Fyrrum útvarpsstjóri fer fram á afsögn Illuga Gunnarssonar vegna pólitískrar spillingar

Páll Magn­ús­son, fyrrum útvarps­stjóri, segir Illuga Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hafa orðið upp­vís að hreinni póli­tískri spill­ingu með því að veita Orku Energy fyr­ir­greiðslu þegar fyrir lá að stjórn­ar­for­maður þess félags hafi leyst úr per­sónu­legum fjár­hags­vanda ráð­herr­ans. „Sú fram­ganga gæti raunar til­heyrt dæma­safni í hand­bók um póli­tískt sið­leysi. Ráðherra getur ekki notað stöðu sína sem slíkur til að greiða fyrir við­skipta­hags­munum ein­stak­lings eða fyr­ir­tækis sem skömmu áður hefur rétt honum fjár­hags­lega, per­sónu­lega, hjálp­ar­hönd. Þetta hlýtur að vera öllum ljóst, jafn­vel á Íslandi. Á Vest­ur­löndum víkur slíkur ráð­herra,“ segir Páll í grein sem birt­ist í Frétta­blað­inu í morgun.

Páll hætti sem útvarps­stjóri nokkrum mán­uðum eftir að Illugi varð mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, en ráðu­neyti hans fer með mál­efni RÚV. Ástæðan var sú að ákveðið hafði verið að aug­lýsa stöðu útvarps­stjóra lausa til umsóknar.

Stjórnarformaðurinn keypti íbúð ráðherrans


Illugi sagði frá því fyrir um tíu dögum síðan að hann hafi selt íbúð sína í Vesturbæ Reykja­víkur til Hauks Harð­ars­sonar, eins eig­anda og stjórn­ar­for­manns Orku Energy, fyrir 53,5 millj­ónir króna árið 2013 og að ráð­herr­ann leigi hana til baka á 230 þús­und krónur á mán­uði, án hita og raf­magns. Leigu­samn­ingur sem hann gerði við Hauk var til tveggja ára með vali á fram­leng­ingu. Ástæða þessa voru fjár­hags­vand­ræði sem ráð­herr­ann hafði ratað í vegna gjald­þrots fyr­ir­tæk­is­ins Sero og tekju­leysi á meðan að hann vék af þingi vegna rann­sóknar á sjóði 9, pen­inga­mark­aðs­sjóði Glitnis þar sem Illugi var stjórn­ar­maður fyrir hrun.

Vikurnar áður hafði Illugi legið undir gagn­rýni vegna þess að fimm full­trúar Orku Energy voru með ráð­herr­anum í opin­berri ferð sem hann fór til Kína í mars. Einn þeirra var Haukur Harð­ar­son, stjórn­ar­for­maður Orku Energy. Á öðrum degi heim­sóknar sinnar, þann 22. mars, kynnti hann sér jarð­varma­verk­efni í Xionxian hér­aði, sem unnin eru af SGEG, sem Orka Energy China á 49 pró­sent hlut í. Þann 25. mars hitti Illugi Fu Chengyu, stjórn­ar­for­mann Sinopec. Samkvæmt dag­skrá ferðar ráð­herr­ans, sem Hring­braut hefur birt opin­ber­lega, tóku fimm aðilar utan Illuga þátt í fund­inum með Fu Chengyu. Þrír þeirra voru íslenskir emb­ætt­is­menn. Hinir tveir voru frá Orku Energy. Annar þeirra var Haukur Harð­ar­son.

[caption id="attachment_27132" align="alignnone" width="620"] Í des­em­ber 2013 var Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­inga­mála­ráð­herra, við­staddur þegar Orka Energy skrif­aði undir sam­starfs­samn­ing við kín­verska hér­aðið Xianyang og Sinopec Star Petr­o­leum um þróun á jarð­varma­nýt­ingu og frek­ari útþennslu á hit­un­ar­kerfum í Xianyang. Und­ir­ritun samn­ings­ins fór fram á Íslandi. Fyrir hönd Orku Energy und­ir­rit­aði Haukur Harð­ar­son, stjórn­ar­for­maður félags­ins, sam­komu­lagið. Mynd: Orka­energy.com[/caption]

Í des­em­ber 2013 var Illugi við­staddur þegar Orka Energy skrif­aði undir sam­starfs­samn­ing við kín­verska hér­aðið Xianyang og Sinopec Star Petr­o­leum um þróun á jarð­varma­nýt­ingu og frek­ari útþennslu á hit­un­ar­kerfum í Xianyang. Und­ir­ritun samn­ings­ins fór fram á Íslandi. Fyrir hönd Orku Energy und­ir­rit­aði Haukur Harð­ar­son, stjórn­ar­for­maður félags­ins, sam­komu­lagið.

Ástæða þess að þetta hafði verið gagn­rýnt var sú að Illugi starf­aði sem ráð­gjafi fyrir Orku Energy á árinu 2011, meðan hann var utan þings. Það liðu 20 dagar frá því að fjöl­miðlar hófu að spyrja ráð­herr­ann út í tengsl hans við Orku Energy þar til að hann opin­ber­aði að Haukur hefði keypt íbúð hans. Það gerði Illugi í fréttum RÚV 26. apríl síð­ast­lið­inn að eigin frum­kvæði. Blaða­maður Stund­ar­innar hafði þá sent Illuga fyr­ir­spurn um sama mál sem hann hafði ekki svarað.

Illugi hefur meðal ann­ars bent á að ýmsir aðrir ráð­herrar hafi verið við­staddir fundi Orku Energy erlendis og hjálpað til við að greiða götu félags­ins. Enginn annar ráð­herra hefur hins vegar starfað fyrir fyr­ir­tækið eða hlotið fjár­hags­lega fyr­ir­greiðslu frá eig­anda þess.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um Orku Energy í frétta­skýr­ingu sem birt­ist í lok apríl.

Hinir fengu ekkert í staðinn


Páll segir í grein sinni að allt annað en sú stað­reynd að ráð­herr­ann hafi notað stöðu sína sem ráð­herra til að greiða fyrir við­skipta­hags­munum ein­stak­lings eða fyr­ir­tækis sem skömmu áður hefur rétt honum fjár­hags­lega, per­sónu­lega, hjálp­ar­hönd sé auka­at­riði og utan meg­in­efni máls­ins. „Eftir stendur hin póli­tíska spill­ing ein og hrein. Frá­leit­ust er stað­hæf­ingin um að eldri atbeini ann­arra ráð­herra fyrir þetta sama fyr­ir­tæki sé sama eðlis. Það er hann ekki. Í hann vantar and­lagið; þeir ráð­herrar fengu ekk­ert í stað­inn, eftir því sem best er vitað. Í því felst eðl­is­mun­ur­inn. Ráðherra sem hefur gert sig beran að ofan­greindu ætti að sýna þjóð­inni - og flokknum sínum - þá kurt­eisi að segja sig frá ráð­herra­dómi og þing­mennsku.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár