Tíu fróðleiksmolar um faraldurinn á Íslandi

Við höfum kannski ekki átt sjö dag­ana sæla í ýmsum skiln­ingi und­an­farna mán­uði en við fikrumst þó í átt að viku án greindra smita á ný sem hefur ekki gerst síðan í júlí. Frá upp­hafi far­ald­urs­ins fyrir rúmu ári hafa sam­tals 104 dagar verið án nýrra smita.

Það er að birta til í faraldrinum, ári eftir að hann hófst hér á landi.
Það er að birta til í far­aldr­inum, ári eftir að hann hófst hér á landi. Mynd: Pexels

1.

Enginn Íslend­ingur yngri en sex­tíu ára hefur lát­ist vegna COVID-19 í þeim þremur bylgjum far­ald­urs­ins sem gengið hafa yfir. 29 hafa lát­ist úr sjúk­dómnum á Íslandi, þar af einn erlendur ferða­maður á fer­tugs­aldri. Sam­an­lagt hafa 833 ein­stak­lingar 60 ára eða eldri greinst með veiruna inn­an­lands.

Rúmt ár er liðið frá því að fyrsta inn­an­lands­smitið greind­ist á Íslandi.

2.

Í gær var aðeins einn í ein­angrun vegna smits sem greinst hafði inn­an­lands. Svo fáir hafa ekki verið í ein­angrun vegna COVID-19 síðan í lok júlí. Þann 5. apríl, á hátindi fyrstu bylgj­unnar, voru 1.096 sam­tímis í ein­angrun með sjúk­dóm­inn. Fyrstu sex dag­ana í apríl voru yfir þús­und í ein­angrun.

[adspot]

3.

Í þeirri þriðju sem gekk yfir í haust og upp­hafi vetrar voru mest 1.186 í ein­angrun á sama tíma. Það var þann 16. októ­ber. Í heila ell­efu daga, 12.-22. októ­ber, voru yfir þús­und í ein­angrun.

4.

Frá ára­mótum hafa 104 greinst með kór­ónu­veiruna inn­an­lands. Aðeins ell­efu greindust í febr­úar. Ekkert smit hefur nú greinst í fjóra daga.

Af þeim 368 dögum sem liðnir eru frá fyrsta smiti hér á landi hafa 104 dagar reynst smit­lausir. Lengsta „smit­leysið“ varði í tutt­ugu daga í júlí. Í sex daga á því tíma­bili var eng­inn í ein­angrun vegna inn­an­lands­smits.

5.

Rúmlega 1.800 manns fengu COVID-19 í fyrstu bylgj­unni og tíu manns lét­ust. Sú þriðja var enn skæð­ari og í henni lét­ust nítján. Rekja má þau dauðs­föll til hóp­sýk­ingar sem upp kom á Landa­koti. 53 ein­stak­lingar hafa þurft á inn­lögn á gjör­gæslu­deild að halda vegna alvar­leika veik­inda sinna.

6.

Frá upp­hafi far­ald­urs­ins var mark­mið sótt­varna­yf­ir­valda að verja við­kvæma hópa fyrir sýk­ingum. Árangur þeirra aðgerða má m.a. sjá í fjölda smita eftir aldri en hættan á alvar­legum veik­indum eykst eftir því sem hann hækkar. Sé horft til fjölda smita á hverja þús­und íbúa í til­teknum ald­urs­hópum er ljóst að hlut­falls­lega flest smit greindust hjá fólki á aldr­inum 18-29 ára (18,5/1.000). Hlut­fallið er mun lægra hjá fólki á milli 70 og 79 ára og aðeins um 7 af hverjum þús­und íbúum á þeim aldri sýkt­ust.

Hlut­fallið hækkar hins vegar í elsta ald­urs­hópnum, níu­tíu ára og eldri, sem aðal­lega skýrist af hóp­sýk­ing­unni á Landa­koti. 34 ein­stak­lingar á þessum aldri sýkt­ust af kór­ónu­veirunni og sex þeirra lét­ust eða tæp átján pró­sent.

7.

713 hafa greinst með virkt smit í sýna­töku á landa­mær­unum frá því að fyr­ir­komu­lagið var tekið upp um miðjan júní. Mikill meiri­hluti eða rúm­lega 75 pró­sent, hafa greinst í fyrri sýna­töku. Af þeim sem greinst hafa jákvæðir á landa­mær­unum hafa 467 reynst vera með mótefni og því ekki smit­andi.

8.

Í febr­úar var byrjað að skylda ferða­menn að fram­vísa nei­kvæðu COVID-prófi við kom­una til lands­ins. Nið­ur­staðan má ekki vera meira en 72 klukku­stunda gömul. Sótt­varna­læknir hefur sagt að nú sé hafið reynslu­tíma­bil til að kanna hvernig slík nei­kvæð próf og sýna­tökur á landa­mær­unum spila saman. Reynist fyr­ir­komu­lagi vel er mögu­legt að sýna­tökum hjá ferða­mönnum verði fækkað í eina og að sótt­kví sem er nú skylda á milli skim­ana verði úr sög­unni.

Núver­andi fyr­ir­komu­lag á landa­mær­unum gildir til 1. maí.

[adspot]

9.

Mun strang­ari reglur eru nú á landa­mær­unum en voru í kjöl­far fyrstu bylgj­unnar í júní í fyrra þegar aðeins ein sýna­taka var fram­kvæmd og ýmsar und­an­þágur leyfðar. Þó að hættan á því að smit „leki yfir landa­mærin“ sé alltaf fyrir hendi hafa yfir­völd á síð­ustu mán­uðum aflað sér mik­illar þekk­ingar og beitt reynsl­unni til að lág­marka hætt­una á að slíkt ger­ist.

10.

Meira en helm­ingi fleiri lands­menn eru nú full­bólu­settir á Íslandi, eða um 12.700 manns, en sýkst hafa af kór­ónu­veirunni. Um 11.000 til við­bótar hafa fengið fyrri skammt bólu­efn­is­ins. Um 74 pró­sent níu­tíu ára og eldri eru full­bólu­settir og tæp 30 pró­sent 80-89 ára. Lang­flestir hafa fengið bólu­efni frá Pfizer-BioNTech eða rúm­lega 15.500 lands­menn.

Um 8,2 pró­sent fólks sextán ára og eldra hefur fengið að minnsta kosti fyrri skammt bólu­efn­is­ins. Stefnt er að því að allir eldri en 80 ára og til við­bótar um helm­ingur fólks á átt­ræð­is­aldri verði ýmist orðið full­bólu­sett fyrir lok mars eða búið að fá fyrri skammt­inn. Stjórn­völd binda vonir til þess að mik­ill meiri­hluti lands­manna verði bólu­settur fyrir lok júní. Engar dreif­ing­ar­á­ætl­anir hafa hins vegar enn borist frá lyfja­fyr­ir­tækj­unum fyrir annan árs­fjórð­ung.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár