Páll Magnússon um mál Illuga: Sjaldan hefur spilling birst jafn hrein og kristaltær

„Nú er liðið eitt sumar síðan upp­lýst var að mennta­mála­ráð­herra bað um og fékk per­sónu­legan fjár­stuðn­ing frá aðila sem hann síðan veitti póli­tíska fyr­ir­greiðslu vegna við­skipta­hags­muna í Kína. Pólitísk spill­ing verður ekki aug­ljós­ari en þetta.“

Þetta skrifar Páll Magn­ús­son, fyrr­ver­andi útvarps­stjóri, í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag. Í grein­inni kallar Páll eftir afsögn Illuga úr starfi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, en síð­ast­liðið vor var upp­lýst að Illugi seldi íbúð­ina sína á Rán­ar­götu til stjórn­ar­for­manns Orku Energy vegna fjár­hags­erf­ið­leika og leigir hana nú út. Málið kom upp í fjöl­miðlum í kjöl­far þátt­töku Orku Energy í ferð Illuga til Kína, en Illugi vann ráð­gjafa­störf fyrir fyr­ir­tækið þegar hann var utan þings.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Páll kallar eftir afsögn Illuga og sakar hann um póli­tíska spill­ingu. Það gerði hann einnig í maí síð­ast­liðnum.

Páll hætti sem útvarps­stjóri nokkrum mán­uðum eftir að Illugi varð mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, en ráðu­neyti hans fer með mál­efni RÚV. Ástæðan var sú að ákveðið hafði verið að aug­lýsa stöðu útvarps­stjóra lausa til umsóknar.

Segir málið slæmt fyrir flokkinn


Í grein­inni, sem ber yfir­skrift­ina „Er ráð­herr­ann ekki á förum?“, segir Páll að sjálf skil­grein­ingin sem OECD og fleiri alþjóð­legar stofn­anir noti á fyr­ir­bær­inu „spill­ingu“ feli í sér verk­lýs­ingu á því sem ráð­herran gerði. „Mis­notkun stjórn­valds eða póli­tískra ráða­manna á valdi sínu og áhrifum fyrir ólög­mætan, venju­lega leyni­legan, per­sónu­legan ávinn­ing,“ er sú lýs­ing sem Páll vísar til. Hann telur að ef Illugi segir ekki sjálfur af sér þá hljóti for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins að vísa honum veg­inn. Aðstæður í dag séu ekki gæfu­legar flokknum.

„Við þetta bæt­ist síðan að ráð­herr­ann sagði opin­ber­lega og vís­vit­andi ósatt þegar hann hélt því fram í við­tali við Frétta­blaðið 9. apríl sl. að teng­ing hans við þennan aðila væri frá þeim tíma þegar hann var utan þings og að hann hefði engra fjár­hags­legra hags­muna að gæta gagn­vart honum lengur. Hvorttveggja var og er ósatt,“ segir í grein­inni. Auk þess hafi fjöl­mið­ill­inn Stundin þrá­spurt ráð­herran um málið en engin svör fengið.

„Þögn ráð­herr­ans er skilj­an­leg. Honum væri þó hollt að minn­ast þeirrar meg­in­reglu að ráð­herrar á Vest­ur­löndum geta yfir­leitt ekki þagað neitt í hel nema sjálfa sig. Og þótt ráð­herr­anum hafi tek­ist að koma sér undan því að svara fjöl­miðlum allan þennan tíma, svo und­ar­legt sem það nú er og má heita mikil lít­il­þægni af þeirra hálfu, þá kemst hann varla undan því að svara fyrir málið á Alþingi eða Lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem stendur fyrir dyrum. Nema þá að þessar stofn­anir legg­ist í sam­ræmda með­virkni með ráð­herr­anum og spyrji einskis.“

„Hjákátleg þögn“


Páll telur „hjá­kát­lega þögn“ ríkja um málið hjá þeim sem tíð­ast skrifa um sam­fé­lags­mál í dag­blöð og net­miðla. „Ekki hefur heyrst hósti né stuna frá þessum ann­ars sískrif­andi 5-6 ein­stak­lingum. Þó hefur póli­tísk spill­ing á Íslandi sjaldan birst jafn hrein og krist­al­tær og í ofan­greindu til­viki. Sumir þess­ara skrif­finna görg­uðu sig t.d. hása mán­uðum saman út af máli Hönnu Birnu. Hún gat þó að ákveðnu marki afsakað sig með mis­tökum, dóm­greind­ar­leysi, reynslu­leysi og mis­vitrum aðstoð­ar­mönnum og ráð­gjöfum. Engu slíku er til að dreifa í máli mennta­mála­ráð­herra. Þar stendur spill­ingin ein og hrein og hefur ekk­ert skjól af mis­tökum eða dóm­greind­ar­leysi; þetta var úthugs­aður og ein­beittur ásetn­ingur ráð­herra um póli­tískan greiða fyrir per­sónu­legan. Samt heyr­ist ekki múkk í hinni málglöðu intelli­g­ensíu. Það er svo sem í góðu sam­ræmi við þau marg­tuggðu vís­dóms­orð Laxness að Íslend­ingar „… leysi vand­ræði sín með því að stunda orð­hein­g­ils­hátt og deila um tit­línga­skít sem ekki kemur mál­inu við; en verði skelfíngu lostnir og setji hljóða hvenær sem komið er að kjarna máls.“ Páll spyr hvort þetta sé vegna kunn­inga­skapar eða vin­áttu við „hinn geð­þekka og kúltíver­aða ráð­herra, sem sækir sömu konserta og kaffi­hús - og spilar auk þess fal­lega á píanó?“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár