Obama mildar 46 fangelsisdóma

Barack Obama, Banda­ríkja­for­seti, hefur mildað 46 fang­els­is­dóma yfir fólki sem dæmt var fyrir fíkni­efna­brot sem voru ofbeld­is­laus. Í yfir­lýs­ingu sem for­set­inn gaf í dag var ákvörð­unin tekin í takti við lof­orð hans um að end­ur­skoða refsi­kerfi Banda­ríkj­anna. Frá þessu er greint á vef Reuters.

Fjöldi fanga í Banda­ríkj­unum er meiri en nokk­ur­staðar í heim­inum en sam­kvæmt töl­fræði­deild dóm­stóla vest­an­hafs voru 0,94 pró­sent full­orð­inna með banda­rískt rík­is­fang í fang­elsi í lok árs 2011 eða 2.266.800 manns. Samtals voru þá um 2,9 pró­sent allra full­orð­inna á ein­hverjum stað í refsi­kerf­inu.

Fjöldi fólks í fang­elsum vesta­hafs jókst hratt á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar og fór úr um 200 manns á hverja 100.000 íbúa árið 1970 í um 1000 á hverja 100.000 íbúa árið 2007.

Obama hefur nú mildað refs­ingar 89 fanga síðan í apríl í fyrra eða þegar Hvíta húsið setti af stað átak þar sem fangar gátu sótt um mildun refs­ingar. Flestir fang­els­is­dóm­arnir sem mild­aðir voru í dag, mánu­dag, voru refs­ingar fyrir krakk­neyslu. Dómar fyrir vörslu krakks í Banda­ríkj­unum voru eitt sinn jafn þungir og ef fólk hefði í fórum sínum 100 sinnum meira magn af hreinu kóka­íni í duft­formi.

„Refs­ingar þessa fólks voru ekki í sam­ræmi við brot þeirra,“ sagði Obama í yfir­lýs­ingu sinni. Föngunum 46 verður sleppt 10. nóv­em­ber næst­kom­andi. For­set­inn mun fyr­ir­skipa fleiri refsim­ild­anir og náð­anir áður en kjör­tíma­bil hans er úti í jan­úar 2017, að sögn tals­manns Hvíta húss­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár