Erlendum ríkisborgurum gæti fjölgað um einn Garðabæ út 2023

Útlend­ingum sem fluttu til Íslands fjölg­aði um rúm­lega fimm þús­und í fyrra þrátt fyrir efna­hags­sam­drátt. Þeir hefur fjölgað um 128 pró­sent frá byrjun árs 2011 og spár gera ráð fyrir að þeim haldi áfram að fjölga á allra næstu árum.

Erlendir rík­is­borg­arar gætu orðið tæp­lega 67 þús­und í lok árs 2023 ef háspá Hagstofu Íslands um aðflutta umfram brott­flutta, sem sett var fram í nýj­ustu mann­fjölda­spá stofn­un­ar­innar í nóv­em­ber síð­ast­liðnum, gengur eftir.

Erlendir rík­is­borg­arar sem búa á Íslandi voru 49.403 í byrjun árs, án þess að taldir séu með þeir sem hingað koma á vegum starfs­manna­leiga eða þeir sem hlotið hafa íslenskan rík­is­borg­ara­rétt.

Háspáin gerir ráð fyrir því að aðfluttum fjölgi um 17.291 umfram brott­flutta frá byrjun árs 2020 og út árið 2023. Það eru aðeins fleiri en búa í Garðabæ um þessar mundir. Miðspá Hag­stof­unnar gerir ráð fyrir að þeim fjölgi um 11.748 umfram brott­flutta á tíma­bil­inu.

Gangi háspáin eftir verða erlendir rík­is­borg­arar á Íslandi jafn margir og allir íbúar Kópavogs og Hafn­ar­fjarðar sam­an­lagt.

Und­an­farin ár hefur staðan verið þannig að fleiri íslenskir rík­is­borg­arar flytja frá land­inu en til þess á sama tíma og erlendum rík­is­borg­urum fjölgar hratt. Haldi sú þróun áfram, að fjölgun erlendra rík­is­borg­ara sem hingað koma sé meiri en umfang aðfluttra umfram brott­flutta þá eru ofan­greindar tölur var­lega áætl­aðar.

Gætu orðið allt að 17 prósent landsmanna í árslok 2023

Erlendum rík­is­borg­urum hefur fjölgað um 128 pró­sent frá byrjun árs 2011 og um 63 pró­sent á síð­ustu þremur árum. Alls hefur 75 pró­sent þeirrar fjölg­unar sem orðið hefur á íbúum lands­ins síð­ast­liðin þrjú ár, sem nú eru um 364 þús­und tals­ins, verið vegna erlendra rík­is­borg­ara sem flutti til Íslands.

Nú eru erlendir rík­is­borg­arar 13,5 pró­sent af þeim sem búa hér­lendis og lang­flestir þeirra sem flytja hingað eru ungt fólk, á þrí­tugs- og fer­tugs­aldri.

Búast má við því að erlendir rík­is­borg­arar verði á bil­inu 15,7 til 16,9 pró­sent af íbúum lands­ins í lok árs 2023 miðað við mið- og háspá Hagstofu Íslands. Til sam­an­burðar voru þeir um 6,6 pró­sent lands­manna í byrjun árs 2011.

Fjölgun í Reykjavík að uppistöðu vegna útlendinga

Meg­in­þorri þeirra erlendu rík­is­borg­ara sem sest hafa hér að búa í Reykja­vík eða á Suð­ur­nesjum, og þá sér­stak­lega í Reykja­nesbæ. Frá byrjun árs 2016 hefur íbúum Reykja­vík­ur­borgar fjölgað um 8.615 tals­ins. Erlendum rík­is­borg­urum hefur fjölgað um tæp­lega 9.500 á sama tíma. Rúmlega öll íbúa­fjölgun í Reykja­vík á þessu tíma­bili var því vegna erlendra rík­is­borg­ara sem fluttu til borg­ar­inn­ar, en erlendir rík­is­borg­arar eru nú um 16 pró­sent íbúa hennar.

Í dag búa tæp­lega 21 þús­und erlendir rík­is­borg­arar í Reykja­vík, eða rúm­lega 40 pró­sent allra útlend­inga sem búa á Íslandi. Fjöldi þeirra hefur tvö­fald­ast frá byrjun árs 2015. Til sam­an­burðar búa til að mynda 811 útlend­ingar í Garðabæ, en erlendir rík­is­borg­arar þar eru 4,7 pró­sent af öllum íbúum sveit­ar­fé­lags­ins.

Í byrjun árs 2015 bjuggu 1.590 erlendir rík­is­borg­ar­ar í Reykja­nesbæ. Þeir erum nú 4.949 og fjöldi þeirra því þre­fald­ast á örfáum árum. Erlendir rík­is­borg­arar voru 10,6 pró­sent íbúa í Reykja­nesbæ í byrjun árs 2015 en eru nú tæp­lega 26 pró­sent.

Samdráttur en fjölgun hélt áfram

Lang­flestir sem hingað hafa flutt á síð­ustu árum gera það vegna þess að hér hefur verið næg vinna. Þeir hafa mannað flest þau á þriðja tug þús­unda starfa sem orðið hafa til vegna vaxtar í ferða­þjón­ustu og mann­virkja­gerð. Flest störfin eru í þjón­ustu­geirum eða bygg­inga­iðn­aði.

Á Þjóð­ar­spegli Háskóla Íslands, sem fór fram í haust, sagði Gissur Pét­urs­son, ráðu­neyt­is­stjóri í félags- og barna­mála­ráðu­neyt­inu og fyrr­ver­andi for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar, að það væri mik­ill kostur að á Íslandi væri svo ein­falt að losa sig við erlent vinnu­afl um leið og sam­dráttur byrj­aði í efna­hags­líf­inu. Þau ummæli hafa verið gagn­rýnd víða, meðal ann­ars af borg­ar­full­trú­anum Sabine Leskopf sem skrif­aði opið bréf til félags- og barna­mála­ráð­herra vegna þeirra.

Í fyrra var sam­dráttur í efna­hags­kerf­inu. Búist er við því að hann hafi verið um 0,2 pró­sent. Helstu ástæður þess eru gjald­þrot WOW air, aðrir erf­ið­leikar tengdir ferða­þjón­ustu­geir­anum og loðnu­brestur.

Gjaldþrot WOW air hafði mikil áhrif á íslenskt efnahagslíf í fyrra og var meginbreyta í samdrætti.
Gjald­þrot WOW air hafði mikil áhrif á íslenskt efna­hags­líf í fyrra og var meg­in­breyta í sam­drætti.

Afleið­ing þessa hefur fyrst og síð­ast verið aukið atvinnu­leysi, en það mæld­ist 4,3 pró­sent í des­em­ber 2019 og hefur, sam­kvæmt tölum Vinnu­mála­stofn­unar, ekki verið meira síðan í apríl 2013. Atvinnu­leysið bitnar mest á erlendum rík­is­borg­urum sem hafa flutt hingað til lands til að starfa, en 40 pró­sent allra sem voru án atvinnu í des­em­ber í fyrra fóru slíkir. Á Suð­ur­nesjum, þar sem atvinnu­leysið mæld­ist 8,7 pró­sent og það mesta á land­inu, var staðan þannig að fleiri Pól­verjar voru án atvinnu síðla árs í fyrra en Íslend­ingar.

Þrátt fyrir þetta fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum á Íslandi um rúm­lega fimm þús­und í fyrra. Því liggur fyrir að sam­dráttur í efna­hags­kerf­inu hefur ekki hægt á komu erlendra rík­is­borg­ara til lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár