir­tækið átti eignir upp á 17,3 millj­arða króna í lok árs 2013 og eigið fé þess í lok þess árs var 8,8 millj­arðar króna.

Mark­að­ur­inn, fylgi­blað Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, greindi frá því í nóv­em­ber 2012 að Richard Chandler Corporation (RCC) hefði keypt 33 pró­senta hlt í móð­ur­fé­lagi Orku Energy Holding. Samkvæmt til­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­skráar greiddi RCC tólf millj­ónir dala, um 1,6 millj­arð króna, fyrir hlut­inn. RCC, sem er stað­sett Singa­pore, var stofnað af Richard F. Chandler, nýsjá­lenskum fjár­festi. Sá er væg­ast sagt vellauðgur, en eignir hans eru metnar á um 390 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár