Brewdog hvetur viðskiptavini síðustu helgar til að fara í skimun

Einn starfs­maður veit­inga­stað­ar­ins Brewdog hefur greinst með kór­ónu­veiruna, en allt starfs­fólk stað­ar­ins fór í skimun í gær eftir að upp­lýs­ingar bár­ust um að smit­aður ein­stak­lingur hefði sótt stað­inn síð­ustu helgi.

Veit­inga­stað­ur­inn Brewdog hvetur þá sem heim­sóttu stað­inn föstu­dag­inn 11. sept­em­ber eða laug­ar­dag­inn 12. sept­em­ber til þess að fara í skimun, en í ljós hefur komið að einn starfs­maður sem var að vinna þá helg­ina hefur greinst með COVID-19.

„Við fengum þær upp­lýs­ingar frá smitrakn­ingateymi síð­degis á fimmtu­dag að hugs­an­lega hafi smit­aður við­skipta­vinur komið til okkar föstu­dag­inn 11. sept­em­ber. Allt okkar starfs­fólk fór strax í skimun í gær, föstu­dag­inn 18. sept­em­ber

Fyrr í dag fékk svo einn starf­maður okkar sím­tal um að hann væri smit­aður af COVID-19. Allt annað starfs­fólk fékk nei­kvæða útkomu. Þessi umræddi starfs­maður var síð­ast á vakt um síð­ustu helgi, var bæði föstu­dag og laug­ar­dag, og hefur ekki komið inná stað­inn síðan. Grunur leikur á að hann hafi smit­ast af gesti frá þessum föstu­degi,“ segir í færslu á Facebook-síðu stað­ar­ins, þar sem fram kemur að stað­ur­inn hafi unnið þétt með smitrakn­ingateymi almanna­varna frá því að upp­lýs­ingar bár­ust um mögu­legt smit.

„Við viljum hvetja alla við­skipta­vini okkar sem voru á staðnum á föstu­dag­inn 11. sept­em­ber eða laug­ar­dag­inn 12. sept­em­ber til þess að fara í skimun,“ segir í færslu Brewdog, sem Andri Birg­is­son fram­kvæmda­stjóri stað­ar­ins und­ir­ritar.

Víðir hvatti staði til þess að sýna ábyrgð og láta vita

Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að eig­endur ein­hverra skemmti­staða, þar sem smit­aðir ein­stak­lingar hefðu verið á ferð, hefðu ein­dregið óskað eftir því að staðir þeirra yrðu ekki nafn­greindir opin­ber­lega.

Víðir sagði enn­fremur að yfir­völd teldu sig ekki hafa heim­ild til þess að greina frá nöfnum stað­anna, en hvatti eig­endur skemmti­stað­anna sem um ræðir til þess að sýna sam­fé­lags­lega ábyrgð og láta við­skipta­vini sína vita. Hann sagði að hann teldi að eng­inn myndi tapa á því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár