52 þúsund erlendir ríkisborgarar greiddu skatta á Íslandi á árinu 2018

Um þriðj­ungur allra skatt­greið­enda á milli tví­tugs og fer­tugs á Íslandi eru erlendir rík­is­borg­arar. Aldrei áður hafa jafn margir útlend­ingar greitt skatta á Íslandi og gerðu það á árinu 2018.

Stór hluti þeirra sem starfa í íslenska byggingageiranum eru erlendir ríkisborgarar.
Stór hluti þeirra sem starfa í íslenska bygg­inga­geir­anum eru erlendir rík­is­borg­arar. Mynd: Bára Huld Beck

Alls voru 81,4 pró­sent þeirra sem komu nýir inn á skatt­skrá á árinu 2018 erlendir rík­is­borg­arar. Þeir voru 8.161 af 10.023 nýjum skatt­greið­endum það árið og þeim fjölg­aði um 18,4 pró­sent á skatt­skrá á meðan að íslenskum rík­is­borg­urum á henni fjölg­aði ein­ungis um 0,7 pró­sent. Það er svipuð fjölgun og hefur verið und­an­farin ár.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein í nýjasta tölu­blaði Tíundar, frétta­blaði rík­is­skatt­stjóra, sem skrifuð er af rekstr­ar­hag­fræð­ingnum Páli Kolbeins.

Þar kemur enn fremur fram að 52.489 erlendir rík­is­borg­arar greiddu skatta á Íslandi á árinu 2018 sem gerir þá að 17,1 pró­sent allra fram­telj­enda á skatt­grunn­skrá á því ári. Tæplega tveir þriðju þess­ara útlend­inga, eða 65,3 pró­sent, eru á milli tví­tugs og fer­tugs.

[links]Á aldr­inum 26 til 30 ára voru 22.205 Íslend­ingar á skatt­grunn­skrá en 10.771 erlendir rík­is­borg­arar. Í þeim hópi eru erlendur rík­is­borg­ar­arnir því 32,7 pró­sent allra skatt­greið­enda.

það þarf vart að taka fram að erlendir rík­is­borg­arar á meðal íslenskra skatt­greið­enda hafa aldrei verið jafn margir og þeir voru í lok árs 2018. Þeim hélt líka áfram að fjölga í fyrra, þótt að hægt hafi lít­il­lega á þeirri fjölgun. Í grein­inni í Tíund kemur fram að ef und­an­skilin eru árin 2006 og 2017 þá hefur fjölgun erlendra rík­is­borg­ara hins vegar aldrei verið meiri en árið 2018. Árið 2017 fjölg­aði útlend­ingum á skatt­grunn­skrá um 28,2 pró­sent og frá lokum árs 2016 hefur þeim fjölgað um 17.075 tals­ins. Það eru örlítið fleiri en bjuggu í Garðabæ í byrjun febr­úar 2020, þegar íbúa­fjöldi þess sveit­ar­fé­lags var 16.978.

75 prósent allrar fjölgunar vegna aðfluttra útlendinga

Í lok árs 2011 voru erlendir rík­­is­­borg­­arar sem bjuggu á Íslandi 20.957 tals­ins. Þeim hafði fækkað árin á undan í ljósi þess að hrunið hafði skilið eftir sig atvinn­u­­leysi sem slag­aði upp í tveggja stafa tölu, verð­­bólgu sem fór hæst upp í um 18 pró­­sent og tug­­pró­­senta geng­is­­fall íslensku krón­unn­­ar.

[adspot]Síðan þá hefur þeim fjölgað ár frá ári, en þó aldrei jafn mikið og á árinu 2017 . Á því ári einu saman fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum meira en á þeim fjórum árum sem á undan komu til sam­ans. Sú fjölgun hélt áfram að vera mikil 2018 og þótt hún hafi dreg­ist saman í fyrra þá fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum samt um rúm­lega fimm þús­und.

Alls voru 49.952 erlendir rík­is­borg­arar búsettir hér á landi þann 1. febr­úar 2020. Þá eru ekki taldir með þeir sem koma hingað á vegum t.d. starfs­manna­leiga, sem eru á hverjum tíma að minnsta kosti nokkur hund­ruð, eða sem hafa tekið upp íslenskt rík­is­fang. Þess vegna eru útlenskir skatt­greið­endur fleiri en þeir sem eru skráðir sem erlendir rík­is­borg­arar í skrám.

Alls voru íbúar lands­ins alls 364.260 um síð­ustu ára­mót. Það þýðir að erlendir rík­is­borg­arar eru um 13,7 pró­sent íbúa á Íslandi um þessar mundir. Um 75 pró­sent allrar fjölg­unar sem orðið hefur hér­lendis síð­ast­liðin þrjú ár er vegna erlendra rík­is­borg­ara sem fluttu til lands­ins.

Áframhaldandi fjölgun í kortunum

Búist er við því að þessi þróun haldi áfram í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð. Í nýj­ustu mann­fjölda­spá Hagstofu Íslands kemur til að mynda fram að ef háspá hennar gengur eftir verði erlendir rík­is­borg­arar hér­lendis orðnir tæp­lega 67 þús­und í lok árs 2023. Þeir yrðu þá allt að 17 pró­sent lands­manna.

Háspáin gerir ráð fyrir því að aðfluttum fjölgi um 17.291 umfram brott­flutta frá byrjun árs 2020 og út árið 2023. Það eru aðeins fleiri en búa í Garðabæ um þessar mundir. Miðspá Hag­stof­unnar gerir ráð fyrir að þeim fjölgi um 11.748 umfram brott­flutta á tíma­bil­inu.

Gangi háspáin eftir verða erlendir rík­is­borg­arar á Íslandi jafn margir og allir íbúar Kópavogs og Hafn­ar­fjarðar sam­an­lagt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár