Breyttar hæfniskröfur í auglýsingu dómsmálaráðuneytisins

Ný aug­lýs­ing birt­ist á atvinnu­aug­lýs­inga­síðum Frétta­blaðs­ins í morgun en dóms­mála­ráðu­neytið leitar í annað sinn að upp­lýs­inga­full­trúa fyrir ráðu­neytið.

Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra.
Sigríður Á. Andersen, dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Dóms­mála­ráðu­neytið aug­lýsir eftir upp­lýs­inga­full­trúa í Frétta­blað­inu í dag. Hæfn­is­kröf­urnar hafa breyst frá því fyrri aug­lýs­ingin birt­ist en þetta er í annað sinn á tveimur mán­uðum sem ráðu­neytið aug­lýsir starfið.

[links]Umsækj­endur verða nú að hafa hæfni til að koma fram fyrir hönd ráðu­neyt­is­ins og hæfni í að miðla upp­lýs­ingum. Ekki er gerð krafa um reynslu af blaða- eða frétta­mennsku eins og gert var í fyrri aug­lýs­ingu en þess í stað er kraf­ist reynslu sem nýt­ist í starfi. Jafn­framt þurfa umsækj­endur að hafa færni í texta­gerð og fram­setn­ingu kynn­ing­ar­efnis. 

Umsókn­ar­frestur er til og með 15. maí næst­kom­andi.

23 sóttu um starfið í síð­asta mán­uði en aðeins hluti umsókn­anna upp­fyllti þau hæfn­is­skil­yrði sem til­greind voru í aug­lýs­ing­unni, að mati ráðu­neyt­is­ins. Eng­inn var boð­aður í við­tal vegna starfs­ins.

Jóhannes Tóm­as­son sem gegnt hefur stöðu upp­lýs­inga­full­trúa sam­ein­aðs ráðu­neytis dóms­mála og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­mála síð­ustu 12 ár hefur þegar látið af störf­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár