90 prósent vilja taka á móti flóttamönnum frá Sýrlandi

88,5 pró­sent Íslend­inga vilja taka á móti ein­hverjum fjölda flótta­manna frá Sýrlandi, sam­kvæmt nýrri könnun frá MMR. Tölu­verður mis­munur er hins vegar á því hversu mik­inn fjölda fólks svar­endur töldu að taka ætti á móti.

19,1% sagði að taka ætti á móti allt að 50 flótta­mönnum. 14% vilja taka við allt að 150 flótta­mönnum og 25,5 pró­sent bilja taka á móti 151 til 500 flótta­mönnum. Stærsti hóp­ur­inn, eða 30,2%, vilja taka á móti fleiri en 500 flótta­mönnum frá Sýrlandi.

Þeir sem studdu rík­is­stjórn­ina voru nei­kvæð­ari gagn­vart því að taka á móti flótta­mönnum en aðrir. Þannig sögðu 15%stuðn­ings­manna rík­is­stjórn­ar­innar að ekki ætti að taka á móti neinum flótta­mönnum, og 27% vildu taka allt að 50 flótta­menn. Stuðn­ings­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins eru lík­legri en aðrir til að vilja taka enga eða fáa flótta­menn. 18 pró­sent kjós­enda Fram­sóknar vilja ekki að Ísland taki á móti neinum flótta­manni, og 34 pró­sent telja að aðeins eigi að taka við allt að 50 flótta­mönnum. 12 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins vilja ekki taka á móti neinum flótta­mönnum en 29 pró­sent vilja taka á móti allt að 50 flótta­mönnum.

Meðal þeirra sem ekki styðja rík­is­stjórn­ina sögðu 9 pró­sent að ekki ætti að taka á móti neinum flótta­mönnum og 14 pró­sent vildu taka allt að 50 flótta­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár