Pútín vill hefna fyrir hryðjuverk um borð í farþegaþotunni

Forseti Rúss­lands ætlar að efla loft­árásir rúss­neska hers­ins í Sýrlandi og hefur fyr­ir­skipað alrík­is­lög­regl­unni að hafa hendur í hári þeirra sem bera ábyrgð á hryðju­verkum.

Vladimír Pútín á fundinum með yfirmönnum hermála í Rússlandi í Moskvu í dag.
Vladimír Pútín á fund­inum með yfir­mönnum her­mála í Rúss­landi í Moskvu í dag. Mynd: EPA

Vladimír Pútin, for­seti Rúss­lands, hefur heitið því að Rússar muni efla loft­árásir sínar á Íslamska ríkið í Sýrlandi og hefja alþjóð­lega leit að söku­dólg­unum sem grönd­uðu rúss­nesku far­þega­þot­unni yfir Sínaí-skaga í Egypta­landi í síðsta mán­uði. Rannsókn stjórn­valda í Kreml bendir til þess að hryðju­verka­menn hafi komið sprengju fyrir um borð í vél­inni. Reuters greinir frá þessu.

„Við munum finna þá hvar sem þeir halda sig og refsa,“ sagði Pútín á fundi með yfir­mönnum her­mála sem sýnt var beint frá í sjón­varpi í dag. Þar til nú hafa Rússar ekki gefið mikið fyrir skýr­ingar vest­rænna stjórn­valda um að hryðju­verka­menn hafi verið að verki og lagt áherslu á að nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar. 224 lét­ust þegar far­þega­þot­unni var grandað 31. októ­ber.

Seint í gær­kvöldi til­kynnti Alex­ander Bortnikov, yfir­maður alrík­is­lög­reglu rúss­neska sam­bands­rík­is­ins, að rann­sóknin hefði leitt í ljós að merki um grun­sam­legt sprengi­efni hafi fund­ist í flaki far­þega­þot­unnar og á eigum far­þeg­anna. „Samkvæmt grein­ingu sér­fræð­inga okkar sprakk heima­gerð sprengja […] um borð í vél­inni sem varð til þess að þotan fór í sundur á flugi. Það skýrir hvers vegna skrokkur vél­ar­innar dreifð­ist um svo stórt svæði,“ sagði Bortnikov. „Við getum sagt með óyggj­andi hætti að um hryðju­verk var að ræða.“

Pútín sagði á fundi sínum með yfir­mönnum her­mála í Rúss­landi að um einn „blóð­ug­asta atburð í nútíma­sögu Rúss­lands“ væri að ræða og skip­aði flug­hernum að efla loft­árásir sínar í Sýrlandi til að svara árásinni á ferða­lang­ana um borð í far­þega­þot­unni. „Hernaður flug­hers okkar í Sýrlandi getur ekki ein­fald­lega haldið áfram. Hann þarf að efla þannig að glæpa­menn­irnir skilji að hefnd sé óhjá­kvæmi­leg,“ sagði Pútín.

Reuters hefur eftir frönskum rík­is­starfs­manni að Rússar hafi þegar aukið við loft­árásir sínar gegn Íslamska rík­inu í Raqqa í norð­an­verðu Sýrlandi. Heim­ild­ar­mað­ur­inn segir Reuters að það sé til marks um að Rússar séu þegar farnir að hafa áhyggur af ógn­inni sem stafar af Íslamska rík­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár