23 til viðbótar sækja um stöðu upplýsingafulltrúa Sigríðar Andersen

Alls eru 45 umsóknir í gildi um upp­lýs­inga­full­trúa­stöðu dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins eftir að starfið var aug­lýst á nýjan leik með breyttum hæfn­is­skil­yrðum frá fyrri aug­lýs­ingu.

Alls bár­ust 25 umsóknir um starf upp­lýs­inga­full­trúa dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins þegar það var aug­lýst í annað sinn nú í lok apríl. Tveir þeirra hafa dregið umsóknir sínar til baka. Áður hafði hópur umsækj­enda sótt um starfið sam­kvæmt fyrri aug­lýs­ingu og lítur ráðu­neytið svo á að þær umsóknir séu enn í gildi, sam­kvæmt svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

[links]Ráðu­neytið aug­lýsti starfið aftur með breyttum hæfn­is­kröfum. Í bréfi til fyrri hóps umsækj­end­anna kom fram að aðeins hluti umsókn­anna hafi upp­fyllt þau hæfn­is­skil­yrði sem til­greind hafi verið. Því taldi ráðu­neytið rétt að útvíkka hæfn­is­skil­yrðin og gera ítar­legri grein fyrir því í hverju starfið fælist til að freista þess að hafa úr stærri hópi umsækj­enda að velja.

Í síð­ari aug­lýs­ing­unni kom fram að umsækj­endur þyrftu að hafa hæfni til að koma fram fyrir hönd ráðu­neyt­is­ins og hæfni í að miðla upp­lýs­ingum. Ekki var gerð krafa um reynslu af blaða- eða frétta­mennsku eins og gert var í fyrri aug­lýs­ingu en þess í stað kraf­ist reynslu sem nýt­ist í starfi. Jafn­framt þurfa umsækj­endur að hafa færni í texta­gerð og fram­setn­ingu kynn­ing­ar­efnis.

Þeir sem sóttu um starfið nú eru í staf­rófs­röð:

  • Agnes Ósk Egils­dóttir
  • Baldur Þórir Guð­munds­son, við­skipta­fræð­ingur
  • Birkir Guð­laugs­son, við­skipta­stjóri
  • Emilía Sjöfn Krist­ins­dóttir, sér­fræð­ingur
  • Gísli Ásgeirs­son, þýð­andi og katta­rækt­andi
  • Guð­mundur Heiðar Helgason, mark­aðs- og upp­lýs­inga­full­trúi
  • Hafliði Helgason, ráð­gjafi
  • Katla Ásgeirs­dóttir, trú­ar­bragða­fræð­ingur
  • Laufey Krist­jáns­dóttir, lög­fræð­ingur
  • Polina Diljá Helga­dóttir, stjórn­mála­fræði­nemi
  • Ragnar Egilsson, fram­kvæmda­stjóri Hlemmur Mathöll
  • Ragnar Hall­dórs­son, miðl­un­ar­sér­fræð­ingur og almanna­tengsla­ráð­gjafi
  • Ragnar Sveins­son, stuðn­ings­full­trúi
  • Rúna Helga­dóttir, háskóla­nemi í stjórn­mála­fræði
  • Rúnar Þór Clausen, tón­list­ar­maður
  • Sandra Rún Jóns­dóttir, umboðs­maður
  • Sig­ur­björg Yngva­dóttir, bóka­safns- og upp­lýs­inga­fræð­ingur
  • Sig­ur­geir Sig­ur­páls­son, vöru­stjóri
  • Sólveig Fríða Guð­rún­ar­dóttir, lög­fræð­ingur
  • Sölvi Tryggva­son, fjöl­miðla­maður
  • Vala (Val­gerður) Hafstað, blaða­maður og MA í ensku
  • Þorgeir Freyr Sveins­son, guð­fræð­ingur
  • Þóra Jóns­dóttir, texta­höf­undur og rit­stjóri

Áður höfðu þessi sótt um:

  • Aldís Gunn­­ar­s­dóttir
  • Auð­unn Arn­ór­s­­son
  • Berg­lind Pét­­ur­s­dóttir
  • Björn Frið­­rik Brynj­­ólfs­­son
  • Björn Sig­­urður Lár­us­­son
  • Eyþór Gylfa­­son
  • Gró Ein­­ar­s­dóttir
  • Guð­­munda Sig­­urð­­ar­dóttir
  • Guð­­mundur Albert Harð­­ar­­son
  • Guð­­mundur Heiðar Helga­­son
  • Guð­rún Óla Jóns­dóttir
  • Hulda Birna
  • Inga Dóra Guð­­munds­dóttir
  • Kol­brún G. Þor­­steins­dóttir
  • Ragnar Auð­unn Árna­­son
  • Sól­­veig Fríða Guð­rún­­­ar­s­dótt­ir
  • Stef­anía Hrund Guð­­munds­dóttir
  • Tinna Garð­­ar­s­dóttir
  • Torfi Geir Sómon­­ar­­son
  • Viktor H. And­er­­sen
  • Þór­­dís Vals­dóttir
  • Ösp Ásgeir­s­dóttir
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár