Of snemmt að draga ályktanir um líf á öðrum hnetti

Kepler-sjón­auk­inn hefur komið auga á plánetu í fjar­lægu sól­kerfi sem er einna lík­ust Jörðinni af þeim plánetum sem NASA hefur þegar kannað. Plánetan sem kölluð er Kepler-452b er á spor­braut um sól í líf­belti þess sól­kerfis, þar sem hvorki er of heitt né of kalt til þess að vatn sé á fljót­andi formi. Með öðrum orðum, upp­fylli for­sendur lífs eins og þekk­ist á Jörðinni.

Sævar Helgi Bragason, for­maður Stjörnu­skoð­un­ar­fé­lags Sel­tjarn­ar­ness, segir of snemmt að draga álykt­anir um þennan fjar­læga heim og bendir á að það tekur ríf­lega 24 millj­ónir ára fyrir okkur að ferð­ast þangað á þeim hraða sem við ráðum við í dag.

Fjallað var um Kepler-sjón­auk­ann og uppgvöt­anir sem vís­inda­menn hafa gert í gegnum hann í Hlað­varpi Kjarnans í febr­úar. Smelltu hér til að hlusta á spjall við Sævar Helga um fjar­læga líf­væn­lega heima.

Kepler-452b svipar nokkuð til Jarð­ar­innar. Fyrir það fyrsta eru ytri aðstæður þannig að þær svipa nokkuð til okkar heima­plánetu; Árið er 385 dagar og sólin þar svipar til okkar. Vís­inda­menn hafa getið sér til um að nýja plánetan sé líka úr grjóti, það er að hún hafi fast yfir­borð.

Það er hins vegar hættu­legt að draga of miklar álykt­anir um hvernig þessi heimur lítur út, enda eru lyk­il­stærðir um plánet­una ekki vit­aðar, til dæmis eins og massi hennar. Vitum við ekki massan getum við ekki vitað úr hverju hnött­ur­inn er og þar fram eftir göt­unum.

Samkvæmt til­kynn­ingu frá NASA er Kepler-425b 60 pró­sent stærri og nokkuð eldri en Jörðin. Áætlað er að hún hafi fimm sinnum meiri massa en Jörðin. Stæði maður á yfir­borði Kepler-452b væri maður helm­ingi þyngri en á Jörðinni. Samt sem áður er þetta minnsta plánetan sem fund­ist hefur í líf­beltum ann­arra sóla hingað til.

Sævar Helgi bendir á á Facebook að Kepler-452b geti allt eins verið lík­ari Nept­únusi en Jörðinni. „Annars er ég engan veg­inn sann­færður um að þessi pláneta lík­ist jörð­inni okkar jafn mikið og látið er í veðri vaka,“ skrifar hann.

Kepler-sjón­auk­inn er á spor­braut um sól­ina okkar nærri Jörðinni og er beint að ákveðnum bletti í Vetr­ar­braut­inni þar sem vís­inda­menn telja að hægt sé að koma auga á plánetur líkar Jörðinni. Helsta verk­efni Kepler-sjón­aukans síðan hann var sendur á loft árið 2009 hefur einmitt verið að finna líf­væn­legar plánetur í fjar­lægum sól­kerfum.

Á þeim hraða sem New Horizons-geim­farið, sem nýverið kann­aði yfir­borð Plútó eftir níu ára ferða­lag frá jörðu, tæki það geim­far frá Jörðinni 25,8 millj­ónir ára að kom­ast til Kepler-452b. „Pössum Jörðina okkar. Hún er ein­stök,“ skrifar Sævar Helgi.





Það tæki ríf­lega 24 millj­ónir ára fyrir okkur að ferð­ast til Kepler 452b á þeim hraða sem við ráðum við í dag. Pössum Jö...

Posted by Sævar Helgi Bragason on 23. júlí 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár