Ekkert fékkst upp í 65 milljóna kröfur á gjaldþrota félag sem Illugi átti hlut í

Ekkert fékkst upp í 65 milljón króna kröfur í bú Sero ehf., félags sem Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, átti hlut í. Skiptum á búi félags­ins lauk 29. jan­úar 2013, nokkrum mán­uðum áður en að Illugi varð ráð­herra í rík­is­stjórn. Samkvæmt síð­asta birta árs­reikn­ingi Sero, sem er fyrir árið 2008, tap­aði félagið rúmum hund­rað millj­ónum króna á árunum 2007 og 2008. Eigið fé Sero var nei­kvætt um 153 millj­ónir króna í lok árs 2008.

Ráðherra segir frá gjaldþroti fyrirtækis


Illugi setti stöðu­upp­færslu á Facebook í dag, vegna frétta af kaupum stjórn­ar­for­manns Orku Energy á íbúð hans, þar sem Illugi sagði meðal ann­ars frá því að hann og eig­in­kona hans hafi orðið fyrir nokkrum fjár­hags­legum áföllum fyrir nokkrum árum. „Hrunið lék okkur grátt eins og marga aðra af okkar kyn­slóð, gjald­þrot fyr­ir­tækis sem ég og tengda­faðir minn heit­inn áttum þýddi að á okkur féllu millj­óna ábyrgðir og tekju­missir sem ég varð fyrir þegar ég tók mér launa­laust leyfi frá þing­störfum gerði sitt. Við stóðum því frammi fyrir því að selja íbúð okkar eða eiga það á hættu að missa hana.“

Fyr­ir­tækið sem varð gjald­þrota hét Sero ehf.og var líf­tækni­fyr­ir­tæki sem stað­sett var á Skaga­strönd. Félagið ætl­aði sér meðal ann­ars að vinna prótein­vökva úr grá­sleppu sem ann­ars yrði fargað til að fram­leiða bragð­efni fyrir ýmis konar mat­væla­iðnað. Rekst­ur­inn gekk hins vegar ekki upp og Sero var úrskurðað gjald­þrota 8. nóv­em­ber 2012.

Skiptum í búinu lauk 29. jan­úar 2013 og voru kröfur í búið alls 65,4 millj­ónir króna. Engar eignir fund­ust í búinu og því fékkst ekk­ert upp í kröf­urnar. Samkvæmt síð­asta birta árs­reikn­ingi Sero, sem er fyrir árið 2008, átti Illugi tólf pró­sent hlut í félag­inu. Samkvæmt hags­muna­skrán­ingu á vef Alþingis árið 2009 hafði sá hlutur þá minnkað niður í tíu pró­sent.

Þungur rekstur


Stærstu eig­endur Sero voru Einar Oddur Krist­jáns­son heitin, tengda­faðir Illuga, og Steindór Har­alds­son. Einar Oddur átti 27 pró­sent hlut og Steindór 24 pró­sent en auk þess átti Torfahús, félag í eigu Einars Odds, 19 pró­sent. Auðhumla svf., móð­ur­fé­lag Mjólk­ur­sam­söl­unnar, átti auk þess 17 pró­sent hlut. Teitur Björn Ein­ars­son, bróðir eig­in­konu Illuga og núver­andi aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, var fram­kvæmda­stjóri félags­ins.

Samkvæmt síð­asta birta árs­reikn­ingi Sero nam tap félags­ins 77,2 millj­ónum króna árið 2008 og 27,8 millj­ónum króna árið áður. Samtals námu skuldir Sero 187,2 millj­ónum króna í lok árs 2008 en eignir þess 34,5 millj­ónum króna. Eigið fé var því nei­kvætt um 152,7 millj­ónir króna á þeim tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár