Vígamenn segjast hafa skotið rússnesku þotuna niður - 224 létust

Vígamenn á Síanískaga í Egypta­landi, sem berj­ast undir merkjum Íslamska rík­is­ins, segj­ast hafa skotið niður flug­vél Kogalyma­via flug­fé­lags­ins rúss­neska í dag, sam­kvæmt yfir­lýs­ingum sem birst hafa á inter­net­inu. Ekkert hefur þó verið stað­fest ennþá, þar sem rann­sókn er á frum­stigi.

Enginn af þeim 224 sem var um borð í flug­vél Kogalyma­via, í flugi númer KGL9268, komst lífs af þegar flug­vélin fórst í Egypta­landi í morgun, en hún var á leið frá ferða­manna­bænum Sharm el-Sheikh við Rauða­hafið til St. Pét­urs­borgar. Hún fórst um tutt­ugu og tveimur mín­útum eftir flug­tak.

Vladímir Pútín, for­seti Rúss­lands, hefur lýst yfir þjóð­ar­sorg í Rúss­landi og fyr­ir­skipað rann­sókn á orsökum þess að vélin fórst. Nær allir um borð voru Rússar, aðal­lega ferða­menn. Þrír ein­stak­lingar frá Úkraínu voru um borð, af þeim 217 far­þegum sem voru í vél­inni. Áhöfnin vél­ar­innar taldi sjö tals­ins.

Samkvæmt fréttum breska rík­is­út­varps­ins BBC voru 138 konur í vél­inu og sautján börn á aldr­inum tveggja til sautján ára. Aðstæður á vett­vangi slyss­ins er sagðar skelfi­legar. Hin svo­kall­aði svarti kassi, sem geymir upp­lýs­ingar um sam­skipti og aðgerðir flug­manna, er þegar fund­inn og hefur verið fjar­lægður af vett­vangi til rann­sóknar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár